Alþýðublaðið - 11.12.1966, Qupperneq 1
Telja Vínlands-
kortið ófalsað
Mikið er búið að deila í ræðu og
riti um Vínlandskortið fræga sem
fannst fyrir nokkrum árum í Ge-
nua. Kortið er gert eins og kunn-
ugt er, 52 árum áður en Kólum-
bus sigldi sírta fyrstu ferð til nýja
heimsins í vestri. Ma^gir hafa
dregið í efa að kortið sé eins gam
alt og látið er í veðri vaka og
telja jafnvel að <það sé falsað á
síðari árum. Nú á að sannprófa
þetta með C-14 aðferðinni, en (hún
er mikið notuð til að ákveða tíma
sétningu fornmuna. Er það gert
með að mæla geislavirkni kolefn-
is í mununum.
Nýlega var haldin ráðstefna vís
indamanna um kortið til að sanna
eða afsanna að það væri ófalsað.
í ljós kom að ormagötin í Vín-
landskortinu sem mjög voru um-
deild, passa nákvæmlega við orma-
göt í öðru handriti frá árinu 1440.
Hafa því þessi plögg legið saman
í bunka sem bókaormarnir átu
sig gegnum. Þykir gamga krafta-
verki næst að bókaormarnir hafi
þannig unnið í þágu vísindanna.
Eftir þessu að dæma hafa menn
þegar á miðöldum þekkt land-
svæðin umhverfis Vínland svo vel
Framhald á 15. síðu.
Milljónirnar dregnar út
í gær var drcgið í 12. flokki
Happdrættis Háskóla íslands,
og var myndin hér að ofan tek-
in, er verið var að draga út
númer þeirra, sem heppnina
höfðu með sér. Aldrei fyrr hef-
ur verið dregið um jafnmarga
vinninga og jafnháa fjárupp-
hæð í einum drætti sem í þess-
um, svo að þess er von að
menn séu óþreyjufullir að bíða
eftir útkomunni. En vinninga-
skráin verður ekki birt fyrr en
á þriðjudag, vegna þess hve ó-
hemjumikið verk er að ganga
frá henní.
Alls voru að þessu sinni út
dregnir 6.500 vinningar að fjár
hæð 24 milljónir og 20 þúsund
krónur. Hæstu vinningarnir
eru tveir, á eina milljón krón-
ur hvor, tveir vinningar eru á
100 þúsund krónur, 968 vinn-
ingar á 10 þúsund, 1044 vinn-
ingar á 5 þúsund krónur og
4.800 vinningar á 1500 kr.
hver. Auk þess eru fjórir auka
vinningar á 50 þúsund krónur
hver. Það benda þvi allar iík-
ur til, að einhverjir fái óvænt-
an jólaglaðning eftir helgina,
þótt hitt sé raunar líka viðbú-.
ið að einhverjir aðrir verði fyr
ir vonbrigðum.
Jólablær á
Reykjavík
Það' er orðið jólalegt um að
litast í höfuðborginni, eins
og s,;á má á þessari mynd,
sem ljósriiyndai lun ckkar,
hann Bjarnleifur, tók í gær
morgun niður eftir Skóla-
vörffustígnum. Jólaverzlun-
in er líka farin að færast í
aukana, í gær voru sölubúff-
ir opnar til klukkan 6 síff-
degis, næsta laugardag
verffa þær opnar til klukkan
10 um kvöldiff og á Þorláks-
messu til miðnættis.
Alþýffublaffiff minnist jól
anna aff venju meff því að
senda út sérstakt jólablað.
Þaff kemur í fernu lagi í ár
cins og í fyrra, og hafa tveir
fyrstu hlutar þess þegar
veriff bornir út til kaup-
enda. Mflð' blaffinu í dag
fylgir 3. hluti jólablaðsins,
og birtist þar meðal ann-
ars kafli úr bók Guðmund-
ar G. Hagalín, er hann
skráði eftir Adam Hoffritz;
smásaga eftir Guðrúnu
Jakobssen og viðtal við Þor
gcir Þorgeirsson kvikmynda
gerffarmann.