Alþýðublaðið - 22.09.1966, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 22.09.1966, Blaðsíða 14
Fegurstu garðarnir Á þessu sumri hefur Rotaryklúbb u.rinn Görðum, en félagssvæði hans nær yfir Garðahrepp og Bessastaðahrepp, gengist f.vrir því að veitt væri viðurkenning fyrir fegursta garð á félagssvæði klúbbs ins. Viðurkenningu hlaut garður inn að Faxatúni 21, Garðahreppi en eigendur hans eru hjónin Erna Konráðsdóttir og Sveinbjörn Jónsson. Á fundi klúbbsins mánudaginn 12. sept. s.l. var þeim hjónum afhent viðurkenningarskjal fyrir bezt hirta og fegursta garðinn á félagssvæði klúbbsins sumarið 1966. Þetta er í fyrsta sinn sem slík viðurkenning er veitt á þessu svæði en ætlunin er að halda því áfram og þá jafnfamt ráðgert að veita viðurkenningu fyrir snyrti- legasta bændabýlið á félagssvæð- inu. Það er von forráðamanna klúbbs ins að viðurkenningar sem þessar verði garðeigendum og bændum hvatning til snyrtilegrar umgengni við heimili sín. Leikfanga- happdrætti Thorvaldsensfélagið efnir ^iú í þriðja sinn til hins vinsæla leik fangahappdrættis síns. Hagnaðin um verður varið til fyrirhugaðrar viðbótarbyggingar við Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins við Sunnu torg. Eins og kunnugt er, er mjög aðkallandi að byggja heimili fyr ir böm frá 2—6 ára, sem tekur við börnum frá Vöggustofum bæj arins, þ.e. þeim börnum sem ekki eiga heimili eða foreldra sem geta annazt þau. Thorvaldsensfélagið væntir þess að foreldrar gefi börnum sínum tækifæri til að styrkja gott mál- efni, með því að kaupa happdrætt ismiða. Þeir kosta aðeins 10 kr. og verða fil sölu á Thorvaldsens bazar — í Háskólabíó eftir kl. 4, í Kjörgarði og víðar um bæinn. „Dagur Leifs Eiríkssonar" .- Johnson forseti lýsti því yfir í dag, að 9. október skyldi heita „Dagur Leifs Eiríkssonar". í yfir lýsingu forsetans segir, að Leifur heppni eigi sterk ítök í hjörtum milljóna Bandaríkjamanna af skandinaviskum ættum. Þessi fornu norrænu afrek eru einnig hluti af bandarískum arfi okkar. Það voru nefnilega karl ar og konur af norskum, sænskum og dönskum ættum eða afkom endur þeirra sem fyrst lögðu und ir sig bandarísku slétturnar og lögðu grundvöllinn að hinni miklu jliandbúnaðarframleiðslu, seigir í yfirlýsingu Johnsons forseta. Le!kfélagið Framhald af 3. síðu. Eins og áður er getið, er þetta í annað sinn, sem Christian Lund stjórnar leikriti fyrir Leikfélag Reykjavíkur. Leikmyndateiknar- inn, Nisse Skoog, vinnur aftur á móti i fyrsta sinn fyrir félagið, en hann og Lund eru báðir fast- ráðnir við Borgarleikhúsið í Stokkhólmi. í ráði er, að þeir fé- lagar sjái um uppfærslu á þessu sama leikriti þar. Leikstjórinn, Christian Lund fer þegar utan að lokinni frumsýningu, og á hann að stjórna uppfærslu á Vermlend- ingunum eftir Oxenstjarna. Þá hefur honum og verið boðið til Bremen til þess að sjá um leik- stjórn þar á Þjófum, líkum og fölum konum. Helztu leikendur þessa verks eru þau, Arnar Jónsson, sem leik- ur Alecino, Sigríður Hagalín, sem leikur Beatrica, Brynjólfur Jó- hannesson, sem leikur Pantalone. Aðrir leikendur eru Haraldur Björnsson, Kristín Anna Þórarins- dóttir, Guðmundur Pálsson, Jó- liann Pálsson, Valgerður Dan og Kjartan Ragnarsson. Leikfélagið hefur auk þess tekið upp þá ný- breytni í vetur að ráða aðstoðar- leikstjóra að hverri sýningu. Að þessu sinni var Sigmundur Örn Arngrímsson aðstoðarleikstjóri en jafnframt leikur hann