Alþýðublaðið - 10.03.1966, Blaðsíða 14
LOGHEIMILI.
Lagt var fram í gær frum-
varp, sem þeir flytja Sigurður
Bjarnason (S), Benedikt
Gröndal (A) og Þórarinn Þór-
arinsson (F), sem gerir ráð
fyrir að íslenzkir starfsmenn
hjá alþjóðastofnunum geti
haldið sínu lögheimili hér á
landi þrátt fyrir dvöl erlendis,
eins og er um íslenzka sendi-
ráðsstarfsmenn.
Verzlunarfnenn
Framhald af síðu 3
uðu fulltrúar Kaupmannasamtaka
íslands séráliti, sem liér fer á
eftir.
Til þess að rjúfa ekki víðtæka
samstöðu atvinnurekenda í yfir-
standandi samningaviðræðum við
verzlunarmenn og þar með að
firra viðkomandi aðila og allan
almenning verkfalli og afleiðing-
um þess, mælum við með samþykkt
þess samkomulags sem náðst hef-
ur.
Hins vegar skal lögð á það sér-
stök áherzla, að við óbreyttar að-
stæður í verðlagsmálum or all-
mörgum smásöluverzlunum alger-
lega ókleift að taka á sig þá út-
gjaldaaukningu, sem samningun-
um eru samfara.
Reykjavík, 9. marz. 1966.
f samninganefnd Kaupmanna-
samtaka íslands.
Sig. Magnússon
sign.
Knútur Bruun
sign.
Sýning
Framhald af 3. síðn.
Drottningin var hámenntuð
kona, sem bjó yfir ríkri spaug
greind, hafði sj'álfstæðar skoð
anir og kjark til að fara út
af alfaraleið. Hún blandaði
geði við ágætustu lieimspek
inga og listamenn samtíðar
sinnar. Hún var svo aðsóps-
mikil og áhrifarík, að á þess
ari Kristínar-sýningu birtist
barok-tímabilið á albliða og at
hyglisverðan hátt.
Frétt frá upplýsingadeild
Evrópuráðsins 8.3.
U Thant
Framiiald af S- síðu.
og voru þyrlur sendar á stað-
inin, en þær urðu að börfa
vegna skothriðar Vietcong
manna.
í hörðum bardögum. sem
geisuðu í fyrri viku féllu í
vietnam 205 Suður-vietnamiskir
hermenn og 61 Bandaríkjamaður.
Minningarspjöld Fríkirkjusafnað
arins í Reykjavík fást í verzlun
inni Facó Laugavegi 39, og Verzl
on Egils Jakobsen.
Siofna blandaðan kór
Sú nýjung verður tekin upp í
Nessókn, að unnendum söng-
listar verður gefinn kostur á að
stofna blandaðan kór innan
sóknarinnar, Safnaðarkór Nes
sóknar. Aðalmarkmið þessa
kórs yrði að æfa sönglög sér
til ánægju og safnaðarstarfinu
til eflingar.
Þessi safnaðarkór mun að sjálf
sögðu koma fram og flytja kórverk
t.d á kirkjukvöldum og við liátíð
armessur, þó ekki oftar en svo,
að kórfélögum finnist vel í hóf
stillt.
Þetta verður að öllu leyti sjálf
boðastarf og kemur ekki á nokk
lúrn hátt í staðinn fyrir skyldustörf
kirkjukórsins. En meðlimum hans
I er vitanlega líka gefinn kostur
á að gerast félagar í Safnaðarkórn
um.
Þið, eldri og yngri, konur og
menn, sem viljið gerast stofnend
ur að Safnaðarkór Nessóknar, get
ið gert vart við ykkur í síma kirkj
unnar 16783 hvern virkan dag frá
kl. 5 til 7 síðdegis eða komið til
viðtals við organista kirkjunnar
á miðvikudags og fimmtudags-
kvöldum frá kl. 8—10.
ð0000<XX>00000<XXXXXXXXX>0 ÖOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÖÓO-
Ólafur Vignir Albertsson, Þorvaldur Stein-
grímsson og Pétur Þorvaldsson leika Tríó
í e-moll fyrir píanó, fiðlu og selló eftir
Sveinbjörn Sveinbjörnsson.
20.30 Fastan
Þáttur í umsjón séra Sigurðar Pálssonar
á Selfossi og séra Eiríks J. Eirikssonar þjóð
garðsvarðar á Þingvöllum.
21.00 Sinfóníuhljómsveit íslands heldur tón-
leika í Háskólabíói
Stjórnandi: Bohdan Wodiczko. Einleikari á
fiðlu: Henrik SaChsenskjold.
21.50 „Ágústdagar“
Herdís Þorvaldsdóttir leikkona les úr síð-
ustu Ijóðabók Braga Sigurjónssonar.
22.00 Fréttir og veðurfregnir.
Lestur Passíusálma (27).
22.20 ,.Frú Pipley tekst ferð á hendur",
síðari hluti smásögu eftir Hamlin Garland.
Þýðandi: Ragnhildur Jónsdóttir.
Lesari: Anna Guðmi(ndsidóttir leikkona.
22.40 Djassþáttur
Ólafur Stephensen kynnir.
23.10 Bridgeþáttur
Hjalti Elíasson og Stefán Guðjohnsen ræð-
ast við.
7.00
12.00
13.00
14.40
15.00
16.00
18.00
18.20
18.30
19.30
20.00
20.05
útvarpið
Fimmtudagur 10. marz
Morgunúbvarp.
Hádegisútvarp.
Á frívaktinni
Eydís Eyþórsdóttir stjórnar óskalagaþætti
fyrir sjómenn.
Við, sem heima sitjum
Margrét Bjarnason segir frá bandarísku
skáldkonunni Ednu St. Vincent Millay.
Miðdegisútvarp.
Síðdegisútvarp.
Segðu mér sögu
Sigríður Gunnlaugsdóttir Og Bergþóra
Gústafsdóttir stjórna þætti fyrir yngstu hlut
endurna. í tímanum les Stefán Sigurðsson
framhaldssöguna „Litli bróðir og Stúfur".
Veðurfregnir.
Tónleikar —• Tilkynningar.
Fréttir.
Daglegt mál
Árni Böðvarsson flytur þáttinn.
íslenzkir tónlistarmenn flytja verk ís-
lenzkra höfunda; II.
23.35 Dagskrárlok.
Va CR vezr
KðS^b
Renault eigendur
Höfum tekið að okkur boddýviðgerðir og
sprautun. — Reynið viðskiptin.
BílaverkstæðiS VESTURÁS
Síðumúla 15. — Sími 35740.
Chrysler eigendur
Höfum tekið að okkur boddýviðgerðir og
sprautun á Dodge, Plymouth og Chrysler.
Reynið viðskiptin.
Bílaverkstæðið VESTURÁS
Síðumúla 15. — Sími 35740.
GUFUBAÐSTOFA,
SNYRTISTOFA,
HÁRGREIÐSLUST OFA.
Húsnæði fyrir ofangreinda þjónustu, er
til leigu í hinu nýja, HOTEL
frá og með 1. maí n.k.
Umsóknir sendist skrifstofu Loftleiða
(hóteldeild), sem gefur nánari upplýsing-
ar.
wnitmm
Systir okkar
Kristjana Sigríður Guðmundsdóttir
andaðist á St. Josephs spitala, Hafnarfirði 9. þ.m,
Þorleifur Guðmundsson og systkini.
14 10. marz 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