Alþýðublaðið - 10.03.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 10.03.1966, Blaðsíða 11
Fram mátti þakka fyrir bæði stigim gegn KR FRAM, sem eitt I. deildarliðanna er taplaust til þessa komst í veru- lega taphættu í leiknum við KR, ibotnliðið í deildinni á þriðjudags kvöld. KR hafði betur í fyrrl hálf leik, 11:10 og það var ekki fyrr en á síðustu mínútunum, að Fram tryggði sér sigur, 23:21. Leikur FH og Vals varð aldrei spennandi, FH hafði yfirtökin svo að segja frá upphafi og vann ör- uggan sigur, 28:21. FRAM - KR. 23:21 (11:10). Framarar skoruðu fyrst, en KR jafnaði, síðan komst Fram í 5:1 og flestir hafa sjálfsagt reiknað með yfirburðasigri Reykjavíkur- FH sigraði Vail auðveld- ilega 28 gegn 21 meistaranna, en raunin varð önn- j ur. KR barðist vel (eins og KR- I ingar gera alltaf) og þegar fyrri hálfleikur var hálfnaður, var jafn tefli, 6 gegn 6. Og KR gerði bet- ur, komst í 10:8, en í hléi munaði einu marki, 11:10. í marki KR lék fyrirliði knattspyrnulandsliðs- ins, Ellert Schram, og stóð sig l með ágætum, varði m. a. vítakast | frá Gunnlaugi Hjálmarssyni. Síðari hálfleikur var ekki síður Keppni var mjög skemmti- leg á sundmóti skólanna Hið síðara sundmót skólanna 1965—1966 fór fram í Sundhöll Reykjavíkur 3. marz sl. Alls kepptu 19 sveitir frá 10 skólum. Meðal þeirra voru skólar frá Selfossi, Hveragerði, Keflavík og Akureyri. Stigakeppni í sundgreinum vann sveit Gagnfræðaskóla Aust- urbæjar í Rvík., en stigakeppni sundgreina pilta vann sveit Menntaskólans í Reykjavík. Boðsund stúlkna (skriðsund) vann sveit úr Gagnfræðaskóla Selfoss en boðsund pilta vann sveit Menntaskólans á Akureyri. Árangur var góður í öllum greinum. Matthildur Guðmunds- dóttir jafnaði í baksundi met Auðar Guðjónsdóttur úr Gagn- fræðaskóla Keflavíkur. Röð skólanna var þessi: Stúlkur: 1. Gagnfræðask. Austurb., Rvík. Kramh. á 13. síðu. spennandi, en sá fyrri. KR-ingum gekk vel til að byrja með og nokkrum sinnum náðu þeir 2ja marka forskoti. Framarar fóru samt aldrei úr jafnvægi og jafnvel þó illa liti út, reyndi liðið ávallt að finna veika bletti í vörn og þegar það tókst, þá fyrst var skot- ið. Aftur á móti voru KR-ingar taugaóstyrkir í köflum og misstu boltann fyrir vikið. Einnig var oft skotið að marki Fram í von- lausu færi. Fram tókst ekki að tryggja sér bæði stigin fyrr en á síðustu mínútu leiksins. Þegar rúm mínúta var til leiksloka, var staðan 22:21 fyrir Fram og þá skor aði ungur nýliði í liði Fram, Frí- mann að nafni, mark af línu og þá má loks segja, að sigurinn hafi verið bókaður. í lið Fram vantaði Þorstein Björnsson, landsliðsmarkvörð og það munaði miklu, því að mark- varzlan var í molum. Landsliðs- mennirnir Gunnlaugur, Guðjón og Sigurður voru frekar slappir, en Guðjón þó beztur. Gylfi kom mest á óvart í liði Fram og gerði mörg ágæt mörk. Hjá KR var Karl lang beztur, en Reynir Ólafsson, sem aftur lék með KR átti góðan leik, áður höfum við minnst á Ellert í mark- inu. Sigurður Óskarsson var sterkur í vörn og sýndi góð til- Kramhald á 15. síðu Stefán Sandholt, Val á í hörkubaráttu við vörn FH. Ilann hafðl betur og skoraði. Velheppnað hand- knattleiksmót iðnn. Um síðustu helgina í febrúar fór fram á ísafirði fyrsta lands-- mót iðnnema í handknattleik. Mót- ið fór fram í iþróttahúsi staðar- ins. Iðnnemasamb. íslands ásamt félagi iðnnema á ísafirði sá um undirbúning og framkvæmd móts ins. Keppt var um mjög veglega styttu er Vélsmiðjan Þór á ísafirði gaf til að keppa um. Fimm félög sendu lið til keppninnar. Mótið hófst kl. 2,00 á laugardag og voru leiknir sex leikir þann dag. Á sunnudag var mótinu haldið á- fram og þá leiknir fjórir leikir. Úrslit mótsins urðu þau að lið járniðnaðarnema varð Iðnnema- meistari á þessu fyrsta lands- móti iðnnema og hlaut 7 stig. ; Annað í röðinni varð lið Húsa- smíðanema með 6 stig, þriðja lið Prentnema með 4 stig. Mótinu Þessi mynd er frá leik FII og Vals. Árni Guðjónsson, IIF hefur fengið góða sendingu á línu og skorar. Janne Stefansson sigraði í Vasa skíðagöngunni í 5. sinn í röð á sunnudaginn. Hann gekk hina 85 km. löngu vegalengd á 5 klst. 52 mín. og 38 mín. og 38 sek. Keppendur voru 6597. Tékkóslóvakía sigraði Austur- ríki 22-19 í undankeppni HM í handknattleik á sunnudag. lauk með veglegu hófi í IOGT- húsinu þar voru afhent verðlaun. Þakkaði Gylfi Magnússon formað ur Iðnnemasamandsins gefendum hins glæsilega verðlaunagrips gjöf FramhaUl á 10. síðu. ÍR, Víkingur og || Þróttur líklegir sigurvegarar í II. deild Á mánudag léku Viking- ur ÍR í 2. deild íslands- mótsins í handknattleik. — Leikurinn var mjög skemmti legur og spennandi frá fyrstu til síðustu mínútu. í hléi var jafnt, 7 gegn 7, en á síðustu mínútunum tókst Víkingum að ná yfir höndinni og sigra með 18 gegn 16. Keppnin er mjög spennandi í II. deild. Vík- ingur, ÍR og Þx-óttur hafa mesta möguleika á að sigra og flytjast upp í I. deild, öll liðin hafa tapað leik í fyrri umferð og síðari um- ferð sker úr um það, hver sigrar. § ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 10. marz 1966 U

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.