burðarkarla og þjóna og fieiri smáhlutverk. Við leikinn hefur Lilja Hallgríms- son samið dansa, Egill Halldórs- son æfði skylmingar, og Ingibjörg Stefánsdóttir sá um búninga. Hjá Leikfélagi Reykjavíkur verða í vetur 10 fastráðnir leik- arar, auk framkvæmdastjóranna í Iðnó og Tjarnarbæ. Fastráðnir eru því tólf menn; liafa þeir Borgar Garðarson og Bjarni Steingríms- son bætzt í hóp fastráðinna leik- ara. Um næstu sýningar vildi Sveinn Einarsson geta þess, að byrjað væri að æfa Fjalla-Eyvind eftir Jóhann Sigurjónsson, og leika þar aðalhlutverkin, Höllu og Kára, Helga Bachmann og Helgi Skúla- son. Þá kvaðst leikstjóri vonast til þess, að félagið gæti hafið aft- ur sýningar á Dúfnaveizlunni eftir Halldór Laxness, en endursýning- ar á því verki hafa ekki hafizt vegna veikinda eins leikarans. Þor stein Ö. Stephensen. Leikfélagið mun einnig sýna mjög frægt leik- rit, Tangó, eftir pólskan rithöfund, og hefði því verki verið mjög vel tekið í Evrópu. Barnaleikritið yrði væntanlega flutt í Tjarnarbæ um jólaleytið. Afmælissýning væri í vændum í janúar, en þá yrði Leik- félagið sjötugt. Ekki vildi leik- stjóri að svo stöddu skýra frá því hvaða verk yrði þá tekið til sýn- ingar. Loks kvaðst Sveinn Einars- son leikliússtjóri vilja geta þess, að L.R. liefði keypt tvo einþátt- unga eftir Jónas Árnason og yrðu þeir sýndir í vetur. Væri hér um mjög nýstárleg verk að ræða og slægi Jónas Árnason hér á nýja strengi í íslenzkri leikritun. Ein- þáttungar þessir bera nöfnin: Táp og fjör, og Drottins dýrðar koppa- logn. Fjórðungsþing Framhald af 3. síðu. mundsson, sýslumaður á Sauðár- króki. igjaldkeri, Hákon Torfason, bæiarstjóri á Sauðárkróki, vara gjaldkeri, Björn Friðfinnsson ,bæj arstjóri á Húsavík, ritari, Ásgrím ur Hartmannsson, bæjarstjóri í Ó1 afsfirði, vararitari, Magnús E. Guð jónsson, bæjarstjóri á A’kureyri. meðstj. Jóhann Skaftason, sýslu maður Húsavík. Þingið samþykbti allmargar á- lyklanir, vargandi hagsmunamál byggðanna í Norðlendingafjórð- ungi, m.a. varðandi Framkvæmda áætlun Norðurlands, atvinnujöfn unarsjóð, staðsetningu atvinnufyr irtækja og samgöngumál og verða þær ályktanir sendar iblöðum og útvarpi innan skamms. Kanoi Framhald af 1. síðu. cong ætti ekki að eiga í neinum erfiðleikum með að kynna skoðan ir sínar á hugsanlegri friðarráð stefnu. Johnson lét í Ijós ánægju með friðaráskorun Páls páfa og kyaðst vilja gera allt sem í lians valdi stæði til að uppörva hann. Forset inn lagði á það áherzlu að Banda ríkjastjórn vildi taka þátt í hvers konar viðræðum sem „árásarmenn irnir“ hefðu einnig áhuga á að taka þátt í, Við leitum eftir friði sagði hann. Við vildum gjarnan hætta bardögum á morgun. Við kjósum fremur að þessi deila verði leyst með viðræðum en með vopna valdi. En þar til árásaraðilinn fellst á að láta af stefnu sinni og setjast að samningaborði eigum við ekki annarra kosta völ en að verja og vernda frelsisunnandi fólk. Þetta er einmitt það, sem við hyggjumst gera, sagði forsetinn. Aðspurður sagði Johnson, að hann hefði aldrei efast um að Sov étríkin vildu samningaviðræður í Vietnamdeilunni. Ég hef alltaf verið þeirrar iskoðunar, að sovézk ir leiðtogar vilja iheldur samninga viðræður en það, sem nú er að gerast, sagði hann. Reynaud Framhald af 1. síðu. hershöfðingja í stjórn sína 1940 og var stuðningsmaður 5. lýðveld isins. en seinna isnerist hann gegn de Gaulle og gagnrýndi utanríkis stefnu