Alþýðublaðið - 03.01.1967, Blaðsíða 7
Handritastofnuninni verði séð
fyrir sjálfstæðum tekjum
Nýársræða forseta íslands í útvarpi og sjónvarpi
Forseti íslands, herra Ásgreir Ásgreirsson.
Góðir íslendingar nær og fjær!
Ég J>akka gamla árið og óska
hverjum og einum og þjóðinni í
Iheild gleðilegs og farsæls nýárs.
Raunar getur maður ennþá einn-
ig óskað gleðilegra jóla, því hin
fornu jól og vor jól í vissum skiln-
ingi, vara allt fram á þrettánda.
ÍÞessi mikla og fornhelga miðsvetr
arhátíð er ein heild, þó jóladag-
ur og nýársdagur skeri sig úr.
Renna þá saman að nokkru leyti
heiðnir og kristnir siðir og 'hug-
myndir án árekstra. Fornar venj-
ur eru lífseigar, ekki sízt í sam-
bandi við stórhátíðir, sem breyta
þó um merkingu við hver siða-
skipti.
Á jólum voru á reiki vættir lands
ins, góðar og illar, og þurfti ýms-
an varnað að hafa. Jólin eru hátíð
gnægta og gjafa, og vekja nú, í
kristnum sið, sumt hið bezta, sem
blundar í sálardjúpinu — vorn
betri mann, góðvild, bróðurhug og
Sálarfrið.
Um áramótin er litið aftur um
öxl og fram á ófarna leið, og fell-
ur það að mestu í hiut annarra
ræðumanna, eins og vant er. En
eins atburðar á liðnu ári get ég
þó ekki látið ógetið, en það er
'lokaákvörðunin í handritamálinu
17. nóvember síðastliðinn. Það var
viðkvæmt mál öllum almenningi
hér á landi og ýmsum Dönum,
einkum fræðimönnum og safnvörð
um.
Handritamálið var hyggilega
rekið af vorri hálfu, engin höfuð-
áherzla á hinni réttarfarslegu hlið
málsins, heldur sögulegum og
náttúrlegum rétti, sem Danir tóku
fullt tillit til, þó slíku sé ekki æt<ð
að fagna í viðskiptum þjóða á
milli. Með þessari aðferð hefir ís-
lendingum jafnan orðið bezt á-'
gengt í sjálfstæðis- og viðreisnar-1
baráttu sinni.
Málið er útkljáð, og þá jafn-
framt lokið þeim ágreiningi og
deilum, sem staðið hafa á aðra
öld um samband og samskipti ís-
lendinga og Dana. Margir vinir
vorir danskir hafa kallað yfir sig
nokkura pólitíska óvild fyrir skiln
ing sinn á og fylgi sitt við hinn ís-
ienzka málstað, og _ er það ekki
ný bóla. En því þakklátari megum
vér vera, bæði þeim og dönskum
almenningi yfirleitt. íslendingar
Ijúka hér upp einum munni um
það, að fáar þjóðir, ef nokkrar,
hefðu reynzt oss jafn skilningsgóð
ar og drengilegar á úrslitastund
um sjálfstæðisbaráttunnar og Dan
ir, þó oft hafi gætt mikillar tregðu
í sjálfri viðureigninni. Sá jólafrið-
ur, sem nú ríkir í þessum efnum,
mun haldast.
í bókmenntum og íslenzkri
tungu lifir og vakir íslenzkt þjóð-
erni. Þó íslenzkar fornbókmenntir
séu mikils virtar meðal erlendra
fræðimanna. Þá eru þær hvergi
almenningseign nema hér á landi
— nema vera skyldi Heimskringla
Snorra með Norðmönnum, Þær
eru lifandi afl í íslenzku þjóðlífi.
Þess vegna eiga handritin heima
hér og hvergi annars staðar, hvað
sem líður eignarrétti og ástundun
fáeinna fræðimanna.
Fornar minjar eru hér og fáar
aðrar en handrit og bókmenntir.
Þar hefir þjóðarsálin varðveitzt
um aldir. Minningarnar hafa vakið
stórhug og djörfung fámennrar,
fátækrar ’ þjóðar í langri og tor-
sóttri viðreisnarbaráttu. Sú þjóð
á sér mesta viðreisnarvon, sem
átt hefir glæsilega fortíð og varð-
veitt sögu sína. Hvar væri ísland
nú á vegi statt án bókmenntaiðju
forfeðranna?
Handritastofnun, sem á að. taka
til allra íslenzkra fræða, verðúr
fjárfrek. En til fjárveitinga kalla
brýnar þarfir hins nýja tíma, og
vísast verður engum alveg full-
nægt. Væri ekki ráð að sjá Hand-
ritastofnuninni fyrir sjálfstæðum
tekjum með sjóðstofnun, . sem
gerði stofnuninni, og þá máske
einhverjum öðrum opinberum
bókasöfnum, hægara um vik, en
ef eingömgu væri stuðzt við ár-
legar fjárveitingar? Ef gert er
ráð fyrir ríflegu stofnfjárframlagi
og bókagjöfum áhugamanna, þá
mætti slíkt verða til mikils léttis,
og gæti þá Handi'itastofnunin orð-
ið miðstöð íslenzkrar bókasöfnun-
ar og dreifingar.
