Alþýðublaðið - 12.10.1966, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 12.10.1966, Blaðsíða 7
Samþykktir Sjómanna- sambandsins 1. Urn byggingu síldarverk- smiðja. 5. þing Sjómannasambands ís- lands bendir á, að það hefur nú sýnt sig í reynd, a'ð það var rétt stefna er síðasta þing markaði, að hagkvœmt væri að leysa hina svokölluðu veiðitoppa á síldveið- -unum með aukningu þróarrýmis verksmiðjanna og hafa sérstök skip til síldarflutninga í verk- smiðjur fjarri síldarmiðunum, í stað þess að byggja sífelt fleiri og fleiri verksmiðjur. Þingið harmar því, að ríkis- valdið skyldi heimila að byggja þær tvær síldarverksmiðjur, sem nú eru í byggingu, þrátt fyrir eindregin tilmæli samtaka sjó- manna, Sjómannasambands ís- lands og Farmanna- og fiski- mannasambands íslands er send voru sjávarútvegsmálaráðuneyt- inu á sl. vetri, um að ekki yrði leyft að byggja fleiri verksmiðjur í bili. Þingið bendir á þá staðreynd, að verksmiðjukosturinn er orðinn slíkur, að þrátt fyrir metveiði í sumar hefur það tæplega átt sér stað að skip hafi orðið að bíða löndunar og að mikið vantar á, að verksmiðjurnar fyrir norðan og austan hafi fengið nægilegt síld- armagn til bræðslu. Þingið beinir því þeim ein- dregnu tilmælum til rikisstjórn- arinnar, að ekki verði leyft að byggja fleiri síldar- eða mjöl- verksmiðjur nema í samráði við saiptök sjómanna, en á þeim og útvegsmönnum lendir áð greiða verksmiðjurnar þótt fé til fram- kvæmdanna sé lagt fram af öðrum aðilum í byrjun. 2. Um þátakjarasamninga. Þingið telur að ekki verði kom- ist hjá því, að endurskoða gild- andi bátakjarasamninga og fel- ur því væntanlegri sambands- stjórn að kalla saman til ráð- stefnu stjórnar óg eða íulltrúa þeirra félaga, sem aðilar eru að samningunum. Þingið vill í því sambandi benda á eftirfarandi at- riði er það telur sérstaklega þörf breytinga: 1. Að hlutaskiptin verði at- huguð og þá sérstaklega á bát- um af stærðinni 30—50 smálestir. 2. að krafan um frítt fæði skip verja á bátum verði borin fram og henni fylgt fast eftir, $. að kauptrygging hækki. 4. að slysatrygging verði hækk uð að mun og verði jafnhá trygg ing fyrir alla sjómenn, burtséð frá því hvaða þátt sjómennsku þeir stunda. 5. að ákvæði um sumarleyfi sUdarsjómanna verði komið inn f stldveiðisamninga í svipuðu forml pg um gat í orðsendingu Sjómannasambandsins frá 19. maí 1965. 6. að hlutaskipti verði hækkuð til áhafnar á þeim síldveiðibátum er ekki hafa aflað sér hinna nýju kraftblakka og nýjustu síldar- leitartækja. I 3. Um aukimi skatta- og út- svarsfrádrátt fyrir fiskimenn : Þingið felur væntanlegri stjórn sambandsins enn á ný að vinna að því að fiskimenn fái aukinn frádrátt við álagningu skatts og útsvars og bendir á, í því sam- bandi, að eðlilegast sé, að skatt- ar verði teknir jafnóðum af tekj- um, og er melri nauðsyn á því fyrir fiskimenn en aðrar atvinnu stéttir, þar sem tekjur þeirra geta verið mjög misjafnar frá ári til árs. 4. Um netafjölda í sjó. Þingið telur að nauðsynlegt sé, að reynt sé með öllum tiltækum ráðum, að koma, í veg fyrir að bátar séu með fleirj net í sjó en heimilt er skv. gildandi reglu- gerð. Felur því þingið væntanlegri sambandsstjórn, að beita sér fyr- ir því að reglugerðin sé endur- bætt og gerð skýrari og ákveðn- ari en hún er varðandi heimil- aðan netafjölda og ákvæði sett i regiugerðina um ráðstefnu um bátakjörin að reynt verði að koma í samninga strangari viður- lögum í kjarasamninga, t. d. með upptöku afla úr veiðiferð til við- komandi sjómannafélags, ef út af er brugðið. 5. Um ferskfiskmat 5. þing S. S. í, ítrekar sam- þykktir síðasta þings sambands- ins um kröfu um að matið sé framkvæmt um leið og fiski er landað og gerir kröfu til að mat- ið sé framkvæmt í affermingar- höfp en sé það ekki gerf ,telur þingið að sjómenn eigi að gera kröfu til að allur aflinn sé reikn- aður á verði 1. flokks. Þá telur þingið nauðsynlegt að sami matsmaður sé ekki lengi í sömu verstöð heldur sé þeirn skipf frá einni. verstöð til ann- arrar eftir vissan tíma eftir því sem unnt er. 6. Um viðgerðármenn síldar- leitartækja. I Þingið felur væntanlegri sam- bandsstjórn að vinna að því við sjávarútvegsmálaráðuneytið og aðra aðila, að á síldarleitarskip- unum svo og síldarflutningaskip- unum verði staðsettir menn er geti annazt viðgerðir á síldarleit artækjum svo og öðrum nákvæm- um tækjum veiðiskipanna svo þau þurfi ekki að sigla til hafn- ar, oft langar leiðir, til að ieftá viðgerða og það jafnvel þótt um smábilanir sé að ræða. j 7. Um sölu á síld miöað við fitu. , 5. þing Sjómannasambands ís- lands telur nauðsynlegt að at- hugað sé hvort- efcki sé rétt, að samræma. verð á. síld til bræðslu Framhald á 10. síð*, 12. október 196S - AtÞÝÐUBLAÐIÐ J • 9

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.