Alþýðublaðið - 06.09.1966, Qupperneq 11
Akureyri sigraði Akra-
nes auðveldlega 7:2
Akranesi 4. sept. Hdan.
Fyrri hálfleikur.
Akureyringar, sem hingað til
íhafa þó.tt heldur mistækir fyrir
framan markið, gjörsamlega kaf
færðu Akurnesiniga í mörkum á
sunnudaginn.
Unnu þeir leikinn með yfir-
þurðum og skoruðu 7 mörk gegn
2. Akureyringar höfðu mikla yf
irburði I fyrri hálfleik og áttu góð
tækifæri til að skora enn fleiri
mörk. Síðari hálfleikur var mun
jafnari, enda var hann jafn að
markatölu.
Flestir bjuggust við því að Akur
nesirigar mundu reyna að hefna
ófaranna á Akureyri fyrr í sumar
og var því búist við jöfnum leik.
En eins og fyrr segir höfðu Akur
eyrinigar algjöra yfirburði á flest
um sviðum leiksins og voru Akur
nesingar eins og byrjendur á köfl
um.
Á 4. mín. leiksins skorar Skúli
Ágústsson fyrsta mark leiksins, eft
ir góða sendingu frá Steingrími.
Á 10. mín. ná Skagamenn góðri
sókn. Björn Lárusson sendir knött
inn til Haraldar Sturlaugssonar,
sem kemst óvaldaður inn fyrir, en
Samúel markvörður var vel á verði
og bjargar skotinu af miklu ör
yggi. Fimm mín. síðar skorar KJári
Árnason annað mark Akureyringa
af stuttu færi úr þvögu við Akra
nesmarkið.
Á 28. mín. er Valsteinn með
færi, en Samúel markvörður bjarg
aði. Skömmu síðar er dæmd víta
spyrna á Akurnesinga, er Skúla
var brugðið innan vítateigs.
Fannst mér það strangur dómur
hjá Einari Hjartarsyni að dæma
vítaspyrnu á þetta brot. Skúli skor
aði örugglega úr spyrnunni.
Á 28. mii. er Valsteinn með
knöttinn út á vinstri kanti og
leikur upp að endamörkum. Hvort
sem hann ætlaði að gefa knött
inn fyrir eða skjóta þá hafnaði
hann í netinu. Einar sem var væg
ast sagt illa staðsettur gerði til
raun til að verja en án árangurs.
Oig á 39 mín. leikur Kári Árna
son sig frían inn fyrir vörn ÍA
og skorar 5. mark Akureyringa.
Síffari hálfleikur.
Á 5. mín. síðari hálfleiks bæta
Akureyringar 6. markinu við. Kári
Árnason, sem stóð rangstæWur
2 — 3 metra fyrir innan varnar
menn ÍA fékk langa sendingu og
renndi knettinum í netið.
Og á 10. mín. skorar Magnús Jón
atansson fallegasta mark leiksins
Fékk hann knöttinn 'á miðjum
vallarhelmingi Akurnesinga og óð
með hann að vítateig og skaut
þaðan í stöngina og í netið.
Mínútu síðar komast Akurnesing
ar fyrst á blað er Guðjón Guð-
mundsson skorar fyrsta mark
þeirra í leiknum. Var Guðjón með
knöttinn fyrir framan mark Akur
eyringa og skaut á markið en
knötturinn hrökk í varnarmann og
til Guðjóns aftur, sem sendi hann
þá í netið. Á 18. mín. var dæmd
vítaspyrna á Akureyringa, að því
er virtist að tilefnislausu, nema
þá sem uppbót á fyrri vítaspyrn
una. Ríkharður framkvæmdi spym
una og tókst illa upp. Skotið lenti
í nær mitt markið og náði Samúel
að verja með því að reka fótinn
í knöttinn.
Á 32 mín. á Kári fallegan skalla1
undir þverslá og niður á mark
línu, þar sem Einari tókst að
handsama knöttinn. Steingrímur
kemur aðvífandi og spyrnir knett
inum úr höndum hans og í netið,
en dómarinn dæmir aukaspyrnu.
Síðasta mark leiksins skorar svo
Haraldur Sturlaugsson úr góðu
skoti, en hann fékk góða sendingu
út til vinstri frá Ríkharði.
