Alþýðublaðið - 30.08.1966, Qupperneq 11
Valur og Akureyri
skildu jöfn 1-1
Einn þýðingarmesti leikurinn í
fyrstu deild íslandsmótsins í knatt
spyrnu á þessu ári, var leikinn á
Akureyri á sunnudag, Akureyring
ar lék við Val, og var leikurinn
einkum þýðingarmikill fyrir Val,
því sigur þeirra í þessum leik hefði
svo til tryggt þeim íslandsmeist
aratitilinn að þessu sinni, en rétt
10 ár eru síðan Valur vann íslands
bikarinn síðast. Valsmenn tefldu
fram sama liði og lék við Stand
ard frá Liége á dögunum, og
náði jafntefli við belgísku atvinnu
mennina, en ekki tókst Val að
þessu sinni eins vel upp, og þeg
Jón Þ Olafsson IR.
ar við ofureflið var að etja og
lauk leiknum með jafntefli, einu
marki gegn einu, og máttu Vals
menn teljast heppnir með þessi
úrslit. Þeir byrjuðu vel, og áttu
góðan leik fyrstu fimm mínúturn
ar og á því tímabili tókst þeim að
skora, en eftir það voru Akureyr
ingar í svo til látlausri sókn og
áttu hvert tækifærið af öðru
skutu í þverslá og stöng, skutu
framhjá varnarlausu marki Vals
og svona mætti halda áfram að
telja. Það! var Reynir Jónsson
sem skoraði fyrsta mark • leiksins
þegar á annarri mínútu, Hermann
Guhnarsson lék á varnarmenn
Akureyringa og var í opnu færi
er hann féll, og sá ég ekki betur
en honum væri brugðið, en þar
sem hann lá tókst honum að ýta
knettinum fyrir fætur Reynis sem
var í opnu færi. Skömmu eftir
þetta tóku Akureyringar öll völd
í sínar hendur, þeir áttu mjög
góða samleikskafla, voru yfirleitt
fljótari á knöttinn og ákveðnari
og þeir Kári Árnason oa Steinerím
ur voru á stundum mjög ágeng
ir við mark Vals, þótt þeim tæki
i ist aldrei að skora. Steingrímur
1 átti skot í þverslá úr þröngu færi
I og rétt á eftir átti Kári skot í
; stöng, og voru Vals menn sann
arlega heppnir að knötturinn
hrökk út, en ekki inn í markið í
það sinn. Er sjö mínútur voru til
háHle'ks var Kári enn ágengur
sieraði í einvígi um knöttinn við
Biörn JúÞ'usson og skoraði ör
uegiega með laglegu iskoti af stuttu
færi.
í síðari hálfleik tókst Akureyr
ingum ekki eins vel upp og í
hinum fyrri, þó áttu þeir annað
EM í frjálsum /Jbróttum
hefst í Búdapest í dag
Áttunda Evrópumeistaramótið í
frjálsum íþróttum hefst í Búda-
pest í dag og lýkur sunnudaginn
4. september. Fyrsta Evrópumótið
var háð í Torino á Ítalíu 1934, en
síðan í París 1938. Árið 1942 féll
mótið niður vegna styrjaldarinn-
ar, en 1946 var Eyrópumótið háð
í Osló og þá sendi ísland 10
keppendur. Gunnar Huseby va;ð
Evrópumeistari í kúluvarpi og
Finnbjörn Þorvaldsson komst í
úrslit í 100 m. hlaupi. Næsta mót
fór fram í Briissel 1950 og þá
hlaut ísland tvo meistara, Gunnar
Huseby í kúluvarpi og orfa Bryn
geirsson í langstökki. Örn Claus-
en varð annar í tugþraut og ýms-
ir fleiri komust í úrslit. 1954 var
mótið í Bern og þá náði Ásmund-
ur Bjarnason lengst íslenzku þátt
takendanna, komst í undanúrslit 1
200 m. hlaupi. Vilhjálmur Einars-
son varð þríðji í þrístökki á næsta
móti, í Stokkhólmi 1958. Hann
varð fimmti á mótinu í Belgrad
1962.
