Alþýðublaðið - 14.06.1966, Blaðsíða 4
ED££MI>
Btiatjórar: Cylfl Gröndal (4b.) og Benedlkt Gröndal. — Rltstí5marfuU-
trúl: EiOur GuOnaaoo. — Simar: 14900-14903 — Auglýaingaaimi: 14900.
ASae'.ur AlþýOuhúsiO vlO Hverfisgötu, Reykjavlk. — Prentsmlöja Alþýöu
bUOalna. — AakrUtargJald kr. 95.00 — 1 lausasölu kr. 6.00 elntakitt
Utgefandi AlþýOuflokkurind.
Bæöi meÖ og móti
Fyrir nokkrum dögum mátti enn lesa í Tímanum
þá fjarstæðu kenningu, að Framsóknarflokkurinn hafi
að miklu leyti tekið við því hlutverki hér á landi,
!sem jafnaðarmenn gegna á hinum Norðurlöndun-
!um. Hefur áður bólað á þessum draumórum. en
sjaldan hafa þeir verið eins fjarri veruleikanum
!og nú.
Framsókna.rflokkurinn var upphaflega stofnaður
sem frjálslyndur umbótaflokkur, en hann hefur orðið
íhaldssamari og meiri hentistefnuflokkur með hverju
ári.
Það er höfuðeinkenni á Framsóknarflokknum í
\
dag, að hann hefur enga stefnu, en reynir að vera
báðum megin í öllum meiri háttar málum. Þannig
voru framsóknarmenn á Alþingi bæði með og á móti
ólbræðslunni og kísilgúrverksmiðjunni. Þeir þykjast
vera á móti verðbólgunni, en heimta meiri útlán,
’meiri framkvæmdir, hærri álagningu, hærra mjólk-
urverð og margvíslegar aðrar ráðstafanir, sem magna
verðbólguna.
Framsóknarmen'n er af mörgum ástæðum óskildir
norrænum jafnaðarmönnum, hversu mjög sem rit-
stjórar Tímans gera sér dátt við þá. Framsóknar-
menn hafa í 35 ár barizt á móti þeim mannréttind-
um að atkvæði allra landsmanna séu jafn áhrifamikil
í kosningum. Framsóknarmenn hafa aldrei staðið að
meiri háttar breytingum á tyggingalöggjöf eða öðr-
um áhugamálum jafnaðarmanna, nema fyrir kröfu
Alþýðuflokksins. Hafi Alþýðuflokkurinn ekki verið
jí ríkisstjórn, eins og á sjórnarárum Framsóknar- og
jSjálfstæðismanna, voru tryggingamálin látin sitja á
'hakanum. Þá hafa Framsóknarmenn verið reikulir í
l
utanríkismálum og reynt að vera bæði þjóðvarnar-
menn og NATO-menn.
Allt eru þetta einkenni á stjórnmálaflokki, sem
^alls ekki geta átt við jafnaðarmenn á Norðurlöndum.
iFramsóknarflokkurinn reynir að vera frjálslyndur eða
Íjafnvel róttækur, þegar hann er í stjórnarandstöðu.
Hins vegar sýnir reynslan, að hann verður allra
jflokka íhaldssamastur, þegar hann sezt í ríkisstjórn.
Framsóknarflokkurinn er nú undir forustu manna,
sem mótuðust af stjórnmálum kreppuáranna fyrir
stríð. Hinir yngri menn, er vafalaust eiga eftir að
gerbreyta Framsóknarfloknum, ráða þar enn litlu
jsem engu. Flokkurinn er í stjórnarandstöðu og hef-
jur undanfarin ár aukið nokkuð fylgi sitt, ýmist með
!því að beita peningavaldi sínu eða lokka til sín fylgi
jóánægðra kjósenda. Hvorugt mun endast lengi, held-
íur hrynja af flokknum ef hann kemst aftur í ríkis-
istjórn og verður að taka afstöðu til mála. Þar er ekki
íhægt að vera bæði með málum og á móti þeim. Þá
jmun hinn róttæki svipur hverfa- af andliti maddöm-
lunnar.
4 ALÞÝUBLAÐJO - 14.' júní 1966
Koparpípur og
tiennilokar,
F’ittings,"
Ofnakranar.
Tengikranar
Slöngukranar,
Blöndunartæki.
iurstafeit
byggingarvöruverzlnn
Kéttarholtsvegi 3
Simi 3 88 40
Pússningasandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðir ai
Pússningasandi heiin-
iiuttun) og blásnum ini)
Þurrkaðar vikurplótur
og einangrunarplas'
Sandsalan við
Elliðavog s.f.