Á 42, mín komst Kári firíf'
innfyrir, en Einar bjargaði með
góðu úthlaupi.
Þannig lauk þessum leik með
yfirburðarsigri Akureyringa 7
mörkum gegn 2, sem mun vera
mesta tap sem Akumesinigar hafa
orðið fyrir í I. deild og einnig er
betta í fyrsta skipti sem þeir tapa
leik fyrir Akureyringum á heima
velli.
Lið Akureyringa er skipað mjög
jöfnum og vel leikandi leikmönn
um, í vörninni bar mest 'á þeim
Samúel markverði sem gerði margt
vel, Jóni Stefánssyni og Magnúsi
Jónatanssyni, í framlínunni bar
mest á Kára Árnasyni, en hann
er mjög fljótur og snöggur leik
maður. Steingrímur, Skúli og Val
sfeinn áttu allir mjög góðan leik
eins og reyndar liðið í heild.
Akurnesingar léku sinn langlé
legasta leik á sumrinu. Á köflum
var erigu líkara en að þeir væru
algjörir byrjendur. Framlínan var
mjög dauf og var það helzt Har
aldur sem barðist og átti beztan
leik. Það var skaði fyrir liðið að
missa Björn Lárusson út af
snemma í fyrri hálfleik, en hann
var meiddur frá leiknum við Kefi
víkinga. Vörnin var mjög opin,
eins oig markatalan segir til um.
Þröstur Stefá^sson vinistri bak
vörður var bezti maðurinn í vörn
inni, en auk hans áttu góðan leik
þeir Helgi Hannesson, og Jón A1
freðsson. Bogi Sigurðsson gat ekki
leikið með vegna veikinda og
veikti það vörnina mikið. Ríkharð
ur var óvenju daufur, enda gekk
hann ekki heill til skógar, þar sem
meiðsli er hann hlaut í leik við
Val há honum ennþá.
Dómari var Einar Hjartarson og
dæmd hann vægast sagt mjög iUa
Voru dómar hans mjög tilviljana
kenndir og var líkara að hann
væri að dæma sinn fyrsta leik, en
að halda upp á 10 ára starfsaf
mæli sem dómari. Vítaspymudóm
ar hans voru mjög vafasamir, sér
stakleiga þó vítaspyrnan á Akur
eyringa, sem var gjörsamlega út
í bláinn. Þá var annar línuvörð
urinn Björn Kristjánsson mjög
slappur. Að sjá t.d. ekki þegar
Kári Árnason stóð rangstæður 2
—3 metrum fyrir innan varnar
menn ÍA þegar knötturinn er send
ur til hans og hann skoraði, hlýt
ur að stafa af því að hann hefur
hreinlega ekki fylgst með því sem
var að gerast á vellinum.
Ilreinn EUiffason skoraffi tvö mörk fynr Fram,
Fram í I. deild - vartn
Breiðablik 3 gegn engu
Samúel varffi vítaiípyrnu Rík-
harðs.
ísafjörður sigraði B-lið KR í
Bikarkeppni KSÍ á laugardag með
2 mörkum gegn 1. Leikurinn fór
fram á Melavellinvim.
FRAM sigraði Breiðablik í 2.
deildarkeppni íslandsmótsins og
leikur í 1. deild næsta keppnis-
tímabil. Leikurinn fór fram á Laug
ardalsvellinum á sunnudaginn var,
í bezta veðri og við rétt sæmilega
aðsókn.
Fram skoraði þrjú mörk gegn
engu. Eitt í fyrri hálfleik.
Þetta var heldur tilþrifalítill leik
ur og bar það ekki með sér, að
hér væri að miklu að keppa. Fátt
var um fína drætti eða skemmti-
leg tilþrif. Ekki varð því samt
leynt að Fram var, þrátt fyrir allt,
betri aðilinn, enda hafa Framarar
af meiru að má í knattspyrnusög-
unni, en mótherjarnir sem enn eru
á nýgræðingsstiginu.
