Alþýðublaðið - 30.10.1966, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 30.10.1966, Blaðsíða 14
14 Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. október 1966 * Hver stund með Camel léttir iund!“ Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN Ein mest selda sígarettan í heiminum. = rvmasH & noMEvnc í)!(i AR£'XTES> 5* MADE IN U.S.A. Erhard Framhald af 3. síðu til stjórnarsamvinnu á ný, eftir fvlkiskosningarnar í Bæjaralandi 20. nóv. þannig að hann haidi á fram kanzlarastörfum, en horfurn ar á þessu virðast litlar, þar sem frjálsir demókratar hafa ákveðið að fara í stjórnarandstöðu og Jgert ljó*t, að þeir muni ekki ganga til nýrrar stjórnarsamvinnu undir forystu Erhards. Góðar heimildir í Bonn herma, að þeirri skoðun vaxi fylgi í krist lega demókratafloklcnum að Er hard verði að segja af sér. En þing leiðtogi flokksins, Rainer Barzel sagði í sjónvarpsviðtali í gærkvöldi að hann teldi að meirihluti flokks ins stæði enn á bak við Erhard. Á fundinum í dag ræddu leið togar kristilegra demókrata um það, hvernig mynda mætti nýja meirihlutastjórn og hvort Erhard ætti að halda áfram störfum Skuttogarar Framhald af 3. síðu. og Dalvík, Akureyri og Sauðár- krók. Ættu skipin að geta landað á einhverjum þessara staða og aflanum síðan ekið til næstu staða eftir því sem ástatt er í frystihúsunum. Ég minnist þess til dæmis, að í fyrra komum við á ,,Sigurði” og lönduðum 280 tonnum af ferskfiski á Siglufirði. 240 tonnum var hægt að taka við, en 40 tonnum af karfa varð að kasta í gúanó vegna þess að eng- in tök voru að vinna hann. Verk- stjórinn sagði þó, að þetta væri fallegasti karfi, sem hann hefði séð. Hér hefði vegakerfið bætt úr og hægt hefði verið að senda þessi 40 tonn til vinnslu á öðrum stað og þannig nýttur frystihúsa- kosturinn. Síðar í þessu viðtali segir: — Segjum nú að Norðurlandið fengi tíu skuttogara, hvernig mundir þú vilja staðsetja þá? - — Akureyri þyrfti að fá flesta, en hinum yrði dreift á Siglu- fjörð, Ólafsfjörð, Sauðárkrók og kannski einn fyrir Hólmavík, Skagaströnd og Húsavík. — En myndi nú þessi útgerð borga sig? - Ég tel að svo myndi verða, ef skipin kostuðu ekki meira en 20—24 milljónir, og væru búin sjálfvirkni-búnaði. Kæmumst við þá af með 11—14 menn. Vakta- skiptin yrðu að breytast og menn að standa 6 og 12 tíma. Þetta á að vera auðvelt á heimamiðum með 14 daga útivist. Hjá okkur er oftast ekkí nema 8—12 tíma starf við veiðarnar á sólarhring og því engin ofþrælkun að hafa þessa tiihögun. Háseti, sem vinnur 6 og 12 tíma mætti ekki bera minna úr býtum en 30 þúsund krónur á mánuði niiðað við núgildandi verðlag, því þegar menn eru orðnir þetta fáir þýðir ekki að vera með annað en góða menn, jafnvel úrval. Það er ákaflega mikilvægt að á skipin Veljist menn úr sjálf- um plássunum, sem þau eru gerð út frá. Slíkt fólk skilur alltaf mik- ið betur hvaða þýðingu atvinnu- tækið hefur og verður miklu betra vinnufóik, en hinir, sem koma að- komnir og eru oftast Iáusamenn með engan áhuga. Það er nú einu sinni svo, að togaraútgerð þarf samstillt átak svo vel fari. WASHINGTON, 29 október (NTB-Reuter). Tilraunamyndir þær sem bor- izt hafa frá nýja íjarskiptahnett- inum, „Early Bird-2“ benda til þess, að hann muni senda ennþá skýrari myndir en „Early Bird-1“, að því er skýrt var frá í Washing: ton í dag. Fjarskiptahnettinum verður komið fyrir í endanlega stöðu sína yfir daglínunni á morg un, og þar með opnast möguleik ar á verzlunarfjarskiptum á hinu stóra Kyrrahafssvæði. Kjör jj j Albýðuflokksfélag Reykjavík fulltrúa á ii ! fer fram á skrifstofu Alþýðuflokksins sunnu- • | daginn 30. október 1966 kl. 13.21. flokksþing- j‘ h" ■ ’ ÁBYRGÐ Á HÚSGÖGNUM Athugið, að merki þetta sé ó húsgögnum, sem óbyrgðarskírteini fylgir. Kaupið vönduð húsgögn. 0254 2 FRAMLEIÐANDi í .- NO. 1] HÚSGAGNAMEISTÁRA- FÉLAGI REYKJAVÍKUR n 1 1 1 HIÍSGAGNAMEISTARAFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.