Alþýðublaðið - 10.03.1966, Síða 2
eimsfréttir
sidcastlidna nótt
NEW YORK 02 SAIGON: U Thant hvatti í dag Bandaríkja-
rhenn til aö hætta sprengjuárásum á Norður-Vietnam. Hann kvað
t>að nauðsynlegt til 'þess að fx-iðarumleitanir gætu hafizt. Hann
eagði að Vietcong ætti að eiga aðild að samningaumleitunum
og þriðja fyrtenda þess, að samningaviðræður gætu hafizt
væri sú, að báðir aðilar drægju verulega úr hernaðaraðgerð-
um sínum.
SINGAFORE: Útvarpið í Djakarta tilkynnti í dag, að
óttast væri aö mjög mikið af verðmætum skjölum hefði glat-
azt' er stúdentar héðust á utanríktsdáðuneytið á þriðjudag, þar
6 meðal ýmsir samningar við önnur lönd. Ráðuneytið verður lok-
að.í nokkx-a daga meðan embættismenn eru að taka til.
"VtN: Forseti Austurríkis toað í dag formann ílialdssama
4>jóðarflokksins, Josef Klaus forsætisráðherra að mynda nýja rík
isstjórn. íhal .isflokkurinn fékk toreinan meirihluta í kosningunum
um síðastliðua helgi, en búizt er við að mýnduð verði á ný
eamsteypustjórn þcss flokks og jafnaðarmanna, en að hlutur
jafnaðarmanna verði minni en var.
ÐONN: fulltrúar torezkra, þýzkra og franskra stjórnar-
•valda hófu í dag viðræður í Bonn um samvinnu í samtoandi
við smíði risastórrar fahþegaflugvélar er flutt gæti tvö til þi-jú
ixundruð farþega milli stórtooi-ga Evrópu. Fluglxraði vélarinnar
er .áætlaður 960 km. klst.
PARÍS: Því var lýst yfir af h'álfu frönsku ríkisstjórnarinnar í
dag, að Frakidand mundi halda áfram þátttöku í NATO eftir
1969, og ekki segja sig úr bandalaginu.
EOJAKARTA: IÞúsundir unglinga fóru í kröfugöngur um toorg
ina í gær og réðust á skrifstofur kínversku fréttastofunnar og
• menntamálaráðuneytisins.
OSLÓ: Komist toefur upp um eiturlyfjaneyzlu unglinga í
Osló og er óttast að lösturinn sé nokkuð úttoreiddur.
KAUPMANNAIHÖFN: —■ Klofningsflokkurinn SF undir for
ixstu Aksel Larsen fyrrum formann danska kommúnistaflokks-
-~ins' vann stærsta isigur í dönsku toæjar og sveitarstjórnarkosn-
-érgunum um hclgina. Jafnaðarmenn töpuðu hins vegar nokkru.
AfSalm'ál kosnin.ganna var stefna dönsku ríkisstjórnarinnar í hús
næðismálum, en ekki borgar og sveitastjórnarmálefni.
AIMSTERDAM: Beatrix krónprinsessa Hollands mun í dag
ganga að eiga Þjóðverjann von Amsberg. Hollendingar eru mjög
mátfallnir þessum ráðahagi og verður öflugur lögreglu og toer-
vörður við þær götur sem brúðhjónin aka um eftir bniðkaupið.
Þýðingarmikilt hæstairéttardómur:
Bætur fyrir slys
utan vinnustaðar
ÞEGAR lögin um uppsagnar-
frest, greiðslu veikinda- og slysa-
bóta o. fl. til handa tíma- og
vikukaupsfólki voru sett árið
1958 reis upp margháttaður á-
greiningur milli 1 verkalýðsfélag-
anna og Vinnuveitendasambands
íslands, um hvernig túlka ætti
þessi lög.
Atvinnurekandi neitaði að greiða
slysabætur og vísaði til skilnings
Vinnuveitendasambandsins á
þessu ákvæði laganna. Þá höfðaði
Félag járniðnaðarmanna mál
gegn atvinnurekanda.
Sigurður Baldursson hæsta-
réttarlögmaður flutti málið gegn
Héðni. Dómur er nú fallinn í
hæstarétti um þennan ágreining
og samkvæmt honum hefur skiln-
ingi Vinnuveitendasambandsins á
umræddu atriði laganna verið
Framhatd á 15. síðu
Eitt ágreiningsefnið var um
það, hvort atvinnurekendum bæri
að greiða slysabætur fyrir önnur
slys en þau, sem yrðu við vinnu.
