Alþýðublaðið - 14.06.1966, Page 7

Alþýðublaðið - 14.06.1966, Page 7
MAÐUR í FRÉTTUNUM Kvikmyndastjarna arftaki Goldwaters LEIKLISTIN getur veitt ýmsa möguleika ef snúið er við lienni baki í tíma. Þannig er ekki með öllu óhugsandi, að 55 ára gamall fyrn'erandi kvikmyndaleikari, sem lýst hefur íþróttakappleikjum og auglýst þvottaefni í sjónvarpi, Kvikmyndaleikarinn Reagan á- samt Virginia Mayo. Ronald Reagan, komist alla leið í Hvíta húsið vegna fyrri frægðar á hvíta tjaldinu og sjónvarps- skerminum eftir frækilegan sigur er hann vann nýlega í prófkosn ingum um frambjóðanda repúblik ana í ríkisstjórakosningunum í Kalíforníu á hausti komanda. Sigur hans er enn ein sönnun þess að greið gata er úr skemmt analíjUnu í; stjóknmálin — að minnsta kosti í Bandaríkjunum, en þess eru einnig dæmi víða annars staðar. Þess er skemmst að minnast, að í kosningunum í Bretlandi og Finnlandi voru fjöl margir leiklistarmenn, íþrótta- menn og karlar og konur, sem kunn eru úr sjónvarpinu, í fram boði. ARFTAKI GOLÐWATERS. Sigur Reagans þýðir, að hann J berst um ríkisstjóraembættið í fjölmennasta rílci Bandaríkjanna í kosningunum í nóvember. Og sigur hans felur í sér, að Repú blikanaflokkurinn hefur stigið stærsta skref sitt til hægri síðan Barry Goldwater var og hét. Sig ur Reagans í prófkosningunum hef ur einnig í för með sér að flokk urinn hefur góða möguleika á að ná völdum í Kaliforníu, að Reag an getur haft mikii áhrif á vald næsta forsetaefnis repúblikana og að líta verður á hann sjálfan sem hugsanlegan keppinaut þeirra tveggja leiðtoga repúblikana, sem nú eru taldir helzt koma til greina sem næsta forsetaefni flokks- ins, Richard Nixons fv. varafor seta og George Romneys ríkis- stjóra. Núverandi ríkisstjóri Kaliforn íu, Edmund G. Brovvn, sem Demó krataflokkurinn hefur tilnefnt frambjóðanda sinn í þriðja sinn, sagði eftir sigur Reagans í próf kosningunum: „Hann hefur tekið við forystunni af Barry Gold- water.“ j Og það er rétt, að þótt Reag an neiti því sjálfur, þá er hann I hópi öfgamanna lengst til hægri en Reagan er tilneyddur að bera á ipóti þessu — því ef hann á a3 verða öruggur um sigur í rikis- istjórakosningunum verður hann að afla sér fylgis kjósenda demó krata^ en í Kaliforníu er miklum mun stærri hópur kjósenda skráð ur í Demókrataflokkinn en í Repú blikanaflokkinn. Það er alkunna að Reagan hefur verið skráður félagi í John Birch-félaginu, sem er hálf fasistískt, og að hann er blökkumannahatari. í rauninn' er hann persónugervingur alls þess, sem Goldwater barðist fyi ir, og skoðanir Goldwaters hafa eftir öllu að dæma lifað af hinn gífurlega ósigur haná í forseta kosnínsunum, að mimi'ita kosti í Kaliforníu. siguriJktir REAGANS. Baráttu þeirra Reagans og Browns ríkisstióra verður hörð, en eins og sakir standa eru sigurhorf ur Reagans taldar að minnsta kosti eins miklar og Browns. Þegar Brown sigraði Knowland öldungardeildarmann 1958 hafði hann 660.000 atkvæði fram yfir hann í prófko-ningunum, þegar hann sigraði Nixon 1962 var mun urinn 423.000 atkvæði í prófkosn ingunum. Samkvæmt óopinberum útreikningum hafði Reagan 68.000 atkvæða forskot þegar próf kosningarnar voru háðar á dögun um, og sýnir þetta, að kjósendur í Kaliforníu eru þreyttir orðnir á ríkisstjóra, sem hefur verið lengi við völd. Og þetta gefur einnig til kynna, að Reagan hefur í raun og veru mjög góða möguleika til að hreppa ríkisstjóraembættið í Kaliforníu sem er annað af tveimur svoköll uðu „lykilríkjum“ Bandarikjanna en hitt rikið er New York. Sigur Reagans í ríkisstjórakosningunum gæti leitt til þess, að hann yrði útnefndur forsetaefni á flokksþingi repúblikana 1968 ef hann sækist eftir útnefningunni. FRÆGHR LEIKARI. Ronald Reagan fæddist í smá . NÝLEGA sá ég kvikmyndina ,,Þögnina“ eftir Ingmar Berg- mann. Hún er að mínu viti stór- kostlega merkileg mynd, sem ekki verður svo auðvelt að gleyma. Mig minnti lnin á eitt vandamál mannlífsins, sem flestir prestar verða varir við í sálgæzlustarfi sínu. Það er ekkert einsdæmi, að fólk sé hvað öðru nákomið, en geti þó aldrei rofið þagnarmúi’- inn, létt á liuga sínum, verið ein- lægur og opinskár. Það er liaft eftir Jóni Sigurðssyni forseta, að íslendingar gætu ekki sagt mein- ingu sína, nema annað hvort fullir eða reiðir. Þetta