Alþýðublaðið - 12.10.1966, Blaðsíða 8
VETRAR
".•7;
V-
BmMbI
Hérna sjáið þlð failega vetrarkápu úr tweedefni. Skinnkraffinn er
stór off er úr sklnni þvottabjarnar. Kápan er hnýtt meS mjóu belti.
KONAN & HEIMILIÐ
Ritstióri: Anna Kristín
$ 12. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐLÐ
Það er greinilegt að skinnin
ætla að halda sínum vinsældum
og eru þau sízt minna notuð í
vetrarfatnaðinn nú en í fyrra. —■
Skinnkragarnir á kápunum liafa
jafnvel stækkað og flestar eru
vetrarkápurnar með éinhvers
konar skinnum. ‘ Mikið er um
skinnkápur úr ýmsum skínnum,
mismunandi dýrum, og skinn-
hetturnar hlýlegu og klæðilegu
á að nota í vetrarkuldunum. —
Hérna koma nokkrar myndir af
vetrarkápunum.
A myndinn sést vefstóllinn, sem vefur undirstöður roggvarfeldanna. Kaia Harris situr við vefstólinn.
Hinir vinsælu rðggvafeldir
<i-------------------------------
Off þessi er í ákaflega falleffri
skinnkápu úr hlébarðaskinni. Við
hana notar hún skinnhcttu.
Venjulega er álitið, að röggvar-
feldirnir vinsælu scu norrænir
að uppruna. Það er þó aðeins
hálfur sannleikur, því að saga
þessara felda nær mörg hundruð
ár aftur í tímann til Kurna-þjóð-
flokksins í írak, þar senj áður var
Mesopotamía. í héraðinu Mousa-
ib E1 Kehbir, þar sem árnar Euf-
rat og Tigris mætast búa þjóð-
flokkar, sem hnýta sams konar
feldi og þeir hafa gert um alda-
raðir, en þeir eru eins og nor-
rænu röggvarfeldirnir og með sí-
gildum mynztrum. Ef til vill hafa
rússneskir kaupmenn, sem áður
fyrr heimsóttu héruðin í írak,
flutt með sér feldi þessa og á
þann hátt hafi þeir komizt til
Norðurlanda.
Upphaflega var röggvarfeldur
notaður sem rúmteppi yfir vetrar-
tímann.
Á Norðurlöndum hafa röggvar-
feldir verið ofnir á heimilum um
aldaraðir og hafa Finnar sérstak-
lega skarað fram úr í gerð þeirra.
En eins og með ýmsa hluti, þá
hafa nú verksmiðjur tekið til við
framlelðslu þeirra. Mikið er þó
um, að húsmæður noti frístundir
sínar til þess að hnýta- fallegan
röggvarfeld til að skreyta með
stofur sínar, og nú eru sauma-
klúbbar að koma saman að nýju,
verða efalaust margir fallegir
röggvarfeldir hnýttir í vetur.
En hvernig á svo að hnýta feld-
ina? Hannyrðaverzlanir, sem selja
efni í röggvarfeldi munu veita
leiðbeiningar um hvernig eigi að
vinna þá og einnig eru haldin
námskeið þar, sem kenndur er
röggvarvefnaður.
Viö höfðum tal af frú Sigrúnu
Jónsdóttur, sem heldur slík nám-
skeið og spurðum hana m. a.:
— Er erfitt að hnýta röggvar-
feldi?
—Nei, það get ég ekki sagt.
Erfiðleikarnir eru fólgnir í því
að gera ákvörðun um mynztrið
og að raða litunum.
— Og þér kennið gerð röggv-
arfelda á námskeiðum.
— Já, ég er með námskeið
allan veturinn, . og í verzlun
Framhald á 14. Áðo.
Frð Sigrún Jónsdóttir sýnir okkur hér röggvarfeld, ffarniS eff
mynsttur.