Alþýðublaðið - 20.10.1966, Page 15
£B
*
IRAN
Með tilliti til þess, að hin ó-
þjóðlega einræ'ðisstjórn írans hef
ur raunverulega fótum troðið allt
frelsi einstaklinga og félaga—_
Með tilliti til þess, að þessi ó-
lýðræðislega ríkisstjórn, sem
studd er af heimsveldissinnum,
hefur ofsótt af miklum hrottaskap
hina lýðræðislegu stjórnarand-
stöðu í íran —.
Ályktanir
gerðar á
8. þingi
Alþjóðasam-
bands jafn-
aðarmanna
Með tilliti til þess að leiðtogar
jafnaðarmanna í íran og sérstak-
lega Khalil Maleki hafa verið
liandteknir og orðið að þola órétt-
láta og þunga dóma, sem her-
dómstóiar í Teheran hafa kveðið
upp —.
Með tilliti til þess, að pólitísk
réttarhöld hafa verið haldin fyrir
herdómstólum bak við luktar dyr
og þessu er enn fram haldið og
að í íran eru mannréttindi fótum
troðin og lýðræðið bælt algjörlega
niður — mótmælir áttunda þing
Alþjóðasambands ungra jafnaðar-
manna kröftuglega handtökum og
fangelsunum lýðræðislega kjör-
inna fulltrúa stjórnarandstöðunn-
ar og sérstaklega fangelsun leið-
toga Jafnaðarmannaflokks írans.
Þingið krefst þess, að pólitísk-
um föngum verði veittur réttur
til að um mál þeirra verði fjallað
af borgaralegum dómstólum en
ekki herrétti og að réttarhöldin
fari fram í áheyrn alþjóðlegrar
nefndar. íran ætti að ganga úr
öllum hernaðarbandalögum og lög-
leiða félaga- og fundafrelsi. Kúrd-
ar og Tyrkir, sem búsettir eru í
Iran, eiga að njóta almennra
mannréttinda.
Þingið vottar hinni lýðræðislegu
stjórnarandstöðu stuðning sinn og
þá sérstaklega jafnaðarmönnum í
íran og skorar á samtök jafnaðar-
manna og alla lýðræðissinna að
veita írönsku þjóðfylkingunni og
jafnaðarmannaflokknum lið<-
sinni.
Páil fyrrum Grikkjakonungur og sonur hans, Konstantín, núverandi
konungur.- ■
HMi
Keisararhöllin í Teheran.
GRIKKLAND
Þing Alþjóðasambands ungra
jafnaðarmanna harmar:
Það ástand, sem skapazt hefur
í Grikklandi síðan 15da júlí
1965, þegar hinni lýðræðislegu
stjórn Georges Papandreou var
steypt af stóli; —
þær óréttlátu hefndir, sem leið-
togar hins lýðræðislega verka-
lýðssambands verða oft fyrir og
hinar þungu refsingar, sem þeir
verða að þola, þótt þau verk, sem
refsað er fyrir, hafi verið friðsam-
leg, lögmæt og í fullu samræmi
við stjórnarskrána;
að enn skuli beitt sömu að-
ferðum og gert var í borgara-
styrjöldinni og eru einróma for-
dæmdar af lýðræðissinnum i
Grikklandi og annars staðar;
að málin skuli ekki liafa verið
lögð undir dóm þjóðarinnar og
hennar úrskurði hlýtt eftir það
ástand, sem skapaðist í landinu
frá 15da júlí 1965.
Allar þessar staðreyndir renna
stoðum undir þann grun, að á-
standið eigi enn eftir að versna
í náinni framtíð.
Með þetta alvarlega ástand í
huga ályktar þingið eftirfarandi:
1) Það fordæmir aðgerðir lög-
reglu og dómsvalds gegn lýðræð-
isöflurti landsins;
2) Það mótmælir einarðlega
þeirri meðferð, sem stúdentar við
gríska háskóla hafa orðið aff þola
vegna baráttu sinnar fyrir mann-
réttindum og félagafrelsi;
3) Það lýsir þeirri von sinni,
að allir ábyrgir aðilar í Grikjc-
landi geri það, sem í þeirra
valdi stendur, til að stjórnarfár
landsins þróist í lýðræðisátt og
mannréttindi verði í hciðri höfð
og byggt verði á þeirri grund-
vallarreglu, að frjálsar kosningftr
séu sá dómur, sem úr sker uin
það, hverjir fari með ríkisvaldið;
4) Það óskar eftir kosningujn
innan skamms, en þær eru skal-
yrði þess, að gríska þjóðin fai
notið réttinda sinna.
20. október 1966 - ALÞÝÐUBLA6ÝÐ