Alþýðublaðið - 12.10.1966, Page 14
Bylting í
flokki Titós
KASTLJÓS
Róttækar breytingar hafa verið
gerðar í Kommúnistaflokki Júgó
slavíu, róttækari en nokkur annar
kommúnistaflokkur hefur fram-
fkvæmt til þessa.
Breytlngarnar voru staðfestar á
fimmta allsherjarfundi miðstjófh-
ar flokksins fyrir skemmstu. Hér
var um að ræða framhald þeirra
rejkningsskila við Alexander
Ránkovie, hinn gamla vin Titos
sem um lattgt skeið gekk næst
ur' honum að völdum, er fram
fóru á eynni Brioni 2. júlí. Ranko
vic var vikið úr embætti forsætis
ráðherra og klíka sú, sem fylgdi
honum að málum, gerð 'áhrifalaus.
Fyrir nokkrum dögum var honum
síðan vikið úr flokknum, og var
•íér um að ræða lið í þeim miklu
umbótum, sem hafnar eru.
Umbæturnar, sem miðstjórnin
eamþykkti á fundi sínum á dög
unum, eru þessar:
1. Stjórnmálanefndin, sem öllu
Iiefur ráðið til þessa verður lögð
niður.
2. Embætti aðalritara, sem Tito
•narskálkur hefur gegnt til þessa
Verður einnig lagt niður. Hins veg
•ar verða engar breytingar á völd
um Titos í framtíðinni, og fær
liann aðeins nýjan fitil.t Formað
Ur forsætisnefndar fiokksins, en
sú nefnd er ný af nálinni.
3. Völd miðstjórnarinnar verða
aukin bæði í landinu isem heild-
og í flokksdeildum hinna einstöku
lýðvelda sambandslýðveldisins.
4. Hafin verður þróun, sem hafa
tnun það í för með sér að áhrif
flokksins á embættismannastjórn
ina verða að engu.
★ GEGN RÓGI OG
VALDAGRÆÐGI.
Sérstök nefnd á vegum flokks
íns undir forsæti Mihalko Todoro
vich, sem tók við starfi Ranko
vics í framkvæmdastjórn flokksins
3
og verða verkefni þeirra gerólík
Forsætisnefndin verður fyrst og
fremst ráðgefandi nefnd, sem mót
ar en framkvæmir ekki stefnuna.
Framkvæmdanefndin á aftur á
móti, eins og nafnið gefur til kynna
að tryggja það, að ákvörðunum mið
stjórnarinnar sé framfylgt. Mið-
istjórnin skipar mdðlimi beglgja
nefnda, og eru þær ,ábyrgar gagn
vart henni. Enginn má eiga sæti í
báðum nefndum samtímis.
í stað embættis aðalritara hefur
verið stofnað embætti forseta
kommúnistaflokksins, og á hann
að gegna því hlutverki að sam-
ræma störf hinna ýmsu flokks
nefnda og flokksdeilda. Það er
þetta embætti, sem Tito nú gegnir
auk forsetaembættisins, og hann
hefur fundið sig knúinn til að
sameina mikið af völdunum hjá
sér, en það sýnir að deilunni í Júgó
slayíu er ekki lokið.
Tito marskálkur lét skoðanir sín
ar óhikað í ljós á fundi miðstjórn
arinnar. Hann sagði að baktjalda
makk væri ekki úr sögunni, þótt
Rankovic hefði verið vikið frá.
Aðrir menn hu'gsuðu og breyttu
eins og hann, og jafnvel í hópi
þeirra, sem hlotið hefðu refsingu
væru margir, sem héldu áfram
undirróðurstarfsemi sinni.
Um brottvikningu Rankovie og
baksvið umbótanlia í flokknum
sagði Tito: Ég komst að raun um
í sumar, hefur la'gt drög að þess
um umbótum. Eins og Tito hefur
margoft lagt á'herzlu á í ræðum
á fundi miðstjórnarinnar, er meg-
inmarkmið umbótanna að koma í
veg fyrir að einn einstakur flokks
leiðtogi eða flokksklíka hrifsi til
sín vöidin í framtíðinni.
Tvær nefndir taka við störfum
núverandi stjórnmálanefndar, for
sætisnefnd og framkvæmdanefnd
að við áttum það á hættu að lenda
4 12. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
í miklum erfiðleikum. Persónu-
dýrkun og stofnun klikuhópa áttu
sér stað fyrir forgöngu Rankovic
Þess vegna komst ég að þeirri
niðurstöðu, að gagngerar umbæt
ur í flokknum væru nauðsynleg
ar. Tito bætti því við, að rógur
væri alvarlegasta hættan, sem ógn
aði flokknum og hinu sósíalistíska
samfélagi.
★ SUNDRUÐ ÞJÓÐ
Tekst að útrýma rógnum? Tekst
að vfirstíga klofninginn? Tekst að
varðveita einingu ríkisins á sama
tíma og flokkur og ríki eru aðskil
in?
Frjálslyndir menn í flokknum
t'elja umbætur þær, sem samþykkt
ar hafa verið, marka upphaf þróun
ar í átt til aukins lýðræðis. Dr.
Bakarich, flokksleiðtogi í Króatíu
segir „að þetta kunn aðeins að
vera fyrsta skrefið." Forsætisráð
'herra Serbíu, Stamenkovich, sagði
nýlega: — Við getum rætt um
þetta í 100 ár en við getum ekki
talað um raunverulega aukna á-
byrgð hinna ýmsu flokksnefnda
fyrr en flokksþingin fara að velja
leiðtoga sína í leynilegri atkvæða
greiðslu og fullu frelsi.