hans, einkum gagnvart NATO. Á árunum fyrir stríð varaði 'hann við þróuninni í Þýzkalandi á sama hátt og Churchill, en fáir tóku mark á viðvörunum hans. Hann varð forsætisráðherra 21. marz 1940 eftir fall Daladieer- stjórnarinnar, en tveimur mánuð um síðar réðust Þjóðverjar inn í Frakkland. Reynaud sagði af sér þegar aðrir ráðherrar í stj óhn hans vildu semja um vopnahlé, og myndaði Pétain þá nýja stjórn Á stríðsárunum var hann í fawga búðum nazista. Hann var aftur kjörinn á þing 1946 sem óháður ,en tapaði þing sætinu fyrir nokkrum árum fyrir gaullista. Hann gegndi ýmsum ráð herraembættum á dögum 4. lýð- veldisins. V©n Hassel Framhald af 1. síðu. baráttuþrek hermannanna. Krafan var borin fram af Helmut Schmidt eftir að von Hassel hafði haldið uppi vörnum fyrir stjórn sína á landvarnaráðuneytinu og neitað að vestur-þýzkir herforingjar reyndu að tryggja sér aukin völd. Schmidt sagði, að mörgum her- mönnum fyndist að þeir störfuðu í her, sehi ekki nyti vinsælda. Nokkrir ungir liðsforingjar tækju æ fjandsamlegri afstöðu gegn lýð- ræðinu. Óánægjan innan herafl- ans væri meiri en nokkru sinni fyrr og um 158 starfsmenn land- varnaráðuneytisins hefðu vald til að segja heraflanum fyrir verkum Allt væri í óvissu, allt frá Star- Kópavogur Börn eða unglingar óskast til að bera Alþýðublaðið til áskrif- enda í Kópavogi. Upplýsingar í síma 40319. Alþýðublaðið. VeiténgahúsiS ASKUR. SUÐURLANDSBRAUT 14 BÝÐURYÐUR MJélkisrís og EViiSk sake SÍMI 38-550. — 14 22. september 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ fighterþotunum til ullarteppanna sem hermennirnir notuðu. (Ein meginástæðan til deilunn- ar milli herforingjanna og hinna borgaralegu yfirmanna þeirra eru hin tíðu slys í flughernum). Erhard kanzlari, sem hélt fyrstu ræðuna, sagði, að landið bæri traust til herafla síns og að vand- inn væri í því fólginn, hvernig efla mætti heraflann og aðlaga hann þjóðfélaginu. von Hassel neitaði því, að herforingjarnir reyndu að binda enda á yfirstjórn stjórnmálamanna yfir heraflanum. Aldrei hefði minnsti efi ríkt um tryggð þeirra við stjórnarskrána og því fjarri, að herforingjarnir sæktust eftir völdum. Deilan hefði engin áhrif á skuldbindingar Vest ur-Þjóðverja gagnvart NATO eða vilja þeirra til að varðveita frið og öryggi með því að halda uppi herafla, sem gerði það að verkum að hugsanlegir fjandmenn hikuðu við að gera árás. Skipaður lögreglu- stjóri á Bolungarvík Rvík,—KE. Hafsteinn Ilafsteinsson lögfræð- ingur, var hinn 25. ágúst skip- aður til að vera lögreglustjóri í Bolungarvík frá 1. september að telja. Starfinu gegndi áður Jón G. Tómasson, lögfræðingur. Sjónvarpið Framhald af 1. síðu. Þá kynntu dagskrárlið’ina tvær myndarlegar stúlkur. Óska má sjónvarpinu til ham ingju með þessi tæknilegu mis tök, því undirtektir áhorfenda lofa svo sannarlega góðu um væntanlega starfsemi þess. Orðsending Um þessar mundir eru mikl ir erfiðleikar í sambandi við dreifingu blaðsins til áskrif- enda í Reykjavík. Mörg börn, sem starfað liafa við dreif- ingu hættu þegar skólar hóf- ust. Unnið er að því að tryggja að blaðið komist skilvíslega til allra kaupenda og verður þess vonandi ekki langt að bíða, en á meðan biðjuni við kaupendur að sýna nokkra biðlund, þótt einhver mis- 1 brestur kunni að verða á nú nokkra næstu daga. Kaupum hreinai* tuskur. Bólsturiójan Freyjugötu 14.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.