Þessum skilningi mótmæltu verka
lýðssamtökin og töldu ákvæði
laganna segja ótvírætt til um, að
greiða skyldi slysabætur hvernig
svo sem slysið bæri að höndum,
hvort sem það væri við vinnu eða
ekki.
í ársbyrjun 1962 bar að hönd-
um siys utan vinnu. Átti hér
hlut að máli félagsmaður í Fé-
lagi járniðnaðarmanna, sem þá
vann hjá Vélsmiðjunni Iléðni. —
Ný sjónvarpstil-
laga á Alþingi
Reykjavík. — EG.
LÖGÐ var fram á AIþingi í
gær þingsályktunartillaga flutt
af þremur Framsóknarmönnum
og þremur lcommúnistum, sem
gerir ráð fyrir að sjónvarpssend-
ingar frá stöðinni í Keflavík
verði takmarkaðar við varnar-
stöðina eina.
Frakkar verða
áfram í NATO
ÞAÐ var látið tvímælalaust í
Ijós I dag í Frakklandi, að Frakk-
ar heíðu ekki í liyggju að segja
sig úr NATO 1969, en hins vegar
muni Frakkar upp á eigin spýt-
ur, ef ekki vill betur, gera þær
skipulagsbreytingar er þeir telja
nauðsynlegar á þeim lxluta her-
afla NATO er að þeirn snýr. Var
þetta tilkynnt efth’ ráðlierrafund í
frönsku ríkisstjórninni,
Upplýsingaráðlierrann, Yvon
Boui’ges, sagði eftir ríkisstjórnar-
fundinn: Frakkland hefur ekki í
hyggju að notfæra sér þau á-
kvæði sáttmála NATO, sem gefa
aðildarríkjum kost á að segja sig
úr bandalaginu 1969. Starfsemi
bandalagsins verður því haldið á-
fram, að minnsta kosti hvað
Frakkland álirærir.
Flutningsmenn tillögunnar
eru: Gils Guðmundsson (K), Karl
Kristjánsson (F), Alfreð Gísla-
son (K), Sigurvin Einarsson (F),
Lúðvík Jósefsson (K) og Eysteinn
Jónsson (F).
Tillaga þeix’ra félaga er svo-
hljóðandi: \
„Alþingi ályktar að fela ríkis-
stjórninni að hlutast til um, að
sú breyting verði gerð á tækniút-
búnaði sjónvarpsins á Keflavikur-
flugvelli, að sjónvai’pssendingar
þaðan verði framvegis takmarkað-
ar við herstöðina eina. Skal breyt-
ing þessi koma til framkvæmda,
um ieið og íslenzkt sjónvarp tek-
ur til starfa.”
Fylgir lxenni stutt greinargerð,
þar sem sagt er að það sé aC
þjóðernis- og menningarlegum á-
stæðum með öllu óviðunandi, að
hér á landi sé rekið óhæft her-
stöðvarsjónvarp, og er ennfremur
sagt, að krafan um takmörkun
sjónvarpsins sé óháð viðhorfum
manna til dvalar ei’lends herliðs
í landinu.
* 1", ,
Þessi mynd e» tekin frá Kópavogskirkju og sést vcl yfir þann hluta Fossvogsins sem jsenn verður úthlutað lóðuxn á og þegar
er toúið að skipuleggja. Hverfið verður hægra megin við Borgarspítalann.
REIKNINGS-
SKIL ÞJÓÐA
Reykjavík. — EG.
EINAR Olgeirsson (K) mælti S
gær fyrir þingsályktunartillögu,
sem hann flytur og fjallar um
reikningsskil hinna ríku þjóða
við þær fátæku. Kvað Einar ó-
standið í þróunarlöndunum ógn*
arlegt og færi það versnandi þrátt
fyrir erlenda aðstoð. Sagði hann,
að þrátt fyrir aðstoðina væru þró-
_unarlöndin enn arðrænd, þcim
væru seldar of dýrar vörur og þau
fengju of lágt verð fyrir sín hrá-
efnl.
Lagði hann áherzlu á, að ríku.
þjóðirnar yrðu að breyta stefnu
sinni gagnvart þróunarlöndunxim
'óg bæri oss íslendingum skylda
til að taka þetta mál upp á al-
þjóðavettvangi, helzt hjá samein-
uðu þjóðunum.
Framhald á 15. síðu. j
2 10. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