Þrír íslendingar taka þált í mót-
inu að þessu sinni, Valbjörn Þor-
láksson keppir í tugþraut, Jón Þ.
Ólafsson í hástökki og Sigrún
Sæmundsdóttir í fimmtarþraut og
hástökki. Fararstjóri íslenzka
flokksins er Sigurður Júlíusson,
ritari FRÍ, en þjálfari Jóhannes
Sæmundsson.
Allir íslendingarnir keppa á
morgun, Jón þarf að stökkva 2,06
m. í hástökkinu til þess að kom-
ast í úrslitakeppnina, sem háð
verður á fimmtudag.
slagið góðar sóknarlotur og voru
nálægt því að skora, en heppnin
var ekki með þeim, og einnig átti
Sigurður Dagsson sinn þátt í því
að Akureyringum tókst ekki að
skora, með góðri markvörslu og
einu sinni vörðu Valsmenn á línu.
Valsmenn áttu mun betri leik í
síðari hálfleik en í hinum fyrri, og
úttu einnig tækifæiii, þar
af tvö mjög góð og urðu varnar
menn Akureyringa í annað skipt
ið fyrir knettinum, er hann stefndi
í markið, eftir að Hermann hafði
skallað. En síðari hálfleik lauk,
án þess að mark væri skorað og
urðu úrslitin eins og áður greinir
jafntefli, eitt mark gegn einu, en
eftir gangi leiksins hefðu Akur
eyringar verðskuldað sigur með
eins til tveggja marka mun. En tii
þess að sigra í knattspyrnuieik,
þarf að skora mörk, og í því efni
voru báðir aðilar í þetta sinni
mjög mistækir og óheppnir.
Bezti maðurinn í liði Akureyr
inga var Kári Árnason og má
það undrun sæta, að hann skuli
ekki hafa verið valinn í landslið
í sumar. Kári hefur um marigra
ára skeið ver^ð snöggur og
skemmtileeur- leikmaður, leikinn
vel, og virðist mér liann nú hafa
þroskazt mjög. einkum virðist mér
hann nú orðlð hafa mun betra
auga fyrir samieik, og sendingar
hans eru yfirleitt hnitmiðaðar og
auðvelt fvrir samherjana að not
færa sér þær.
Einhver devfð var yfir leik Vals
kannski taugarnar hafi ekki ver
ið upp á það bezta, þá var Her
mann Gunnarsson ekki svídui’ lijá
s.ión, miðað við fyrri leiki. enda
mun hann ekki ganga heiil til
skógar. Sigurður Dagsson var að
mínu viti-bezti leikmaður Vals í
betta sinn. bó hann nálgaðist ekki
að svna sömu snilld og í leiknum
við Bpligíumennina á dögiinum.
Dómari var Magnús Pétnrsson
og not.að' hann flautuna nokknð
í óhófi. ekki sízt þegar bess er
eætt. að leiknrinn var miög nrúð
mannlega leikinn af beggja hálfu.
Valbjörn Þorláksson KR.
Sigurðar Dagsson Val.
KR sigraði -
Þróttur fellur
i II. deild
I gærkvöldi léku Þróttur og KR
;
í I deild á Laugardalsvellinum. KR
sigraði með 5 mörkiun gegn engo
Eyleifur skoraði þrjú mörk, e*
Jón Sigurðsson og Hörður Majrk
an eitt mark hvor, Þróttur hefeor
þar með fallið niður í 2. deild, e$
á þó eftir að leika einn leik víS
Val.
FRAMIÚRSUT12.
