Alþýðublaðið - 11.12.1966, Blaðsíða 16
Að múra upp í gluggana
Veðráttan hef-
u r \<ei!ið söm
við sig liðna
viku og aldrei
verið fljótari að
fara aíian hring
inn frá norðan
átt til norðan-
áttar aftur. Það
gerir æfingin, og með aukinni
þjálfun má búast við að veðr
ið fari að geta farið marga hringi
á einum og sama sólarhringnum.
Þá verður nú fyrst gaman að
lifa ,þegar hringrás veðursins
verður orðin svo ör að auga verð
nr hætt að festa á henni; þá verð
ur veðráttan nefnilega óbreytan
leg, en auðvitað skiptir þá dálítið
miklu hvar í hringnum maður
lendir, þegar hamagangurinn
byrjar. Það er mikill munur á
því að eiga fyrir iiöndum sí
fellda norðanátt með sækulda
eða eilíf útsynningsél, og er þó
hvort tveggja illt.
í Ijós kom í vikunni að liöfuð
fangelsi landsins er eins og fleira
í þjóðfélaginu rammgert og ábúð
armikið að framanverðu, eri op
Ki og illa hirt á bakhliðinni.
Þetta notfærðu sér innisetumenn
á staðnum og brugðu sér út bak
dyramegin til þess að draga sér
björg í bú í nærliggjandi kaup
félagi. Líklegast hafa mennirn
ir ekki lesið Tímann i fangelsinu,
og því ekki fengið fregnir um
stöðu kaupfélaga landsins, sem
nú eru sem óðast að fara í megr
unarkúr, því að þá hefði þeim
auðvitað aldrei dottið í hug að
fara í kaupfélag í fjárleit. En
^hvað sem því líður, þá fóru þeir
í kaupfélagið og varð talsvert á-
gengt, áður en þeir skutust aft
ur til sín í tukthúsið.
En viðhrögð kaupfélagsins eft
ir þjófnaðinn voru mjög vitur
leg. Það kallaði undir eins á iðn
aðarmenn og lét múra upp í
gluggann sem þjófarnir höfðu
farið inn um. Þetta minnir örlítið
á atvik, sem kom fyrir í kaup
stað einum fyrir allmörgum ár
um. Þar var brotist inn í opin-
bera skrifstofu og stolið allhárri
peningaupphæð. Eitthvað mun
þjófunum þó liafa verið órótt
vegna verks síns því að þeir
fengu samvizkubit á eftir og skil
uðu þýfinu. Það gerðu þeir með
því að slá utan um það umslagi
og senda það í pósti til stofnun
arinnar sem um var að ræða.
Tveimur vikum síðar var aftur
brotist inn í sömu stofnun, og stol
ið ekki lægri uphæð en í hið
fyrra sinni. Og þá lét forstjóri
Frétta-
yfirlit
vikunnar
stofnunarinnar það auðvitað
verða sitt fyrsta verk, þegar
vitnaðist um innbrotið, að fara
á pósthús staðarins og spyrja,
hvort það hafi ekki komið til sín
pakki.
Annars' væri það kannski ekki
óeðlilega að fangelsið hefði
brugðið á sama ráð og kaupfélag.
í og látið múra upp í gluggana
hjá sér. Þegar útbrot og inn
brot fara saman hlýtur að vera
álitamál hvort afbrotið er stór
brotnari glæpur.
Alþingismennirnir tóku við sér
undir vikulokin, nærri því eins
og minkur hefði komizt í þingsal
inn eða bjór tekið að ylja hug
ann. Það var líka ekkert minna
en sjálfur kx-istindómurinn í land
inu, sem var á dagskrá, eða að
minnsta kosti sú stofnun, sem við
hann er kennd, kirkjan. Nú á að
fara að spara í rekstri kirkjunn
ar, og eins og alltaf þegar farið
er að spara þá eykur það allan
tilkostnað til mikilla muna, og
eins mundi hér: sparnaðurinn
verður til þess að gera kirkjuna
enn dýrari í rekstri en áður. Nú
á kirkjan að koma sér upp sjóði
til að liggja á eins og ormur á
gulli, og virðast henni þá alveg
vera gleymd hin fornu orð: „Safn
ið yður ekki fjársjóðum á jörðu.”
Mér er kalt á klónum
í kuldanepju og hríð;
árans illsku tíð
er nú snemma og' síð.
Ösla ég úti í snjónum
einn og frostbitinn;
beilur á blárri kinn
bylurinn.
Svíður sárt í kaunum,
svellar andi á vör,
frjósa skegg og skör,
skerðist afl og fjör.
En í öllum raunum
ein er huggun fín,
sem bræðir bæði og skín:
baugalín!
SÍRA SIGMUNDUR.
Orððbók háðskóidns
FRYSTIHÚS: Gera ýsuna kalda, en eigendurna heita.
KJÓLLINN: Rangnefnd bíómynd, ætti að heita KLÆÐLEYSI.
NORÐURSTJARNAN; Niðurlögð niðurlagningarverksmiðja.
PÓSTMENN: Verða með jólapóstinn fram á sumar.
SIGURVIN: Hefur einhverja sigurvon.
Ródesíumálið
hefur verið á dag-
skrá að undanfömu
Stjórn Ian Smiths
hefur traustan hak
lijall í Suður-Afr-
íku eins og sézt á
þessari mynd. Þar
segir Smith, þegar
Sameinuðu þjóðirn
ar ætla að fara að
bcita hann liöröu:
„Ég læt bara hann
pabba minn taka í
þig.‘‘
Sá spaki segif...
Auðvitað verður að
kenna nýjxi bókaverð-
launin við ljós, sam-
anber Silfurlampann.
Og þá liggur beinast
við að kalla þau
Menningarvita.
Skopmynd
vikunnar