Alþýðublaðið - 30.10.1966, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 30.10.1966, Blaðsíða 11
30. október 1966 - Sunnudags ALÞÝÐUBLAÐIÐ 11 Félagsbækur Máls og menningar 1966 eru allar komnar út: Longus: DAFNIS og KLÓI Friðrik Þórðarson snéri úr grísku. Sverrir Kristjánsson: MANNKYNSSAGA 300-630 Myndlist/REMBRANDT (6. heftið í myndlistarflokki Máls og menn- ingar. Árgjald Máls og menningar er nú kr. 550.00 miðað við bækurnar óbundnar. Fyrir árgjaldið fá félags- menn 3 BÆKUR ásamt TÍMARITI MÁLS OG MENNINGAR. mi MÁL OG |V| menning jyu LAUGAVEGI18 Nýir félagsmenn geta enn fengið nokkra síðustu ár- ganga með því að borga aðeins upp'hafleg árgjöld. — Til dæmis: 1965: Benedikt Gröndal: DÆGRADVÖL. A. Daudet: BRÉF ÚR MYLLUNNI MINNI. Myndlist: MICHELANGELO. TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR. 1964: Þórbergur Þórðarson: OFVITINN. M. A. Asturias: FORSETI LÝÐVELDISINS. TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR. fyrir 450 krónur hvort ár að viðbættu vægu auka- gjaldi fyrir bækur sem menn kjósa að fá í bandi. Nýir félagsmenn sem ganga í félagið fyrir áramót fá í kaupbæti 4 fyrstu heftin af myndlistarbókum Máls og menningar: Cézanne — Velazques — Manet — Goya. VIRDING FYRIR SANNLEIKANUM MÉR finnst ekkert á móti því að drepa við og við á yfirlýs ingu Alþjóðablaðamannasam bandsins, fyrstu grein, er hljóð ar svo: Virðing fyrir sannleikanum og rétti almennings til að heyra sannleikann er fyrsta skylda hlaðamannsins. Blaðamenn þurfa annað slag ið að minna sjálfa sig á þessa skyldu, og þeir þurfa að minna húsbændur sína, útgefendurna, á hana líka, því að það er mjög oft erfitt að ynna hana af hönd um. Sannsögli er manninum erfið dyggð. Fáir eru góð vitni. Hlut ur ímyndunaraflsins er stór og menn muna það sem þeir vilja muna, auk þess sem margir hafa lent í þeirri fallgryfju að „vinna það fyrir vinskap manns að vikja af götu sannleikans“, helzt þegar þeir skrifa í blöð i einhverjum öðrum tilgangi en að segja sanna frétt, t.d. vinna einhverri ídeólógíu fylgi, póli tískri eða annars konar. En það er í rauninni óskap lega erfitt fvrir blaðamann að birta lesendum sínum sannar fréttir af því sem er að gerast í heiminum. Og ástæðan er einföld: UDnlvsingarnar sem hann fær eru oft strjálar, óá- reiðanleear og tilviljanakennd- ar. Þeirri mótbáru kann að verða hrevft að þó að fréttir séu oft striálar fái fólk að vita um meginviðburði. En hvað eru meginviðburðir? Um það vitum við fátt fyrir fram. Eins og stendur virðist allir mestu við burðir að áliti okkar blaða- manna vera stjórnmálalegs eðl is, en samt vitum við ofur vel að það eru ekki stjórnmálin sem sterkast orka á heim nútíma mannsins, heldur vísindin sem eru í óðaönn að skapa alger lega nýja tilveru. Þrátt fyrir lieimsvíð fréttaöfl unarkerfi og sérstaka útsend ara stórblaða og fréttastofnana er hægt að igera lygasögur að stórfréttum, eins og t.d. söguna um gazelludrenginn sem gat hlaupið á 80 km. hraða. Það var ekki fyrr en mörgum ár um seinna sem maður tók sér fyrir hendur að sýna fram á að fréttin var uppspuni frá rót um. Sorglegasta atriðið er þó að stórir hlutar heims eru raun- verulega lokaðir fyrir frétta- öflun. í mörgum löndum er ströng ritskoðun, gegnir furðu hvað menn þola slikan ósóma hávaðalítið, og enn víðar er litlum velvilja að mæta ef menn hyggjast rekja málin hlífðarlaust í sundur. Fréttaöfl un er í rauninni ekki auðveld í nqjnum löndum nema Vestur- Evrópu og Norður-Ameríku, en þetta eru smásvæði af öllum 'heiminum. Annars staðar eru fréttamenn miklu færri miðað við aðstæður, samskiptamögu leikar við fólk og stofnanir miklu erfiðari og miklu minni skilningur á menningarlegu gildi fréttaöflunar. Heimspressan missir stund- um af stórum viðburðum, en segir frá smáum. Fyrir hálfu öðru ári eða svo urðu nokkur átök á Suður Ind landi út af tuúgumálum. Um þetta var skrifað dag eftir dag í fréttum heimsblaðanna, en lít ið sagt um mannfall, helzt rætt um að múgur í útjaðri Madras hefði tekið pólití og kveikt í því. En þessa sömu daga gerðist það nokkru fyrir sunnan Madras að óeirðir blossuðu upp og yf ir þúsund manns féllu á einni einustu kvöldstund. Um þetta var ekki getið neins staðar, og er þó fréttaöflun algerlega frjáls í Indlandi. Þetta er naum ast einsdæmi. Til er nokkuð sem við köll um lieimsfréttir. Það eru frétt ir sem fara um allan heim og eru í nokkurn veginn sama gildi hvar sem er. En þeir sem dveljast langdvölum í öðr um heimshlutum 'geta borið um að heimsfréttimar eru naum ast hinar sömu alls staðar. Það er afar fátt sem er meðhöndl að eins og það sé í sama gildi hvar sem er, og sum vestræn stórblöð hafa algerlega ,,tung ur tvær og tala sitt með hvorri“ þannig að í Austurlanda útgáf um sínum halda þau þveröfugu fram við það sem þau segja hér vestra. Heimurinn er í rauninni nokk ur mismunandi fréttasvæði. Og ég hef tekið eftir því að flest ir Vesturlandamenn hugsa þann ig, hvort sem þeir vilja viður kenna það eða ekki, sem Evr ópa o'g Norður-Amerika séu heimurinn. Þetta verður að breytast, m. a. vegna þess að mannkynið verður að læra að lifa saman í friði. Og friður byggist á því að við öll miðum hugsun okk ar við það að heimurinn sé ein heild Það á að vísu langt í land. Fyrsta skrefið er öflug frétta- og kynningarstarfsemi. Brauðhúsið Laugavegi 126. SMURT BRAUÐ SNITTUR BRAUÐTERTUR SÍMI 24631. SMURSTÖÐIN Sæíúni 4 — Sími 16-2-27 BfUiBn er smurðnr fljétt og vel. SeSjofli allar teguaalr af smnreMUt Bifreiðaeggendyr sprauium og réttum Fljét afgreiðsla. Bifreiðaverkstæðið VESTURÁS H.F. SóSarvog 80, gimi 3574*. SMURI BRAUÐ SNITTUR BRAUÐSTOFAN Vtsturgötu 28. Sími 16012. OplS frá kl. 9—23.30.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.