Alþýðublaðið - 19.07.1966, Side 7
Minningarorö:
Eggert Guðmundsson frá Tröð
„Víst eru engin vindhögg sleg-
in” hjá þeim vopnfæra sláttu-
manni, „sem slær allt hvað fyrir
er” og „reiknar allt jafn-fánýtt.”
Ekki er þar farið í manngreinar-
álit eða eftir óskum manna eða
vonum og mannleg skipulagning
eða áætlanir hafa þar ekkert að
segja.
Of fljótt og óvænt þykir okkur
að þessu sinni, sem oftar, að ljár-
inn hafi numið vin okkar Eggert
Guðmundsson frá Tröð.
Fæddur var hann í Haukatungu
í Kolbeinsstaðahreppi 14. apríl
1895 og var því á öðru ári hins
áttunda tugar er hann lézt. For-
eldrar hans, Guðmundur Eggerts-
son og Pálína Sigurðardóttir,
bjuggu lengst af í Tröð í Kol-
beinsstaðahreppi og voru ætíð
kennd við þann bæ.
Guðmundur faðir hans var
Mýramaður í ættir fram. Að öðr-
um þræði voru forfeður hans Ein-
arsness menn, sem bjuggu í Ein-
arsnesi við Borgarfjörð, hver
fram af öðrum og höfðu sýslu-
völd í „Borgarfjarðarsýslum vest-
an og sunnan Hvítár” eins og það
var orðað á 17. og 18. öld. En
að öðrum þræði var hann af æfc
Marteins Einarssonar, sem sagði
af sér.biskupsdómi vegna ágengni
konungsvaldsins og gerðist bóndi
á Álftanesi á Mýrum og bjó þar
til æviloka.
'Pálína ljósmóðir, móðir Eggerts,
váf líka að öðrum þræði af ætt
Mýramanna. í ætt hennar var
fjöldi andlegrar stéttar manna. í
föðurætt hennar má nefna Sig-
urð prest Jónsson í Stafholti og
Markús prest Eiríksson í Hvammi
í Norðurárdal og í móður ætt Jón
biskup Vigfússon á Hólum, Sæ-
mund Oddsson prest í Hítardal,
Þór Jónsson prest í Stað á Öldu-
hrygg og afi hennar var Páll Páls-
son prófestur í Hörgsdal á Síðu,
svo nefndir séu nokkrir.
Það er því auðvelt að rekja
ætt Eggerts Guðmundssonar til
andlegra og veraldlegra höfðingja
fyrri tíða og slíkt er alltaf til
nokkurs gildisauka að vera grein
af góðum stofni.
Þegar ég kom unglingur í Kol-
beinsstaðahrepp fyrir nærri hálfri
öld, lenti ég þar sem Tröð var
hinn næsti bær. Ég kynntist þá
fyrst og bezt fólkinu þar, festi
við það tryggð og vináttu, sem
hefur haldist síðan.
Eggert Guðmundsson var þá
ungur maður í blóma lífsins, vel
gefinn, listfengur og hagur til
munns og handa og fyrirmynd
ungra manna í sveitinni á marg-
an hátt. Hann var þar um skeið
formaður UMF. Eldborg og org-
anisti í sóknarkirkju sinni, Kol-
beinsstöðum. Eftir að hann flutt-
ist til Reykjavíkur var hann
lengst af starfsmaður hjá Reykja-
víkurhöfn. í félagsmálum verka-
manna hér í Reykjavík var hann
alla tíð í fremstu röð, ötull og á-
hugasamur. Hann var í stjórn og
trúnaðarmannaráði Vmf. Dags-
brúnar um margra ára bil. Hann
var fulltrúi og í hverfisstjórn
K r o n í deild sinni — og reynd-
ist þar sem annars staðar áhuga
samur og nýtur starfsmaður.
Eggert kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Sigurrós Jónasdóttur
frá Ystu-Görðum. Eignuðust þau
tvö börn, Pálínu og Jónas, sem
bæði eru búsett hér í Rvík.
Eggert gekk ekki heill til skóg-
ar hin síðari árin. Hann átti við
erfiðan sjúkdóm að stríða, astma,
sem hann bar þó með ró óg karl-
mennsku. Hann andaðist 12. þ.
m. eftir stutta legu.
Með Eggerti Guðmundssyni frá
Tröð er horfinn vinsæll maður,
vel gefinn og vel metinn af öll-
um er þekktu hann, mannkosta-
maður og drengur góður.
