Alþýðublaðið - 19.07.1966, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 19.07.1966, Blaðsíða 2
K'ENNEDYHÖFÐA: í gærkvöldi var skotið á loft mönnuðu geimfari frá Kennedyhöfða og er ráðgert að t>að verði 70 tíma ólofti og fari fjær jörðu en nokkurt annað geimfar hefur tgert. LONDON: Mikið verðfall varð í kauphöllinni í London í gær, en búizt er við að ríkisstjórnin leggi fyrir -þhigið á miðviku dag tillögur sínar um lausn efnahagsvandans í landinu. HAAG: Alþjóðadómstóllinn vísaði í gær frá kæru tveggja Afríkjúrikja vegna stjórnar Suður-Afríku, BRÚSSEL Aðild Spánar að Efnahagsbandalagi Evrópu er aftur komin á dagskrá, og hafa viðræður um það efni farið fram milli spænska sendiherrans í Briissel og fulltrúa banda lagsins. v DJAKARTA: Fyrrverandi sendiherrar Indónesiu í Peking o3 Hanoi, sem settir voru af eftir byltingartilraunina í fyrra, hafa nú tilkynnt, að þeir hyggist stofna indónesíska útlaga- scjórn í Kína. GENEVE. Bandaríkin tjáðu Alþjóða Rauða krossinum í Qeneve í dag. að það myndi hafa alvarlegar afleiðingar, ef Norður-Vietrum-menn létu dæma bandaríska fanga sem stríðs glæpamenn. Goldberg. aðalfulltrúi Bandarikjanna sagði um þetta mál, að ljóst væri, að Genfarsáttmálinn um vernd stríðsfanga •næði til bandarískra fanga í Vietnam, NORRÆNT BRUNAVARÐA- MÓT VAR SEn í GÆR Rvík, — GbG. t GÆRMORGUN var sett í Reykjavík Norrænt brunavarða- mót, sem standa mun yfir fram Akureyri og Kópavogur með rúmlega 9000 íbúa & ^östudag. Mótið var sett í slökkvistöðinni nýju við Reykja- nesbraut og verður háð þar. Er- lendir þátttakendur á mótinu eru 32, en nokkrir íslenzkir hruna- verðir taka þar að sjálfsögðu þátt. Þá eru og tveir gestir frá Skot- landi. Þetta er í fyrsta skipti, sem brunavarðamót með þátttöku útlendinga er haldið hér. Áður en borgarstjóri. Geir Hall grímsson, setti mótið formlega, ISéð yfir aðalhátíðasvæðið, ;[ er minnzt var 100 ára af- |! mæiis ísafjaröarkaupstaðar ! j um helgina. J [ IMMMMHWmwtMHtMMMI mælti formaður mótsnefndar, Finnur Richter, nokkur orð og lýsti aðdraganda þess, að Bruna- varðafélag Reykjavíkur hefði nú látið gera sérstakan félagsfána fyrir félagið. Einn hagleiksmaður úr hópi brunavarða, S'gurður Karlsson. teiknaði fánann. Þessu næst afhjúpaði fánann. formaður félagsins, Tryggvi Ólafssen Borgarstjóri ávarpaði síðan gesti á tungu Ðana og Enskra. Rakti hann stuttlega sögu bruna varna hér og lýsti þeirri þróun, sem orðið hefði í þessum efnum Framhald á 10. síðu. imsfréttir ssekasflicines nótt LANDSBÚAR töldust alls 193. 758 hinn 1. desember s.l., karlar Mokkru fleiri en konur eða 97, 944 karlar á móti 95.814 konum. í Reykjavík buggu 78.399 manns, 38.288 karlar og 40.111 konur, í haupstöðum utan Reykjavíkur bjuggu 51,113 manns. 26.792 karl- ar og 26.321 kona, og í sýslunum bjuggu 51,113 manns.. 26.792 karl ar og 29,382 konur. Sést at þessu, qð í Reykjavík eru konur nokkru fteiri en karlar, en karlar hins vegar fleiri bæði í kaupstöðum I heild og sýslinn I heild. Þetta kem ur fram í endanlegum niðurstöð um Hagstofunnar um mannfjöld ann í landinu, Fjölmennasti kaupstaðurinn fyr ir utan Reykjavík er Akureyri, þar sem bjuggu 9.642 manns og rúmlega 200 fleiri konur en karl, ar, næstur kemur Kópavogur með 9.204 íbúa, nokkru fleiri karla en konur, þá Hafnarfjörður með 8135 íbúa, ívið fleiri konur, Þá Keflavík með 5.128, fleiri karla, þá Vestmannaeyjar með 5.012, fleiri karla, þá Akranes með 4.178, 4 konum fleira, þá ísafjörður með 2.696, fleiri karla, þá Siglufjörð ur með 2.472, 8 konum fleira, þá Ilúsavík með 1.841, fleiri karla, þá Neskaupstaður með 1 514, ná lega 100 fleiri karlar, þá Sauðár krókur með 1.390, fleiri karla, þá Ólafsfjörður með 1.048, fleiri karla, og loks Seyðisfjörður með 853 íbúa, og eru karlar þar 20 fleiri en konur. Síldaraflinn 160.824 lestir Reykjavíic, mánudag. Á miSnætti sl. laugardag var heihlanmgn síldarajlans 161.155 lestir eða 41.125 lestum meiri en á sama tíma í jyrra. Mest aj síld- inni hejur jarið í bræðsly., eða 160,824 lestir, 309 lestir í salt og 22 lestir í frystingu. Á sama tíma i jyrra var heildaraflinn 120,030 ifstir, þar af höjðu verið bræddar 113,112 lestir, söltuð 6.581 lest og frystar 337 lestir. Sunnudagurinn 10. júlí var bezti afiadagur vertíðarinnar til -|>essa, en þá tilkynntu 42 skip um afla samtals 9.085 lestir. Vikuna 10.