En þrátt fyrir það þó mjög hall-
aði á Breiðablik í fyrri hálfleikn-
um, og þeir ættu þá fárra eða
engra kosta völ, létu mörkin hjá
Fram bíða eftir sér. Það var ekki
fyrr en á 36. mín. að það fyrsta
kom, og úr vítaspyrnu. Manni er
nær að halda að, ef það hefði ekki
borið að með þeim hætti, að þá
hefði það alls ekki komið. Allur
sóknarþungi Fram beindist fram
miðjuna, kantarnir voru sannar-
leg ekki misnotaðir, þangað lagði
boltinn mjög sjaldan leið sína. Af-
leiðingin varð svo sú, sem jafnan
verður, að varnarmenn og mótherj-
ar þjappast hvað fastast inná teig-
inn, og af verður sú stappa, sem
erfitt er að gera góðan rétt úr.
Vissulega áttu Framarar ýms all-
góð tækifæri, svo sem, er skotið
var yfir úr opnu færi, eða bolt-
inn dansaði á línunni eftir horn-
spyrnu. En yfirleitt gekk hvorki
né rak er inn á vítateiginn kom,
bar þvældist hver fyrir öðrum svo
að boltinn hafði enga smugumögu-
leika. Jafn leikvanir menn og skipa
Framliðið hefðu átt að sjá við
þessu, dreifa spilinu og nota út-
herjana og láta þá gæta stöðu sinn
ar, en ekki taka þátt í blindingja-
leiknum á vítateigi. En yfirleitt er
það svo með flesta okkar útherja
að þeir eru göslandi annarsstaðar
en þar sem þeir eiga að vera, sem
og stafar af því að þeir eru ekki
nýttir eins og vera ber. Það er
einkennilegt að okkar lið skuli
ekki geta tekið sér erlendu liðin
sem hafa hér verið í stríðum
straumum í allt sumar, til fyrir-
myndar á þessu sviði, ef svo væri
hefðu þau ekki til einskis komið
hingað.
Þó Fram skoraði tvívegis í síð-
ari hálfleiknum, var sá hluti leiks
ins mun jafnari en sá fyrri, og
Kópavogsmenn sýndu þá betri til-
þrif, áttu rétt laglegar sóknarlotur
oig skot að marki í fáein skipti, þó
ekki dygðu til að skora úr. Það
var Hreinn Elliðason, sem skoraði
bæði mörk Fram með tíu mín-
útna millibili. í fyrra skiptið brun
aði hann fram eftir að hafa lyft
boltanum yfir varnarleikmann,
með skalla, siðan hlaupið í gegn
um vörnina og skoraði örugglega
framhjá úthlaupandi markverði og
hitt gerði hann eftir að boltinn
hrökk til hans úr föstu skoti, sem
markvörðurinn missti frá sér.
í liði Kópavogs voru tveir leik-
menn, sem báru af, markvörður-
inn Logi Kristjánsson, sem oft
varði snilldarlega, svo og miðvöi;ð
urinn Júlíus Júlíusson.
í Framliðinu átti Elmar Geirs-
son ágætan leik og Anton Bjarna-
son í stöðu miðframvarðar, en
hann er á hraðri leið með að verða
okkar bezti miðframvörður, gæt-
inn, djarfur og öruggur. Liðið 4
’.ieild er skipað allvelleikandi lií$s
mönnum, og er það liðið í 2. deild
inni, sem öðru fremur á erindi ,í
1. deildina. ,
Baldur Þórðarson dæmdi leik-
inn og fórst það vel.
Ingvar N. Pálsson, ritari KSÍ
flutti snjalla ræðu að leik lokn-
um og afhenti sigurvegurunum
bikar þann, sem um er keppt.
EB.
WWMWWWWWWWW
FH tekur þátt
í Evrópukeppni
í handknattleik
FH tekur þátt í Evrópu-
bikarkeppni meistaraliða í
handknattleik. Alls verða 21
lið með í keppninni að þessu
sinni, en í jyrra voru þau
19. Sextán lið taka þátt í
sjálfri aðalkeppminni og
þesvegna verða 10 lið að
leika einskonar forleiki. FH
er ekki eitt af þessum lið-
um. Þann 29. nóvember
dregið um það hvaða lið
leika saman í fyrstu um■
ferð.
WMtWHHMMMWmWWH
6. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ IJ.