Stofnunin hefur miklu hlutverki
að gegna. Hér lifir hin forna
tunga, íslenzkan, með þeim við-
aukum, sem breyttir tímar lieimta,
og ættum vér að leggja niður
þann sið að kalla það fornnorrænt
sem er alíslenzkt. Hingað þurfa
þvi erlendir menn að leita, sem
vilja kynna sér til nokkurrar hlít-
ar íslenzk fræði. íslenzkan er við
hlið latínunnar formóðir margra
hinna helztu menningarmála vest-
ræns heims.
Úrræði til sjóðstofnunar verða
innan skamms tekin til umræðu,
en ekki gerð nánari grein fyrir í
þessu stutta ávarpi.
Núlifandi eldri menn muna
glöggt halíærisástand þjóðarinnar
fram á og jafnvel fram yfir síð-
ustu aldamót. Nú um hátíðirnar
þykir mörgum nóg um íburð allan
og kaupskap. Miðsvetrarhátíðin
hefir að vísu frá fornu fari verið
hátíð fæðis, klæða og samfunda,
þegar og þar, sem kostur hefir
verið á. En einhlítar hafa allsnægt-
irnar aldréi verið til að skapa frið,
velþóknun o% sálarró.
Þó hófs skuli gæta, þá bera þó
hátíðabrigðin skýran vott um vax-
andi velgengni síðustu áratuga.
Og enginn muhdi vilja skipta á
þeim lífskjörum, sém þjóðin býr
nú við, og örbirgð fyrri alda. En
viðbúnir þurfúm vér að vera mis-
jöfnu árferði, en það hefir jafnan
gengið í öldum. Á síðastliðinni
hálfri öid hefir orðið bylting í að-
búð og atvinnuháttum, meiri en
nokkru sinni áður í sögu þjóðar-
innar, atvinnu-, iðnaðar- og sam-
göngúbylting. Vélin er komin í
stað hestsins, árinnar og amboð-,
anna, vistleg hús í stað hrörlegra
torfbæja, hiti óg ljós í stað kulda
og myi'kurs.
Allt þetta skapar ný viðfangs-
efni um arðskipting og skipulag.
Nú er ekki lengur við Dani að
deila. Viðureignin stendur á milli
landsmanna sjálfra. Átökin eru
hörð. Kosningar standa fyrir dyr-
um. Þegar ókunnugir dæma .eftir
orðanna hljóðan, þá er ekki á að
lítast. En heimamenn vita af eldi-i
reynslu og daglegri umgengni, að
íslenzk þjóð er samstæðari en út
lítur fyrir á yfirborðinu. Á úrslita-
stundum hefur hún staðið saman
á stundum sem einn maður.
Vér erum fámenn þjóð, en ekki
fátæk lengur. Viðkynning er mikil
millij einstaklinga og innan og
milli starfsstétta. Þó „vai'irnai*
fljóti ekki í gælum“, þá unum vér
bezt í eigin hóp „við land og fólk
og feðratungu'*. Heimþráin er rík,
hvar sem íslendingur er staddur
meðal framandi þjóða. Ræturnar
standa djúpt í íslenzkum jarð-
vegi, og arfurinn er dýrmætur.
Það hefi ég fundið einna gleggst
meðal gamalla Vestur-íslendinga,
sem þó höfðu flúið undan jSkorti
og hallæri. Fjallkonan var „beina-
ber, brjóstin visin og fölai'ikinn-
ar“, kvað Bólu-Hjálmar un) þær
mundir. Átökin eru óhjákvæmi-
leg í lýðræðislandi, en ipnan
skefja þarf að halda þeirrj, svo
ekki stefni til harðstjórnar og of-
sókna. Einn hinn mesti ávinning-
ur síðustu alda í vestrænum(heimi
er frjáls hugsun, frjálsar uinræð-
ur og fundafrelsi.
Vestræn menning og stjýr.nar-
hættir er oss í blóð borin., Hið
foma þjóðveldi og nútíma ,þing-
ræði er runnið af sömu rqtr Al-
þingi og lýðveldi er endurheimt.
Samhengi sögunnar er glöggt jjrá
upphafi íslandsbyggðar. Af , sög-
unni er margt að læra, bpxði til
Framhald á 14. síðu.
---- -----WlKÍ
. AHf«**W-Í***-<* ■■■■■■ —
$■.<■<?*>>.*'*& v.
: ;■: KV6: v-' v •'■•:. ',»■
- <- 'f ■>’•■ e-''*
hx ífeyqa-i;- ■'■■■■■':
l' --f:
' f.V.' Uíí'lw
Skarðsbók.
3. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