Alþýðublaðið - 19.07.1966, Síða 6
NÝLEGA MATTI lesa í
einhverju dagblaðanna, að
kona hefði fengið annars
stigs brunasár í andlit, er
hún gekk á Snæfellsiökul.
Við göngu á fjöll og jökla
er mjög hætt við miklum
sólbruna, einnig við sjó,
og þar sem oft er erfitt að
ná til læknis ætti fólk að
varast bruna með notkun
góðra og heppilegra sól-
krema.
Þar sem við höfum hér á ís-
landi stutt sumur reyna flestir að
njóta sólardaganna, sem koma.
Mar'gir liggja þá í sólbaði klukku-
stundum saman hreyfingarlausir
til að fá á sig hinn eftirsótta
brúna lit, en eins og með flest
annað, varast verður óhóf í sól-
böðum. Til að gefa lesendum
nokkrar upplýsingar og fræðslu
um sólböð og sólkrem, spurðum
við frú Mariu Dalberg, fegrunar-
sérfræðing, nokkurra spurninga
þessu lútandi.
— Er það ekki nauðsynlegt fyr-
ir okkur hér á íslandi, að nota
sólskinsstundirnar eins og mögu-
legt er?
— Að sjálfsögðu eru sólböð holl
og nauðsynleg, en þau geta lika
verið skaðleg, séu þau iðkuð í ó-
hófi. Ekki má fara of geist í sól-
böð, gott er að byrja með 10—
15 mínútum og smálengja síðan
tímann eftir því, sem hver þolir.
Það er íekki gott að liggja kyrr
í sólbaði; mikið betra að vera á
hreyfingu. Og ef fóik verður
slappt og þreytt í sólbaði er
greinilegt að það hefur verið of
lengi í sól og ætti því að fara
varlega.. Alls ekki á að liggja
marga klukkutíma i einu, nema
manneskjan sé búin að þjálfa sig
upp í það langan tíma.
— Er ekki gott að nota sólkrem
til varnar húðinni?
— Til.eru ýmiss konar sólolíur
og krem, bæði fyrir þurra og feita
húð, og það er mjög nauðsynlegt
að nota slík krem. Svo er einnig
til krem, sem ver húðina algjör-
lega sólargeislunum, sé- hún við-
kvæm. Það er mjög gott fyrir fólk,
sem ekki þolir sól.
Einnig er það mjög gott
fyrir fólk, sem fer í fjallgöngur, í
ferðir á hestum, t. d. Það ver húð-
ina fyrir ryki, óhreinindum, sól
og kulda, má sem sagt notast allt
árið.
— En hvað um þessi krem, sem
eiga að gera húðina brúna án
sólar?
— Það er til slíkt krem, sem
er sprautað á húðina og húðin
verður brún. Það krem gerir eng-
an skaða vegna þess að það er
venjuleg sólarolía og litar ekki
húðina sjálfa, en kremið sjálft er
litað, þannig að húðin verður ljós-
brún. Þetta krem er því venjulegt
sólkrem, sem eins og önnur slík
krem verndar húðina og eðlilegur
brúnn litur myndast af sólinni
sjálfri. Slíkt krem er aðallega not
að fyrst á vorin, þegar byrjað er
að fara í sólböð, síðar verða það
óþörf smyrsl er sólin hefur sjálf
gert húðina brúna.
En svo eru aftur til ýmiss kon-
ar „spray” og krem, sem lita húð-
ina. Slík efni er EKKi ráðlegt að
nota, því að þau einangra sólina
frá húðinni og mörg gera húðina
alla flekkótta.
— Eru ekki dæmi þess að kon-
ur koma til ykkar með slæma
húð vegna of mikilla sólbaða?
— Jú, ég hef séð dæmi þess,
að konur hafa komið með þannig
húð, að bandvefurinn hefur verið
skemmdur. En það er mikil hætta
á því vifl of mikil sólböð, að band-
vefurinn undir húðinni skemmist
og þá verður húðin slöpp og hrukk
ótt, og þegar bandvefurinn hefur
eyðilagzt er ekki gott að ráða bót
á því.
— Nú segja margir fegrunar-
sérfræðingar að íslentfingar hafi
þurra húð. Er það vegna veðr-
áttunnar?
— Já, veðráttan hér er svo ó-
stöðug. Miðstöðvarhitunin hefur
þar líka mikifl að segja, því að
umskiptin eru svo mikil, þegar
farið er út úr heitri íbúð út í
Framhald á 10. síðu.
£ 19. júlí 1966
ALÞYÐUBLAÐIÐ