—16. júií bárust á land 26.- 281 lest. Það magn fór allt í toræðsiu, nerna 25 lestir, sem fóru í salt, Aflinn skiptist þannig á þinar ýmsu verkunarstöðvar: iestir Reykjavík 17.476 Siglufjörður 935 Hjalteyri 411 Ilúsavik 1.994 Vopnafjörður 9.873 Seyðisfjörður 38.389 Eskifjörður 13.216 Fáskrúðsfjörður 7.008 Djúpivogur 1.762 Bolungavík .3157 Ólafsfjörður 2.767 Krossanes 6.325 Rqufarhöfn 22,549 Borgarfj. eystri 591 Neskaupstaöur 26.608 Reyðarfjörður 7.022 Breiðdalsvík 879 í gær tilkynntu 18 skip afla, sam- tals 1.405 tonn, hæstur var Ásþór RE 140 tonn, Arnar RE 110 tonn. Guðrún Jónsdóttir, ÍS. 100 tonn. - Sl. sólarhring voru skipin eink- um að veiðum 30-70 míiur SV af Framhald á 10. síffu. Fjölmennasta sýsla landsins er, eins og áður Arnessýsla með 7.604 íbúa. Þá kemur Gullbringusýsla með 6.815, þá Suður-Múlasýsla með 4.763 þá Snæiellsnes- sýsla með 4.134, þá Eyjaf.iarðar- sýsla með 3.886, þá Kjósarsýsla með 3.148, þá Rángárvallasýsla með 3.059, þá Suður-Þingeyjar- sýsla með 2.817, þá Skagafjarðar sýsla með 2.640, þá Norður-Múla- svsla með 2.443, þá Austur-Húna vatrisýsla með 2.360, þá Vestur- Barðastrandarsýsla með 2.031 og Mýrasýsla með 2.028. Þá er kom ið að Nórður-ísafjarðarsýslu með 1 931 íbúa, Norður-Þingeyiarsýslu með 1.916, þá kemur Vestur-ísa- fiarðarsýsia með 1.780 íbúa, þá Strandasýsla með 1.485, þa Borgar fiarðarsvsla með 1 469, Au.úur- Bkaftafellssýsla með 1.429, þá Vestur-Húnavatnssvsla með 1.405, bá Vestur-Skaftafellssýsla með 1. 387, þá Dalasýsla með 1.189 íbúa og loks Austur-Barðastrandar- svsla með 512 íbúa. ,. Fámennasti hreppur landsins var Loðmundarfjarðarhrepnur í Norður-Múlasýslu með 11 íbúa, 7 karla og 4 konur. Lönd og leiðir leigja sér skip Rvík, ÓTJ. Á næsta ári tekur jerðaskrif- stofan Lönd og leiðir á leigu hið nýja þýzlca skemmtijerðaskip Re- gina Maris og getur þá boðið upp á 24 daga skemmtisiglingu um Mi'ðjarðarhafið. Ferðaáætlunin er: Lacoruna, Tangier, Napoli, At- hena, Beirut, Malaga, Lissábon og Reykjavík Á fundi með fréttamönn um sagði Ingólfur Blöndal að lagt yrði upp l ferðina 22. september 1967. Regina Marls er eins nýtt og það getur verið, var sjósett í júní sl. Það er fyrsta skipið sem Þjóð- i verjar byggja eftir stríð, sem ein göngu er ætlað í'yrir farþega — og bifreiðar þeirra. Það hefur að sjálfsögðu uppá að bjóða öll þæg indi sem -hægt er að hugsa sér í farþegaskipi, sundlaug, baðker j eða sturtu í svotil hverjum einasta klefa og í klefunum eru engar kojur, he'idur aðeins þægileg rúm. Tæknilega séð er það geysifull- komið, t.d. er hægt að hólfa það af með stálþiljum ef leki kemur að einhversstaðar. Það á heldur ekki að geta brunnið þar eð öll hil eru úr asbest en ekki viði. og svo máluð eins og fínasta tréklæðn- ing. Einnig hefur verið vel hugsað fvrh’ sjóveikum farþegum og ef veður er slæmt eru settir út „væng ir” fyrir neðan sjávarborðið sem draga mjög úr veltingi. Þá er og um borð fullkomið sjúkrahús með þjálfuðu starfsliði, Þeir sem áhuga hafa fyrir að fara í fyrrnefnda ferð með Regina Mar is, geta skoðað skipið næst þegar það heí'ur viðkomu hér, sem verð ur hiiin 29. þessa mánaöar. Svíum dýrir Kynsjukdómar Stokkhólmi iNtb). Kynsjúkdómar kosta sænsku þjóðina um níu milljónir sænski’a króna árlega (um 72 millj. ísl. kr.), segir í skýrslu, sem sænsk heilbrigð isyfirvöld hafa látið gera. Kynsjúkdómar hafa færzt mjög í aukana i Svíþjóð hin síðari ár, einkum meðal ungl inga á aldrinum 15—19 ára. Kostnaðarútreikningarnir eru miðaðlr við árið 1964, en þá voru á skrá tæplega 500 syfilistilfelli í landinu og um 23 þúsund lekandatilfelli. Samsvarandi tölur fyrir árin 1965 og 66 eru sízt lægri en þessar, en þær liggja ekki alveg ljóst fyrir. mMHMMMHMMtmWMWW '-2 19' Júlí 1966 “ ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.