Tölvumál - 01.12.1986, Síða 25
Lækkandi söluverð
Þvi var spáð síðastliðið vor að söluverð tölva,
sem keppa við IBM PC færi niður i 1000 dollara nú
i haust. Þetta hefur gengið eftir og raunar
betur. Skráð verð tölva frá Hyundai er nú komið
niður i 1000 dollara. Það jafngildir þvi hins
vegar að unnt er að kaupa þær fyrir enn lægri
fjárhæð. Þetta verð á augsýnilega eftir að lækka
enn. Timaritið International Business Week heldur
þvi fram i greinargóðri úttekt i sumar að
einstaklingar, sem kunna til verka geti sett
saman tölvu, sem er hliðstæð IBM PC fyrir liðlega
300 dollara. Allir hlutar i hana séu auk þess
fáanlegir á almennum markaði.
í mars var skráð verð IBM á þessari tölvu um 1600
dollarar og frændur hennar frá Asiu voru seldir
fyrir 1300 dollara.
í ágúst settu Formósumenn tölvu á markaðinn, sem
keppa á við IBM PC/AT. Verð hennar er tæplega
1700 dollarar. í raun átti hún að vera dýrari,
en sökum vaxandi samkeppni var hún lækkuð um 15%.
Þessi lágu verð hafa skilað árangri. Sem dæmi um
vaxandi markaðshlutdeild má nefna að bandariska
fyrirtækið Leading Edge Products, sem selur
tölvur frá Daewoo i Kóreu, ræður nú 5% af markaði
fyrir IBM PC tölvur i Bandarikjunum.
Erfiðir tímar hjá IBM
Áform IBM um sölu einmenningstölva árið 1986 hafa
augljóslega kollvarpast við þessa sókn Asiubú-
anna. Fyrirtækið mun tapa markaðshlutdeild og
beinlinis hafa minni tekjur af sölu einmennings-
tölva á þessu ári en i fyrra. Enn er ekki
sjáanlegt að blái risinn eigi svar við þeim
breyttu aðstæðum, sem hafa skapast.
Þá hlýtur það að vekja áhyggjur hjá forsvars-
mönnum fyrirtækisins að Asiubúarnir hafi áform um
að snúa sér næst að hinum öflugri gerðum einmenn-
ingstölvanna. Ef svo fer að þeim verður álika
vel ágengt á þeim markaði og þegar um kraftmeiri
tölvurnar er að ræða, fer mjög að hitna undir
SYSTEM/36 gerðinni.
21