Alþýðublaðið - 14.06.1966, Side 3
Hongkong, 13. júní. (ntb-reut.
Umfangsmiklar björgunarað-
gerðir voru skipulagðar í Hong-
kong í dag eftir hin miklu flóð og
skriðuföll um helgina er kostað
hafa að minnsta kosti 44 manns
lífið. Varað hefur verið við áfram
haldandi úrkomu og hættu á nýj-
um skriðuföllum.
í þessari boi’g offjölgunar leit-
AÐFARANÓTT laugardagsins
4. júni sl. féll færeyskur maður
í Reykjavíkurhöfn og drukknaði.
Rannsóknarlögreglan biður leigu-
bílstjóra, sem ók þessum manni og
félaga hans út á Faxagarð, rétt
áður en slysið skeði, að hafa sam
band við sig sem fyrst.
Kristinn Árrnanns
son, fyrrverandi
rektor, látinn
ar fólk að ættingjum sínum í
leðju og moldarhaugum, sem flóð
in og skriðuföllin hafa skilið eft-
ir sig. Óttazt er að margir hafi
farizt þegar skriður féllu yfir litla
og óhrjálega kofa, sem margar
fjölskyldur bjuggu í.
Yfirvöldin og líknarfélög liafa
ekkert til sparað í björgunarstarf-
inu. í sumum hverfum eru mat-
væli á þrotum þar sem skriðuföll
hafa lokað vegum og járnbrautum.
Brezka flugvélarskipið „Eagle”,
sem er í heimsókn, sendi þyrlur
með vistir til einangraðra svæða
samtímis því sem unnið var að
því að. opna vegina.
Útvarpið hvetur fólk til að halda
sig innan dyra og skólum og
nokkrum skrifstofum hefur verið
lokað. í miðborginni ríkir hálfgert
öngþveiti, djúp leðja er á götun-
um og bifreiðar eins og forar-
haugar. Víða er rafma(gnslaust og
vatnslaust.
KUISTINN Ármannsson, fyrrver-
andi rektar Menntaskólans í
Reykjavík lézt í fyrradag á sjúkra
húsi í London. Banamein hans
var hjartabilun. Var hann að koma
úr Grikklandsför ásamt konu sinni
og liafði kennt lasleika í ferðinni.
Kristinn Ármannsson var fædd
ur 28. september 1895 að Sax
hóli í Breiðuvík. Hann lauk stúd
entsprófi 1915 og cand. mag. prófi
í latínu, grísku og ensku frá Kaup
ínannahafnarháskóla 1923. Sama
ár var Iiann skipaður kennari við'
Menntaskólann í Reykjavík. Yfir
kennari var hann þar um margra
ára skeið og rektor 1957 — 1965
er hann lét af störfum sökum ald
uris. Ilann kenndi jafnframt grísku
og latínu við Háskóla íslands og
um margra ára skeið annaðist
hann dönskukennslu í Ríkisútvarp
inu. Hann sanidi kennslubækur
bæði í dösku og latínu.
Kristinn Ármannsson Iætur eftii’
sig konu, Þóru Árnadóttur, og
þrjú uppkomin börn.
Heiídaraflinn tvo
fyrstu mánuðina
í SKÝRSLU Fiskifélags íslands
sem nær yfir tvo fyrstu mánuði
áranna 1965 og 1966, getur að líta
yfirlit yfir veiðiskap landsmanna
umrætt tímabil, bæði eftir tegund-
um og verkunaraðferðum.
í jan. og febr. 1965 var heildar-
aflinn 129,480,291 kíló, miðað við
fisk upp úr sjó. Þar af er togara-
fiskur 8,479,698 kíló. Veiðin fyrstu
tvo mánuði ársins 1966 er sam-
tals 113,866.526 kíló, þar af 6,868,-
576 kíló togarafiskur. í tölunum
frá fyrra ári er síldarmagnið 48,-
765,212 kíló og loðna 30,734,497
kg. Fyrstu tvo mánuði þessa árs
varí síldveiði 17,248,056 kg. og
loðna 63,971,106 kg.