Blessuð sé minning hans.
Guðvi. lllugason.
Koparpfpur o*
Fittings,
Ofnakranar,
Tengikranar
Slöngukranar,
Blöndunartæki,
Burstafell
bygglngarvöruverzln*,
Kéttarholtsvegl S.
Síml 3 88 40.
Eggert Guðmundsson.
Rennilokar,
Bronstein sagði fyrir nokkru í
blaðaviðtali, að hann teldi Kors-
noj vera sigurstranglegan í væntan
legri keppni um heimsmeistaratit
ilinn. Við skulum nú fara yfir aðra
sigurskák hans gegn Petrosjan í
borgakeppninni Móskva/Lenin-
grad,, en sem kunnugt er sigraði
han heimsmeistarann tvívegis í
þeirri keppni.
Hvítt: T. Petroshan.
Svart: V. Korsnoj.
Spánski leikurinn.
1. e4 e5
2. Rf3 Rc6
3. Bb5 aG
4. Ba4 Rf6
5. 0—0 Rxe4
6. d4 b5
7. Bb3 d5
8. dxe Be6
9. c3 Be7
10. Bf4 Rc5
11. Bc2 ....
(ekki var betra fyrir hvítan að
leika 11. Rd4—Rxb3 12. Rxc6—
Dd7)
11.....Bg4
12. h3 Bh5
13. De2 Re6
14. Bh2 Bc5
15. Rbd2 Re 7
16. Hadl Dc8
17. Rb3 Bb6
18. Khl ....
(Ekki kom til greina 18. Rbd4 —
Bxd4, 19. cxd4—RG5 og svartur
hefur betra tafl.)
18.....c5
19. g4 Bg6
20. Rh4 Bxc2
21. Dxc2 Dc6
22. f4 d4
23. Dg2 Dxg2
24. Rxg2 ....
(Ekki er gott fyrir svartan að leika
24.....d3 vegna 25. c4-bxe 26.
Rd2)
24..... dxc
25. f5 Rc7
Ef 26. bxc þá Red5
Svartur svarar 26. e6 á sama hátt)
26. Bgl Red5
27. Rxc5 cXb
28. Hd2 0-0-0
29. Re4 Bxgl
30. Kxgl Rb6
31. Rd6 Hxd6
32. exd Rc4
33. d7 Kd8
34. Hd3 Ra8
35. Rf4 Rab6
36. Hfdl b4
37. Rd5 Rxd5
38. Hxd5 Re3
39. Hd5d3 Rxdl
40. Hxdl Kc7
41. Hbl Kxd7
42. Hxb2 a5
Hvítur gaf.
Utsala - Utsala
byrjar á morgun á
...SUMARHÖTTUIVI
einnig blússur og peysur,
seldar allt að hálfvirði.
HATTABÚÐ REYKJAVÍKUR
Laugavegi 10.
Plastefni
íBAÐHERBERGI
nýkomin.
Gardínubúðin
Ingólfsstræti.
!
i
STARFSSTULKUR OSKAST
Starfsstúlkur vantar til afleysinga í eldhús
Flókadeildar, Flókagötu 31.
Upplýsingar gefur matráðskonan, eftir kl.
1 (ekki í síma).
Reykjavík 18/7. 1966
Skrifstofa ríkisspítalanna.
ATVINNUREKEKÐUR
sem hafa starfsfólk búsett í Kópavogi. eru
minntir á að senda bæjarfógetaskrifstofunni
að Digranesvegi 10 tilkynningu um nöfn og
heimili starfsmanna sem fyrst og eigi síð-
ar en 31. þ.m.
Vanræksla veldur ábyrgð á skattgreiðslu.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
FIAT-EIGENDUR TAKIÐ EFTÍR
Nýkomið í rafkerfið svo sem:
Startarar Dynamóar
Straumlokur Anker
Spólur Bendixar
og margt fleira.
Bílaraf S/F
Höfðavík v/Sætún — Sími 24-700.
Brenni - Oregon pine
Nýkomið.
Brenni (Hvítt): 1” - 1V4”
m” — 2” - 2W’
Oregon Pine: 3V4” — 2”
Askur: 1V2” - 2”
Aimur: 1W’ — 2”
Palisander: 2”
Teak — margar stærðir
og þykktir.
ZEBRA — spónn.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 19. júlí 1966 J
fllt; 1------------- --- ■ --------— —— —— — ----------------------!■ ....------------------TT —■>i>i,*UlrHi«i» ipMiljÍilHllM—