Að ýmsu leyti eru flokksumbæt
urnar „of litlar og of síðbúnar."
Todorovich hefur gefið í skyn, að
flokksforystan hafi orðið fyrir
miklum þrýstingi af hálfu Rússa
og Austur Þjóðverja. Heimsókn
Bresjnevs í Júgóslavíu fyrir
skömmu þjónaði sennilega fyrst og
fremst þeim tilgangi að vara Tito
við því að „láta kommúnismann
verða að engu.“
En þær umbætur sem nú eru
framkvæmdar á grundvelli aukins
lýðræðis innan flokksins, aukinn
ar áherzlu á völd ríkjasambands
ins í hinu sundraða landi og vax
andi aðskilnaði flokks og rfkis,
kunna að auka á sjálfsstæðisvið
leitni hinna ólíku þjóða, sem land
ið byggja í stað þess að efla á-
hrif flokksins. En á bak við allar
persónulegar, pólitískar og grund
vallarlegar deilur í Júgóslavíu
má greina einmitt þessar þjóðlegu
klofningstilhneigingar.
Niðurstaðan getur orðið sú, að
•smátt og smátt rísi upp sex flokk
ar en ekki einn, flokkar, sem
bera svip af ólíkum óskum, vonum
og kröfum, sem dæmigerðar eru
fyrir hinar sex þjóðir landsins.
Hin mikla herferð gegn leyni
lögreglunni, sem Rankovic gerði
að tæki sínu í valdabaráttunni —
700 starfsmenn hennar hafa verið
fangelsaðir og enn fleiri reknir
— merkir, að hættunni er bægt
frá, en um leið að eftirlitskerfið
innan sambandsríkisins veikist. Nú
verður einnig dregið úr völdum
flokksins. Eini valdaaðilinn, sem
'halda mun áhrifum sínum nokkurn
veginn óskertum o g kemst hjá inn
byrðis sundrungu, verður herinn
Ef ekkert lát verður á rógnum og
hin þjóðernislega sundrung heldur
áfram virðist herinn, sem enn held
ur tryggð við Tito, vera eina valda
tækið, sem máli skiptir. En Tito er
74 ára gamall. Hvað gerist þegar
hann fellur frá?
Eyjtffur K. Sigurjónsson,
URfliur endurakoðandl.
Flókagötu 63. - 8fml 17963.
Röggvafeldír
Framhald úr opnu.
minni, Kirkjumunir, eru seldar
undirstöður (botnar) og gefst
kaupendum þeirra kostur á að
koma í tvo tíma á námskeiðun-
um og læra að hnýta feldina.
— Og eru ekki undirstöðurnar
ofnar hérna hjá ykkur?
— Jú, þær eru handofnar með
sérstakri aðferð, þannig að þegar
hnýtt er, kemur hnúturinn ekki
í gegn eins og í flestum öðrum
undirstöðum. Feldirnir eru bæði
fljótunnari þannig og mikið sterk-
ari. Yið vefjum þessar undirstöð-
ur hér og mér til aðstoðar hef
ég finnskan aðstoðarkennara,
Kaiu Harris.
— Og gerið þér sjálfar mynztr
in?
— Já, við gerum þau. Það er
um mjög mörg mynztur að ræða
og hvert mynztur á aðeins að
nota einu sinni.
Er ekki töluvert seinlegt að
hnýta röggvafeldina?
— Ég vil einmitt segja, að
það sé mjög fljótlegt miðað við
aðra handavinnu. Það hefur kom-
ið fyrir, að konur, sem hafa ver-
ið á sex vikna námskeiðum hjá
mér hafa hnýtt á þeim tíma þrjú
teppi, eitt stórt og tvö minni. En
það er að sjálfsögðu misjafnt
eftir einstaklingum og aðstæðum
heima fyrir.
— Hvað eru margir tímar í
viku?
— Það eru tveir tímar í viku,
eitt kvöld.
— Og er ekki mjög mikil að-
sókn að námskeiðunum?
— Jú, ákaflega mikil. Strax í
ágúst var farið að hringja og
leita upplýsinga um, hvenær
næsta námskeið byrjaði, en vegna
anna og húsnæðisvandræða hef
ég ekki getað byrjað ennþá.
Hingað til hef ég haft námskeiðin
á heimili mínu, en hef nú von
um góðar kennslustofur og fyrir-
hugað er að námskeiðin hefjist
um 20. októbpr næstkomandi.
50 ára
Framhald af 3. síðu.
Dansk-íslenzka félagið er stofn
að í Kaupmannahöfn 1916. Var fé
lagið -fyrstu árin eingöngu starf
rækt í Kaupmannahöfn. Var það
Lýðháskólafólk í Danmörku sem
sá um stofnun þess og var helzta
markmiðið að auka skilning og
samúð Dana óg íslendinga. Hefur
félagið gefið út all mikið af bók
um og tímaritum, svo og sýnt kvik
myndir og haldið fyrirlestra til
kynningar á sögum þjóðanna. Veit
ir félalgsskapurinn verðlaun fyrir
beztan námsárangur í dönsku í
helztu skólum hérlendis.
Stjórn félagsins skipa hér á
landi. Dr. Friðrik Einarsson, for-
maður, Stefanía. Guðmundsdóttir.
ritari og Haraldur Ágústsson gjald
keri. Einnig eiga Ludvig Storr,
Erla Geirsdóttir, Jóhannes Snorra
son og Ágúst Bjarnason sæti í
stjórninni. Félagsmenn á íslandi
eru yfir 400 Einar Neulengracht
"er formaður þess í Kaupmanna-
höfn og Bodil Bergtrup er eini
heiðursfélaginn.
*