Á fyrra ári fóru 34,348,436 kg.
af þorskaflanum í frystingu og
söltun, en 49,750,113 kg. fóru í
herzlu, niðursuðu, mjölvinnslu,
innlenda neyzlu og ísfisk. Humar-
og rækjuafli var samtals 230,469
kg„ en fyrstu tvo mánuði þessa
árs 305,209 kg.
Konungskórónan mátuð á Gunnar Björnstrand, en hann leikur Sigvarð í kvikmyndini um Hag-
barð og Signýu Hægra megin við hann er Eva Dahlbeck, sem leikur drottningu hans. Bæði eru
þau þekkt fyrir fjölmörg hlutverk í sænskum myndum. Með þeim á myndinni er Gitta Hænning.
sem leikur Signýu. Gitte er aðallega þekkt sem söngkona. Hefur hún m. a. sungið hér á landi,
Kvikmyndun Rauðu skikkj-
unnar hefst í næsta mán.
FJÖLDI leikara frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð komu
saman í Asa kvikmyndaverinu
í Lyngby sl. fimmtudag, ásamt
framkvæmdastjórum þriggja
kvikmyndafélaga. Verið er að
leggja síðustu hönd á undir-
búning kvikmyndunar á sög-
unni um Hagbarð og Signýju,
sem tekin verður á íslandi í
sumar. Búið er að skipa í öll
stærri hlutverk sem flest eru
í höndum frægra leikara. Eins
og áður hefur verið sagt frá
verður Gabriel Axel leikstjóri
og samdi hann einnig handritið
í samvinnu við Frank Jæger.
Lokið er við að byggja tvo
konungsgarða sem bráðlega
vei’ða fluttir til íslands og sett-
ir hér upp, en öll útiatriði
myndarinnar verða tekin liér-
lendis. en inniatriði í Stokk-
hólmi. Myndatökurnar hér fara
fram í júlí og ágúst.
Alls koma um 60 manns liing
Frh. á 14. síðu.
Sænsku leikaramir HSkon Jahnberg og Lisbeth Movin eru hér ásamt danska leikaranum Johannes ! >
Meyer og leikstjóranum Gabriel Axel
Aðalfundi Sambandsins lokið
Aðalfundi Sambands íslenzkra
samvinnufélaga í Bifröst lauk á
laugardaginn 11. júní. Á föstudag
stóð fundur allt til miðnættis. —
Ui’ðu miklar umræður í tilefni af
skýrslum forstjóra og framkvæmda
stjóra hinna ýmsu deilda. Snérust
þær einkum um þá miklu ei'fið-
leika sem sívaxandi verðbólga
veldur í rekstri kaupfélaganna og
Sambandsins. Á fundinum flutti
forstjórinn Erlendur Einarsson
erindi sem hann nefndi Nýja
strauma í samvinnustarfi og fjall-
aði einkum um athuganir, sem
fram hafa farið á vegum Alþjóða
sambands samvinnufélaganna á
þeim breytingum, sem verið er að
gera á skipulagi og rekstri kaup-
félaganna í mörgum löndum heims
til þess að mæta nýjum viðhorfum
og vaxandi samkeppni og gera
reksturinn hagkvæmari og auka
þjónustu.
Þá flutti einnig erindi Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda, sem var gestur
fundarins. Fjallaði það um land-
bxinaðarmál og einkum um þær
ráðstafanir, sem verðlagsráð land-
búnaðarvara hefur nýverið gert
um innvigtunargjald á mjólk, verð
lækkanir á smjöri og fleira.
Á laugardag hófst fundur kl. 9
með umræðum í tilefni af erindi
Gunnars Guðbjartssonar. Tóku
margir til máls. Snérust ræður
manna einkum um verðbólguna og
þá miklu erfiðleika, sem verð-
bólgan veldur landbúnaðinum.
Lögð var fram eftirfarandi til-
laga og samþykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Sambands ís-
(
lenzkra samvinnufélaga haldinn
að Bifröst 10,—11. júní 1966',
beinir þeim eindregnu tilmælum
til Seðlabanka íslands og viðr
skiptabankanna, að þeir hækki
afurðalán vegna landbúnaðaraf-
urða upp í það hlutfall er gilti
um þær á sl. ári.
Frh. á 13. síðu.
ALÞÝUBLAÐIÐ - 14. júní 1966 3