Bókasafnið - 01.01.1974, Page 12

Bókasafnið - 01.01.1974, Page 12
Landsbókasajn Fœreyja. Daglegur opnunartími safnsins er kl. 9—12 og 13—19 virka daga, en á laugardögum kl. 9-12. Auk Landsbókasafns hýsir byggingin Landsskjalasafnið (F0roya Landsskjalasavn), er stofnað var árið 1932. Þama er einnig til húsa Þjóðminjasafn Færeyinga. Það var stofnað árið 1916 og nefndist þá F0roya Forngripafélag. Söfnun fornminja hófst þó miklu fyrr í Færeyjum. Árið 1952 var safn- inu gefið nýtt nafn og nefnist það nú Fproya Fomminnissavn. Þessar stofnanir hafa lítil vaxtarskilyrði í núverandi húsnæði og hefur verið ákveðið að reisa nýtt Landsbókasafnshús. Er því ætlaður staður í brekkunni milli Sjómanna- skólans og Safnahússins. Ennfremur hefur verið ákveðið, að Þjóðminjasafnið flytjist í nýlega byggingu rétt hjá og fær það væntan- lega heila hæð til afnota þar. Landsskjala- safnið fær þá allt Safnahúsið til umráða. Þessi samantekt er að nokkru unnin í páskafríi í Færeyjum sl. vor. Sverri Eg- holm, landsbókavörður í Færeyjum, og Gróa Bjömsdóttir, sem nú starfar við Lands- bókasafnið þar, reyndust mér einkar hjálp- leg við upplýsingasöfnun og fræddu mig um margt og kann ég þeim bestu þakkir fyrir. 12

x

Bókasafnið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.