DEILD.VANN IBV 2:1
Keflavík — Akranes 4—1
Akureyri — Valur 1—1
KR — Þróttur 5—0
Keflavík 9 5 2 2 19—10 12
Valur 9 5 2 2 19—12 12
KR 9 4 3 2 19-11 19
Akureyri 9 3 4 2 13—15 10
Akranes 9 2 3 4 11—14 7
Þróttur 9 0 3 6 7—26 3
ÞB.ÍR knattspyrnuleikir fóru
fram á íslandsmótinu um síðustu
helgi. Tveir fyrstu-deildar leikir
og einn í annarri deild. Ekki lék
það á tveim tungum, að með engu
minni eftirvæntingu var beðið úr-
slitanna frá annarri deildinni, en
þeirri fyrstu. En þar áttust við
Vestmannaeyingar og Fram, og
var þetta seinni leikur þeirra í
riðlinum. Framarar voru búnir að
sigra á heimavígstöðum Vest-
mannaeyinga, eftir harða baráttu
með 2:1, og gilti nú að sigra aftur,
til að komast í úrslitin í deild-
inni og keppa við Breiðablik um
sætið í 1. deild næsta keppnis-
tímabil. En áður en til þessa
seinni leiks kom, liafði Vikingur
næsta óvænt skotið Frömurum
ref fyrir rass með því að sigra
þá með 1:0 svo að nú dugði Vest-
mannaeyingum jafntefli til að
leika við Breiðablik. Ótvíræður
sigur gilti því fyiúr Fram, annað
dugði ekki, til að fá tækifærið til
,að hefja sig uppúr 2. deildinni.
Ekki entist þessi aðstöðumunur
Vestmannaeyingum til sigurs. Þeir
töpuðu leiknum með sömu marka-
tölu og „heima í Eyjum". Fram
skoraði bæði sín mörk í fyrri hálf
leiknum, og lék þá oft prýðilega,
með stuttum og réttum sending-
um. Kantarnir vel notaðir og góð-
ar sendingar bárust fyrir markið.
Einmitt úr slíkum sendingum
komu bæði mörkin, sem voru
skölluð inn og skoruð lystilega.
Það var Hreinn, sem setti fyrra
markið, er um 10 mín. voru af
leik, en Elmar það síðara er rúm-
ar 10 mín. voru til leikhlés. í
þessum hálfleik bái'u Framarar
verulega af mótherjum sínum um
allan léttleik og hraða. Skotharð-
ir og sparkvissir, öfugt við mót-
herjana, sem vejkuðu á mann,
sem þunglamaleg heild, sterkir
að vísu, enda vel vaxnir úr grasi,
flestir hverjir, en hinsvegar svifa-
seinir og yfirleitt ónákvæmir I
spyrnum sínum. í fyrri hálfleikn-
um náðu Vestmannaeyingar MtÞ
um sem engum tökum á leiknum
og áttu þá' t.d. ekkert skot, sem
svo má kalla, á mark, alian liálf-*
leikfnn, sem mun vera með ein-
dæmum.
Er á leið síðari hálfleikinn náðu
Vestmannaeyingar smám saniáu
frumkvæðinu en Framarar „lin-
uðust upp“ að sama skapi. Á 5.
mín. munaði þó mjóu að Háll-
grími Scheving tækist að aiðca
markatöluna, er miðframvörður-
inn varði allfast skot hans á Mnu.
Loks mínútu síðar kom fyrsta
markskot Vestmannaeyinga frá h.
útverði, en yfir. Er um 15 ml».
voru af leiknum sóttu Vestmanna-
eyingar fast fram og lauk þeirri
sóknarlotu með þrumuskoti h.
innherja og marki. Við markið
færðust Vestmannaeyingar enr> I
aukana bæði í sókn og samleih,
en þrátt fyrir það tókst þeim ekW
að ná jafntefli en leiknum laulc
með sigri Fram 2:1, eins og áður
segir. En það var fyrst og fremst
vörninni að þakka að Fram féfcte
haldið forskotinu, en sterfcaetl
maður hennar og sá sem hvað
eftir annað bjargaði mjög örugg-
Framhald á 15. siðo^
ÍBK sigraöi
ÍA 4 gegn t
' KEFLVÍKINGAR sigruðu Ak-
umesinga í 1. deild á sunniu ag
nieö 4:1 í heldur lélegum l( ik.
Karl Hermannsson átti stórgói un
leik og slcoraöi þrjú mrk J&fl
víkinga. Nánar. um leikinn u
morgun. • ,
30. ágúst 1966 ~ ALÞÝÐUBLAÐIÐ