er því miður allt of satt um fjölda fólks. Óeining á heimilum, á vinnustöðvum eða innan stofnana enda oft i fúlu afskiptaleysi, þar sem hver ská- gengur annan, eða grimmum ofsa, þegar upp úr sýður. Hvorugt er í raun og veru liin sanna og eðlilega tjáning, og endar jafnan með eftir sjá og samvizkubiti. Þess á milli er liula þagnarinnar dregin yfir andlitið. Allir hafa þörf á tjáningu. Það liggur í mannlegu eðli, að þurfa að létta á huga sínum. Geta opn- að sig. Til að fullnægja þéirri hörf hefur kristin kirkja stofnað til skrifta og sálgæzlu. Því er verr, ’tð fyrr á tímum gerði kirkjan skriftirnar að valdbeitingartæki, IfeÉ i; w Reagan í ræðustól: Með brosinu ekki síður stjórnmálaskoðanir. bænum Tompieo í Illinois 1911 og er sonur skókaupmanns af írsk um ættum. Hann útskrifaðist frá Eureka College og að loknu prófi gerðist hann íþróttafréttaritaid við útvarps- og sjónvarpsstöð í Des Moines, Iowa. Þegar Reagan átti að lýsa kapp leik í Chicago 1937 féllst hann á að leika í kvikmynd til reynslu. Skömmu síðar liélt liann til Holly wood, þar sem hann lék í um 500 kvikmyndum, aldrei í aðal hlutverki heldur alltaf í öðru helzta hlutverkinu, eða hlutverki „laglega unga mannsins, sem fékk ekki kvenhetjuna.’“ ítetur háhn selt þvottaefni og ? t •; - ■ ald, átta ára, og býr fjölskyldaií í íburðarmiklu húsi í úthverfi Los Angeles en dvelst alla jafn an á stórum búgarði í grennd viffl Malibu. Reagan er margfaldur milljónamæringur. Vri I Reagan hóf afskipti af stjórn málum þegar á leikaraárum sínun og var um skeið formaður sairj , bands kvikmyndaleikara Á þess i um árum var hann sannfærður demókrati og varð að berjast fyr • ir málftað margra umbjóðenda sinna, sem sakaðir voru um að fylgja kommúnistum að málum, en þctta var á McCarthy-tímanum. Árið 1948 skildi liann við fyrri konu sína, kvikmyndaleikkonuna Jane Wyman. Fjórum árum síðar gekk hann að eiga núverandi konu sína leikkonuna Nancy Davis, sem er dóttir skurðlæknis frá Chicago sem frægur er — eða alræmdur í flokki repúblikana fyrir öfga kenndar skoðanir. Reagan-hjónin eiga tvö börn. Patricia, sem er 13 ára, og Ron Árið 1952 gekk hann í hreyf ingu demókrata, sem studdu Eis enhower í forsetakosningunum, og þegar hann fékk starf Iijá General Electric og hélt áróðursfyrirlestra fyrir þetta stórfyrirtæki, færðiet liann ekki aðeins í átt til repú blikanaflokknns heldur einnig hægri arms hans. FrsTTiliald á 1R í þjónustu kirkjuagans. Þrátt fyrir það hafa raunverulegar skriftir alltaf farið fram, þar sem prestarnir hafa orðið trúnaðarvin- ir sóknarbarna sinna, og stundum haldið í liönd með þeim árum sam- an. Og margföld reynsla er fengin fyrir því, að góðviljaður og skiln- ingsgóður sálusorgari hefur hjálp- að þeim, sem áttu erfitt með að tjá'sig, — en tilganginum er þó I ekki náð mcð því einu. Til þess fara trúnaðarsamtölin fram, að þegjandi sál nái sambandi við aðr- ar lifandi mannverur — og við Guð. Vér lifum á undarlegum tímum. Ýmist er talað um þögnina sem böl og þjáningu, innilokun hugs- ana, -sem þyrftu að fá útrás, eða kvartað er yfir því, að hávaðinn sé of mikill, skvaldrið og lætin, — og þöss vegna þurfi menn að leita sér að tækifærum til þagn ar. Og sannleikurinn er sá, að menn hafa þörf fyrir þögn. Þagn- ir lagsins eigi sinn þátt í gerð þess, ekki síður cn hljómarnir. Og þannig er þessu einnig háttað í daglegu lífi mannsins. Gömul lijón höfðu búið saman í áratugi. Þau höfðu vanist hvort öðru, þekktu hvort annars tilfinningalíf og hugsunarhátt út í æsar. „Vi’ð höf- um bæði kunnað að tala samair —* og að þegja saman“ sagði gamli maðurinn. Þau gátu setið í herberginu sínu, dundað við verkefni sín. hvílt huga sinn í kyrrð og næði, en þau fundu hvors annars návist, hvors annars vináttu og samúð í hljóði þagnar- innar. i Menn leita að þögn. Úti í nátt- i úrunni. lnni á öræfunum. í helgi- dómnum. En — þolir þú þögnina? Ryðj- ast að þér óvelkomnar liugsanir?v Eða brjótast upp í dagvitundina einhverjar þær hvatir, sem geral hug> þinn órólegan? Áhvggjur?- Kvíði? Hefndarhvöt? Vonzka? Ef svo er, skaltu taka það sem merki þess, að þú hafir þörf á að opncu huga ])inn, en ekki loka honum. Jakob Jónsson. ALÞÝUBLAÐIÐ — 14. júní 1966 7

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.