Alþýðublaðið - 30.10.1966, Blaðsíða 10
Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. október 1966
10
L Deildarliðin í handknattleik:
Nýliðarnir hyggja
Nú er fari'ð að siga á seinni
hlutann í heimsóknum til I.
deildarliðanna og í dag sækj-
um við heim nýliðana í deild-
inni, Víking. Það er með Víking
: * eins og Val, sem við ræddum við
siðast, að það er einn maður sem
i heidur uppi þjálfun þar. Þessi
maður hjá Víking er Pétur
’ Bjarnason, en hann er landskunn-
; ur þjálfari. Pétur hefur m. a.
í þjálfað landslið kvenna í hand-
• knattleik og náð þar mjög góðum
árangri. Árið 1960 varð íslenaka
kvennalandsliðið í öðru sæti a
! Norðurlandameistaramótinu og
svo 1964 sællar minningar í 1.
sæti. í dag er Pétur þjálfari hjá
, hvorki meira né minna en öllum
flokkum, sem taka þátt í lceppni
frá Víking. Þetta kostar Pétur
mikla vinnu og liggur nærri að
hann sé upptekinn að þjálfun
hvert einasta kvöld vikunnar og
sunnudag þar að auki, en auk
þess verður það ennþá erfiðara
fyrir Pétur, þar sem hann býr í
Kópavogi og þarf að sækja allar
æfingar inn í Reýkjavík.
Pétur segir okkur a'ð hand-
knattleikurinn hafi snemma rutt
sór braut í Víking og orðið vin-
sæll þar, ekki sízt hjá yngri
ílokkunum. Eldri flokkarnir hafi
alltaf átt sæmilegum og stundum
góðum liðum á að skipa, en í
yngri flokkunum hafi Víkingar
alla tíð staðið sig mjög vel og
margsinnis orðið meistarar. —
Bezti árangur, sem meistaraflókk-
ur karla hefur náð sl. ár var árið
1963, en þá urðu Víkingar í öðru
sæti á íslandsmótinu og unnu
þeir þó m. á. bæði Fram og FH.
Árið 1965 duttu svo Víkingar nið-
ur í II. deild eftir mikla óheppni
í I. deildarkeppninni. Viðdvölin í
II. deild varð aðeins eitt ár því
að í fyrravor unnu þeir deildina
og eru því eins og áður segir ný-
liðar í deildinni. Pétur sagði að
þeir hefðu haft mjög gott af- því
að vera eitt ár í II. deild.
— Hvernig eru æfingarnar?
BORN munið regluna
Björn Bjarnason komiun.í gegn og skorar.
— Við æfum tvisvar í viku í
100 mín. og er önnur æfingin í
Réttarholtsskólanum, en hin
væntanlega í íþróttahöllinni, en
þar mun ég aðallega hafa sér-
æfingar fyrir liðið. Mæting hef-
ur verið mjög góð og kannski
alltof góð, þar sem svo margir
æfa með öðrum flokk, en það
hefur oft verið þröngt á þessari
æfingu, sem. við hingað til höf
um haft vikulega
— Hvað um liðið í vetur?
— Eiðið verður mjög svipað
og í fyrravetur að þvi undan-
skildu, að Hannes Haraldsson
mun verða erlendis við nám í
vetur. Liðið er skipað ungum pilt
um og ég myndi segja að liðið
væri mjög jafnt og það kemur
til með að verða okkur stór kost-
ur.
— Hverjir voru í landsliði í
fyrra?
— Frá okkur lék aðeins Þór-
arinn Ingi Ólafsson í karlalands
liði, en auk þess áttum við þrjá
pilta í unglingalandsliðinu.
— Hvað viltu segja um vetur-
inn? i
- Ég er allbjartsýnn á fram-
tíðina. Ég held að liðið okkar
muni ekki gera stóra hluti í vet-
ur, enda keppnin í I. deild afar
hörð. Ég myndi segja, að tak-
markið væri að halda sér í deild-
inni. Sjálfsagt verða það FH og
Fram, sem bítast um efsta sætið
eins og undanfarið, en hin liðin
fjögur verða í svipuðum flokki.
Hins vegar hef ég trú á að næsta
vetur muni þetta Víkingslið fara
að blanda sér í baráttu um efsta
sætið. Ég held að íslenzkur hand
knattleikur sé að staðna og muni
sitja í sama farinu nú í vetur,
samhliða því, sem handknattleik
erlendis muni fara fram. —
Menn verða að gera sér grein
fyrir því ógurlega stökki, sem er
að fara úr Hálogalandi í Höllina
nýju, þar mun reýna á úthald og
knattleikni. Þá munu leikað-
ferðir verða ríkjandi og verður
hvert iið að hafa vald yfir nokkr
um slíkum.
Þannig lauk Pétur Bjarnason,
þjálfari Víkings máli sínu.
Íþróttasíðan óskar Pétri og
Víkingsliðinu.gæfu og gengis á
komandi vetri og vonar, að úr
hinu unga liði rætist vel. — I.V.
Kaupum hreinar
lérettstuskur
Prenismibja
Alþýðublaðsins