Alþýðublaðið - 20.10.1966, Blaðsíða 11
"
■
Htgfl
l=Ritstjori
Fimleikaflokkur frá
Ollerup sýrtir hér
Innanhússæfingar Frjáls-
Iþróttadeildar KR að hefjast
Frjálsíþróttadeild I<R hefur nú
ákveðið æfingatíma innanhúss í
vetur og fara þeir hér á eftir:
Mánudagar:
Kl. 8 — 9 í ÍÞróttahúsi Iláskólans
Þrekþjálfun karla (Benedikt Jak
opsson) .
Kl. 9 —10 í Íþróttahíisi Háskólans
Þrekþcálfun kvenna (Benedikt Jak
obsson).
Miffvikudagar:
Kl., 6,55 — 4,45 í KR h'eimiliinu
tækniþjálfun karla (Benedikt Jak
obssoin)j
Föstudagar:
Kl. 8 — 9 í íþróttahúsi Háskólans
Þrekþjálfun karla (Benedikt Jak
obsson).
Kl. 9 —10 í íþróttalnisi Háskólans
Þrekþjálfun kvenna (Benedikt Jok
obsson).
Laugardagar:
Kl. 1,20— 3 í KR heimilinu Frjáls
s|þróttir fyrir drengi og sveinai
Kl. 3,50 — 5,30 í íþróttahöllinni í
(Einar Gíslason).
Eaugardal: tækniþjálfun (Jóhann
es Sæmundsson).
Þeir sem hlaupa úti eru bcffnir
aff hafa samráff viff þjálfarana,
hvaff snertir æfingatíma. Æfing
ar í íþróttahúsi Háskólans og
KR-heimiIinu eru þegar liafnar, en
æfingar í íþróttahöllinni hefjast
laugardaginn 22. október.
Affalfundur:
Affalfundur Frjálsíþróttadeildar
KR verffur haldinn í KR heiinilii’n
fimmtudaginn 27. okt. 19GG kl. 8,30
eftir hádegi. — Stjórn FKR.
20. október 1966 - ALÞÝÐUBLAÐÝÐ
Frá sýningu flokksins í USA.
Eftir helgina eða á þriðjudags
morgun er væntanlegur hingað til!
lands fimleikaflokkur frá hinum'
þekkta lýffháskóla í Ollerup í Dan 1
mörku. Flokkur þessi hefur ver1
ið 'á sýningarferðalagi í Bandaríkj J
unum í tvo og hálfan mánuð og er
á heimleið.
Flokkurinn efnir til sýninga hér,
sú fyrsta verður í íþrótta- og sýn
ingarhöllinni í Laugardal á mið
vikudagskvöld kl. 20.15.
Þorsteinn Einarsson íþróttafull
trúi og Jörgen C. Tygesen kynntu
skólann fyrir fréttamönnum í gær,
en 'hér á eftir fara upplýsingar um
þennan merka skóla og starfsemi
íhans:
„íþróttalýðskólinn í Ollerup í
Danmörku var stofnaður af Níels
Bukh 1920. Níels Bukh er ekki
aðeins þekktur og skóli hans í
Danmörku, heldur um allan heim
því að það var venja Níels Bukh að
ferðast með úrvalshóp leikfimis
flokka, bæði karla og kvenna.um
allan heim. Líkamsmennt var hon
um hugsjón, sem hann vildi kynna
öðrum þjóðum. Hann vildi einnig
kynna danska menningu og danska
líkamsrækt.. Eftir að Niels Bukh
dó 1950 hefur forstaða skólans ver
ið í höndum Arne Mortensen, sem
frá því að hann var ungur hefur
unnið við hlið Níels Bukh og hef
ur nú; frá því að hann tók við
skólanum haldið áfram að feta
í fótspor fyrirrennara síns og hald
ið merki Níils Bukh og leikfimi
hans'hátt í heimalandi sínu og einn
ig haldið áfram venju þeirri, að
ferðast með úrvalsflokka til út
landa.
Stöðugt er unnið að stækkun
skólans með því að nýjar bygging
ar bætast við Þessar byggingar
hafa yfirleitt verið byggðar af
nemendunum sjálfum, bæði með
þeirra eigin handafli og svo með
framlagi þeirra i peningum.
Á hverju ári sækja skólann nem
endur frá Danmörku og víða að úr
heiminum, svo að skólinn á hverj
um tíma er of lítill. Starfsári skól
ans er skipt í tvö tímabih vetrar
tímabil og sumartímabil. Þeir sem
eru á þessum námskeiðiun koma
oft aftur til skólans til þess að
læra betur leikfimi og einnig að
gera sig hæfari í leikfimi, Vegna
þessa ræður skólinn á hverju ári
yfir stórum hópum, bæði karla
og kvenna, sem er úrvalsfólk í leik
fimi. Úr hópi þessa fólks hafa svo
skólastjórar1 skólans á hverjum
tíma valið sér úrvalshópa, sem
þeir hafa svo ferðast með til út-
landa.
Takmark skólans í öllu starfi
hans er fyrst og fremst að leggja
áherzlu á, að efla vilja einstakl
in'gsins og löngun hans til þess að
láta eitthvað gott af sér leiða. í
þessu sambandi er það ekki megin
atriði að viðkomandi nemandi sé
gæddur miklum 'hæfileikum. Tak
mark skólans er fyrst og fremst
að þroska með hverjum nemanda
þá hæfileika, sem hann býr yfir
og þá ekki sízt að efla vilja, mátt
og hug þeirra, sem minna mega
sína hvað varðar hæfileika.
Úrvalshópm’ skólans, sem n.k.
þriðjudag 25. okt. ’kemur hingað
til Reykjavíkur frá New York, er
skipaður 14 karlmönnum og stjórn
endur hópsins er skólastjórinn
Arne Mortenssen og leikfimikenn
arinn Valdemar Hansteen.
Þeim til aðstoðar er kona Valde
mar Hansteen's, sem er af norsk
um ættum og hefur fyrir nokkrum
árum dvalið hér á íslandi. Allir
leikfimimennirnir eru vinnandi við
einhver störf í sveitum. Þeir hafa
nú í tvo og h'álfan mánuð. verið
burtu frá störfum sínum og hafa
Þess vegna sleppt launum og
meira að segja hafa þeir orðið að
borga nokkurt þátttökugjald til
þess að taka þátt £ þeirri för um
Bandaríkin, sem nú er bráðum á
enda. AUir eru þessr leikfimi-
menn svokaUaðir leíðbeinecndur,
'hafa lokið námskeiði við íþrótta
lýðskólann í Ollerup, sem' miðar
að því að þeir geti sagt tU í félög
um i leikfimi og allt þetta er mið
Framhald á 14. síffu.
Frá sýningu Ollerup flokksins.
★ TYRKLAND sigraði Sovétríkin
í knattspyrnu á Lenin leikvang-
inum í Moskvu á sunnudag með
2—0 (1-0).
★ HVIDOVRE tryggði sér Dan-
merkurmeistartitilinn í knatt-
spyrnu á sunnudag með jajntefli
við Frem 0—0, en Frem Var helzti
lccppmautur Hvidovre um titilinn.
Þetta er í jyrsta sinn, sem Hvid-
ovre hlýtur hinn eftirsótta titil.
Þess má geta, að Kaupmannáhafn-
arlið hefur ekki hlotið Danmerk-
urmeistaratitilinn síðan 1953.