Alþýðublaðið - 16.07.1966, Blaðsíða 2
eimsfréttir
• • • •
siáasfSidna nóft
s- MOSKVA. Harold Wiíson forsætisráðherra Bretlands kemur
<til Moskvu í cag, klukkutíma eftir að frú Indíra Gandhi, forsæt
dsráðherra Indlands hverfur frá Sovétríkjunum. Talið er ólíklegt,
að hann fái Sovétstjórnina til að fallast ó þá tillögu sína, að
Bretland og Sovétríkm talci höndum saman til að reyna að koma
á 'samningaviffræðum um Vietnam.
LONDON: Talsmaður ríkisstjórnaa^nnar vísiaði harðLega
á bug, að James Callaghan fjármálaráðherra hyggðist segja af
•sér,1 vegna fyrirhugaðra aðgerða Wilsons í efnahagsmálum, en
■orðrómur heiur að undanförnu verið uppi um það, að ráðherr
•arnir séu á mjög öndverðum meiði um það, hvað gera skuli.
CHICAGO: Ríkisstjórinn í Illinois kvaddi í gær út 8.000
unanna þjóðvarnarlið til að hafa Ixemil á kynþáttaóeirðunum,
hsém undanfarna daga hafa geisað í blökkumannahverfum Chicago
ibörgar. >
BERN: Ríkisstjórn Sviss lagði í gær bann við því, að hið
isvokallaða Heimsfriðarráð, sem nýtur stuðnings kommúnista, fengi
■að halda fleiri fundi í landinu. Ástæðan er sú að á fundum ráðs-
ins hafi komið fram árásir á erlenda þjóðhöfðingja.
BRÚSSEL; Viðskiptajöfnuður Efnahagsbandalagslandanna
igagnvart löndum utan bandalagsins hefur enn versnað. Útflutn
ingur hefur orðið minni en ætlað var, einkum vegna minnkandi
'Sftirspurnar i þróunarlöndunum, en á hinn bóginn hefur inn-
flutningur auk5zt mjög, einkum frá Asíulöndum.
BONN: Talið er að kosningasigur þýzkra sósíaldemókrata í
fylkisþingkosningunum í Nordrhein-Westfalen muni leiða til þess
«ð fiokkurinn taki upp harðari andstöðu en áður gegn stjórn Lud
vígs Erhards, að minnsta kosti ef kristilegir demókratar og frjáls
ir demókratar halda áfram samsteypustjórn sinni í Nordrhein-
Westfalen.
Gullpeningur afhentur á
ÖÍ!
blóðstreymisráðstefnu
fleykjavík. — GbG.
blóðstreymisráðstefnu þeirri,
sear staðiÓ hefur yfir í Háskólan-
unx að undanförnu, hefur setið
friegur maður sænskur, að nafni
R abin Fahraeus, p rófessor við
XJppsalaháskóla. Hann er frægur
fyrir rannsóknir sínar og niður-
stöður varðandi blóðstreymi í
smáæðum, en sumar eru þær að-
cins einn þúsundasti úr milli-
nietra.
Herra Fahreaus, sem er elztur
núlifandi blóðstreymissérfræðinga
var í gær sæmdur gullpeningi fyrir
uppgötvanir sínar, hinum fyrsta
sem veittur er af hálfu samtaka
folómstreymissérfræðinga heims.
Aíthöfnin fór fram í hátíðatal Há-
Skólans að viðstöddum fUlltrúum
Iryggve Lie
sjöíugur
Otió. (NTB).
TkYGVE LIE, fyrrverandi utan-
ríkí&ráðherra Noregs og fyrsti
frgnikvæmdastjóri Sameínuðu
t>)déanna, er sjötugur í dag. í því
UUsffii hefur honum verið sýnd-
ur nxikill sómi i heimalandi sínu.
Wcrrika ríhisstjórnin sæmdi hann
í gí&r heiðursmerki úr gulli, og
i gærkvöldí var honum haldið hóf
1>ar perri konungur Noregs var
méðal gesta.
16. júlí 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
á ráðstefnunni og konum þeirra
og ýmsum mætum gestum.
Peningurinn er úr skíragulli, 18
karata og á honum er mynd af
þeim blóðstreymissérfræðingi
frönskum, sem talinn er fyrsti sér
fræðingurinn á þessu sviði. Mynd-
ina hefur Nína Tryggvadóttir teikn
að eftir Ijósmynd af hinum fran-
ska lækni, J.L.M. Poiseuille, sem
uppi var 1797—1869. Hinum meg-
in á peningnum er svo áletraður
texti sem skýrir ástæður fyrir
heiðrinum, auk nafns Svíans.
Loksins hefur nú verið
hafizt handa um endurbætur
á liinum illræmda Hafnar
fjarðarvegi. Verður nýtt slit
lag borið á veginn frá gatna
mótunum hjá Engidal og
inn að Kópavogsbrú. Kostn
aður við þessa lagfæringu
er áætlaður sex og hálf
milljón króna, reiknað er
með að verkið taki sex
daga. Framkvæmdir þessar
hafa með höndum íslenzkir
aðalverktakar.
