Alþýðublaðið - 24.04.1966, Blaðsíða 1
Sunnudagur 24. aprll 1966 - 46. árg. - 91. tbl. - VERÐ 5 KR.
81 FERST í
FLUGSLYSI
Árdmorc Oklahoma 23. apríl.
’ (ntb-reuter). — Flugvél aí
gerðinni Lockhead-Electra! fcneð
88 mönnum, 92 hermönnum og
sex manna áhöfn, steyptist log-
andi til jarðar í gærkvöldi í nánd
við Ardmore í Oklahoma. Síðustu
fréttir herma, að 81 maður hafi
beðið bana. Margir þeirra 17,
sem komust lífs að, hlutu slæm
brunasár og eru milli heims og
helju.
Flugvélin var í eigu leiguflug-
félags sem heitir American Flyers
og var á leið frá Fort Ord í Kali-
forniu til Fort Benning í Georgíu.
Flugvélin átti að hafa viðkomu í
Ardmore til að fá eldsneyti.
Flugvélin hrapaði á hæðóttu
svæði skammt frá landamærum
Texas. Formælandi flugfélagsins
sagði að rignt hefði lítilsháttar
þegar flugvélin kom inn til lend-
ingar og skyggni var þrír kiló-
metrar.
Electra-flugvélin er fjögurra
hreyfla skrúfuþota.
Patreksfjorður út-
undan hjá ríkisskip
Patrek-firði. — PG-GbG.
MIKIL óánægja ríkir á Patreks-
firði með þjónustu þá, sem gert
er ráð fyrir, að innt sé af hendi
af hálfu Ríkisskips. Síðan Særún
hætti flutningum, hefur verið
hreinasta ólag á flutningum á
Vestfjarðahafnir, einkum og sér í
lagi á Patreksfjörð. Þannig getur
dregizt allt upp i már.uð að vör-
ur, sem liggja á hafnarbakkanum
í Reykjavík komist tii Patreks-1
fjarðar. Ástæðan fyrir þessu virð-
ist vera sú, að skipin eru lestuð
þannig, að vörur á fyrstu uppskip-
unarhöfn eru lestaðar seinast. Og
einfaldlega þegar kemur að sein-
ustu höfninni við lestun, Patreks-
firði, eru lestar allar langoftast
fullar og vörurnar svo látnar bíða
— og bætast við það, sem látið
var bíða í síðustu ferð. Getur
nærri, að af þessu skapast hið
I Framhald á 15. síðu
1
| Persónu-
: frádráttur
j
hækkar
:
j Samkvæmt lögum frá 12.
j maí 1965 um breyting á
lögum um tekjuskatt og
eignarskatt er svo ákveðið,
að hækka skuli eða lækka
persónufrádrátt og þrep
skattstiga í samræmi við
skattvísitölu, sem ákveðin
skal af fjármálaráðherra að
fengnum tillögum kauplags-
nefndar, hagstofustjóra og
r í kisskattst j óra.
Fjármálaráðherra hefur nú
ákveðið, að skattvísitala við
álagningu skatta 1966 skuli
vera 112.5 stig, miðað við
vísitölu 100 árið 1965. Sam-
kvæmt þessu hækkar per-
sónufrádráttur einstaklinga
um 10 þús. kr. hjóna um 14
þús. kr. og barnafrádráttur
um 2 þús. kr. fyrir hvert
barn. Tekjuskattsbilin í
skattstiganum hækka um 5
til 8 þús. kr.
Reykjavík er ört vaxandi
borg. Þar sem áður roru ó-
byggð tún eða melar rísa nú
fjölmenn íbúðahverfi. Seina-
gangur í lóðamálum af hálfu
borgaryfirvalda hefur þó vald
ið því, að fjölmargt fólk, sem
hvergi kysi annars staðar að
búa en í Reykjavík hefur
neyðzt til að flytja í sveltar
félögin, sem næst eru borginni,
og er það miður heppileg þró
un.
Eitt af nýrri hverfum Reykja
víkurborgar er Alfheima og
Vogahverflð. Þótt hverfið sé
ekki ýkja stórt er það áreiðan
iega eitt þéttbýlasta borgar-
hverfið því þar búa átta til níu
þúsund manns. í þessu hverfi
eru þrjú af háhýsum borgarinn
ar, sem hvert um sig hafa í
búa tölu á við meðalkauptún
úti á landi.
Blaðamaður og ljósmyndarl
Alþýðublaðsins óku um þetta
hverfi fyrir nokkrum dögum,
tóku myndir, ræddu við nokkra
íbúa ,og' ál'nngurinn af föP
þeirra geta lesendur séð á blað
síðum 7,. 8, 9, og 10 þar sem
brugðið er upp myndum og
sagt er frá þessu hverfi.
Lagarfoss strandar við
suðurströnd Svíþjóðar
Reykjavík og NTB, 23. apríl.
UM hálffjögur leytið sl. nótt,
strandaði Lagarfoss við Nidning-
en á suð-vesturströnd Svíþjóðar.
Skiplð var á leið frá Gravarna til
Véntspils með freðfisk. Fullfermi
er í frystilestum skipsins, en bú-
ið var að losa farm í Lysekil og
Gravarna.
Veður var gott og bjart er skip-
ið kenndi grunns en fer versn-
andi. Ekki er vitaö um neinar
teljandi skemmdir. Þó er nokkur
leki kominn upp í 2. og 3. tánk
skipsins. Björgunarskip er á
staðnum og vinna kafarar að rann
sókn á botni skipsins. Ekkii er
talið að skipið sé í bráðri hættifc;