Elliðavogi 115 sími 30120.
© Andersen & Lauth hf.,
LÉTTUR OG ÞÆGILEGUR
SPORTJAKKl
FÆST AÐEINS HJÁ OKKUR
VEIÐITIMINN er nú liafinn í ám
og vötnum. Veiðimennskan er holl og góð íþrótt,
sem veitir möi-gum innisetumanninum Icærkomin
tækiíæri til útivistar á sumrin. — Skiptir
þá ekki öllu máli, að eftirtekjan sé sem mest, úti-
"æran og snerting við náttúruna skiptir öllu meira
máli.
★ SPORT RÍKA MANNSINS.
Laxveiðar eru nú sport ríka
mannsins á íslandi. Ekki er aðeins, að útbúnaður
allur sé mjög dýr, heldur hefur veiðileigan liækkað
gífurlega undanfarin ár og er nú svo komið, að
næsta fáir geta leyft sér þann munað að renna
fyrir lax.
Hækkun veiðileyfanna á sér vafa-
laust margar orsaklr. En ein þeirra er þó tvímæla-
laust sú, að ýmis stórfyrirtæki íslenzk, hafa tekið
upp þann sið, að yfirbjóða góðar ár heilt sumar
eða yfir bezta veiðitímann. Árnar nota siðan for-
stjórar fyrirtækjanna til að skemmta sér og sínum
helztu vildarvinum. Margvísleg stórviðsklpti hafa
áreiðanlega verið til lykta leidd í slíkum veiðiferð-
um forstjóra og viðskiptavina.
★ HÁSKALEG ÞRÓUN.
Hér er vissulega um háskalega
þróun að ræða. ísland er auðugt land af ám og
vötnum og víðast er nokkur fiskur. Ef heldur sem
horfir í þessum efnum, verða það innan skamms
algjör sérréttindi hinna fáu og ríku að geta losnað
úr viðjum starfs og hversdagsleika með því að
bregða sér í veiðiferð.
Það sem liér þarf að gera, er í
rauninni ofur einfalt. Ríkið þarf að eignast allmarg-
ar góðar veiðiár, þar sem almenningi yrði síðan
gefinn kostur á að renna fyrir fisk gegn sann-
gjarnri þóknun, og þetta þarf að gerast fyrr en
síðar. Með þessu móti mætti auðveldlega koma
í veg fyrir að þessar veiðar verði sérréttindi for-
stjóra auðfélaganna. og viðskiptavina þeirra, sem
þeir þurfa að hressa eða gleðja á einhvern hátt.
Sums staðar erlendis mun sá hátt-
ur hafa verið tekinn upp, að hið opinbera hefur
með öll veiðimál í ám og vötnum að gera. Hví ekkl
íara inn á þá sömu braut hér?
>
★ SILUNGUR OG MURTA.
— Það eru fleiri fiskar f ám og
vötnum, en laxinn, kynni nú einhver að segja.
Víst er það satt og rétt. í Þingvallavatni, sem er
vinsæll veiðistaður hjá Reykvíkingum er hægt að
fá ódýr veiðileyfi. En þar er oft næsta lítil veiði,
að miunsta kosti, ef veitt er frá landi í Vatnsvík-
inni. Því hefur heyrzt, að ekki sé mikil veiðivon
þar, því víkin sé bókstaflega girt af með netatross-
um og inn fyrir netin sleppi ekki nema smákvik-
indi. Væri vissulega fróðlegt, ef viðkomandi aðilar
vildu staðfesta hvort hér er rétt með farið. Ef svo
er, er líklega eins gott að hætta að blekkja fólk
með því að selja þarna veiðileyfi.
★ ÍÞRÓTT FYRIR ALLA.
Veiðimennska er íþrótt, sem all-
ir geta stundað, ungir sem gamlir og karlar sem
konur. Með vaxandi kyrrsetum og inniveru er
borgarbúum hollt að hreyfa sig og njóta útilofts,
þó ekki sé nema dagstund á ár- eða vatns-bakka.
Það verður að stemma stigu við
þeirri þróun, sem nú er orðin, og gera raunhæfar
ráðstafanir til þess að allir sem vilja og geta, geti
iðkað þessa íþrótt.
í landi þar sem er jafnmikið af
ám og vötnum og hér er, má veiðimennskan aldrei
verða forréttindi ríki-ar yfirstéttar.