MHMMtMMMWUMMMHWM
Barn drukknar
í Siglufirði
SEX ÁRA gamall drengur
drukknaði í höfninni á Siglufirði
síðastliðið fimmtudagskvöld. Reiö-
hjól, sem hann hafði verið að leika
sér á fannst á bryggjunni. Frosk-
maður fann drenginn fljótlega, en
þó var svo langt um liðið að lífð-
unartilraunir báru ekki árangur.
Nafn hins látna verður ekki birt
að sinni.
Tveir Gemini-geim-
farar á loft mánud.
Kennedyhöfða. (NTB-REUTER).
Á mánudag verSur tveimur
bandarískum geimförum skotið á
loft frá Kennedyhöfða í geimfar-
inu Gemini 10. Á geimfarið að vera
þrjá sólarhringa á lofti, en þetta
er áttunda mannaöa geimfarið, sem
Bandaríkjamenn skjóta á loft síð-
ustu 16 mánuðina.
Geimfarið á að fara 43 hringi
umhverfis jörðu. Á ferðinni á að
tengja geimfarið við agena-eld-
flaug, sem verður skotið á loft 100
mínútum á undan geimfarinu. —
Slík tenging eldflaugar og geim-
fars hefur áður verið gerð, en að
þessu sinni á tengingin að gerast
á grundvelli útreikninga, sem gerð
LJÓNIN GENGU LAU
f FLUVÉLINNI
Brússel, (NTB-REUTER.).
Flugvél, sem var á leið til
Bretlands, varð að nauðlenda
í Brussel í gær, sökum þess,
að þrjú ljón voru laus í vél-
inni. Flugmennirnir, sem voru
tveir, urðu að brjóta rúðu í
stjórnklefanum og flýja þar út.
Leiguflugvél var að flytja
ljónin frá V.-Þýzkalandi til
Lundúna, en á leiðinni sluppu
ijónin úr búrum sínum. Flug-
maðurinn segist fyrst hafa
orðið var við þetta, er hann
heyrði andardrátt rétt hjá sér,
og þegar hann leit við, sá hann
Ijónsunga standa við fót sér.
Síðan sá hann tvö fullorðin ljón
stefna í áttina til sín.
Flugmaðurinn hafði strax
samband við flugturninn í
Brtissel og bað um að fá að
nauðlenda. í fyrstu héldu flug
umsjónarmennirnir þar hins
vegar, að um gabb væri að
ræða. — Við erum með þrjú
ljón í stjórnklefanum, sagði
flugmaðurinn — og turninn
svaraði: Látið þau í tankinn!
Er flugvélin tók að lækka
flugið, urðu ijónin óróleg og
annar flugmaðurinn greip þá
öxi og hélt ijónunum frá með
henni. Þegar flugvélin lenti
umkringdu vopnaðir lögreglu-
menn hana, og síðan voru sér-
fræðingar frá dýragarðinum í
Antwerpen fengnir til að að-
stoða við að handtaka ljónin.
Þau verða flutt áfram til Bret-
lands í dag.
Eigandi ljónanna er mark-
greifinn af Bath, sem rekur
dýragarð á óðali sínu í Eng-
landi. Hann sagði, að engin
hætta hefði verið á ferðum, þar
sem ljónin væru með öllu
meinlaus. Þetta væru bara smá-
ljón, sagði hann.
ir verða í geimfarinu sjálfu. Þá
eiga geimfararnir að nota hreyfil
eldflaugarinnar og láta hann knýja
geimfarið áfram til agéna-eld-
flaugarinnar, sem á sinum tíma
var tengd við Gemini 8, en sú eld-
flaug hefur verið á braut umhverf
is jörðu síðan í marz.
Geimfararnir tveir heita John
Young og Miehael Colling. í geim-
ferð sinni eiga þeir þrisvar sinn-
um að opna geimfarið. Collins á
að fara tvisvar út úr geimfarinu
og vera 55 mínútur úti í geimnum
í hvort skipti, en í þriðja sinn eiga
þeir að losa sig við ýmis tæki.
Ratsjá eldflaugarinnar, sem skot
ið var upp í marz, er ekki lengur
í lagi, og er megintilgangurinn
með því að finna þá eldflaug sá, að
rannsaka, hvernig' unnt verði a8
koma geimförum til aðstoðar i
geimnum, til dæmis ef rafkerfi
bilat í geimskipi.
Rússar ögra
US-þyrlu
Badhersfeld. (NTB-DPA).
ÁIIÖFN sovézkrar þyrlu hafði
gær frammi ögranir við bandi
ríska herþyrlu. Sovézka þyrla
fór yfir landamæri Au.-Þýzkaland
í sama mund og bandaríska þyr
an var á eftirlitsflugi vesta
landamæranna. Sovézka þyrlan fó
yfir þá bandarísku og þvingaf
hana til að lenda. Bandaríkji
mennirnir stigu þá út, en sovézk
þyrlan sveif nokkra stund rétt y:
ír höfðum þeirra, en hélt síða
aftur til Austur-Þýzkalands.