Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 15

Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 15
Efni þessa fundar var haft nokkru fjöl- breyttara en venja er, og var það m. a. gert af tillitssemi við Islendinga, svo að þeim mætti nýtast sem best að fundinum. Aðalviðfangsefni voru svonefnd skylduskil, þ. e. lögbundin afhending skyldueintaka til bókasafna, svo og aðföng til safnanna yfir- leitt, hvort heldur um væri að ræða bækur eða annars konar efni. Talsverður hluti þeirra umræðna snerist um ritaskipti. Einn- ig var rætt um Scandia-áætlunina svo- nefndu, en hún lýtur að verkaskiptingu milli rannsóknarbókasafna á Norðurlönd- um um aðdrætti til þeirra. Söfn skipta með sér efnisflokkum, þannig að tryggt sé eftir föngum, að rit, sem ætla má að nægi Norð- urlandasvæðinu í einu eintaki, sé ekki keypt til margra safna. Loks var rætt um samvinnu norrænna rannsóknarbókasafna á sviði skráningar og gagnkvæmrar upplýs- ingaþjónustu og hversu best mætti nýta nýjustu tækni við þessa starfsþætti. Alltof langt mál væri að rekja á þessum vettvangi til nokkurrar hlítar efni erinda á fundinum og gang umræðna, enda er á veg- um íslensku deildarinnar í undirbúningi útgáfa fundartíðinda, sem boðin verða til kaups, þegar lokið er. En til þess að veita lesendum sæmilega hugmynd um við- fangsefni fundarins, læt ég fara hér á eftir í íslenskri þýðingu niðurstöður, sem sam- þykktar voru í fundarlok. # # # Skylduskil Fulltrúar þjóðbókasafna Norðurlanda vekja athygli á því, að markmiðið með því að afla söfnunum rita með þessum sérstaka hætti er ekki nógu rækilega skilgreint í lög- gjöf landanna hvers um sig. Tilgang með afhendingu skyldueintaka má greina í eftirfarandi þætti: — að tryggja, að prentað efni hvers lands varðveitist til frambúðar — að skrásetja bókfræðilega þetta efni eða vissa hluta þess, eftir því sem nán- ar yrði skilgreint — að gera efnið aðgengilegt þeim, sem þurfa á því að halda vegna rannsókna, opinberrar stjórnsýslu eða annarra brýnna þarfa. Mikilvægt er, að Jressi markmið séu skýrt íram sett við þá endurskoðun laga, sem nauðsynleg er, til að gera þau sveigjanlegri og betur fallin til að tryggja, að ofangreind- um markmiðum verði náð. Geymslueintak þarf að friða svo sem frek- ast er kostur og binda við notkun á staðn- um, en hafa Jrað undanþegið lánum heim eða milli safna. Með tilliti til notkunar vegna rannsókna þarf fjöldi skyldueintalia að vera nægur til þess að beggja þátta sé gætt, varðveislu- skyldu og rannsóknarþarfa. Vegna þess hve Jrjóðbókasöfn Norðurlandanna hafa ríka þörf fyrir tvö eintök skilaskylds efnis, kynni að vera þörf á að kanna, hvort ekki æ<ti að taka upp tvenns konar skylduskil, þ. e. bæði af hálfu prentsmiðju og forlags. Alla vega verða lögin að veita heimild til að leggja skilaskyldu á forlög, þegar svo stendur á, að Jrau gefa út efni, er vart verður innheimt á venjulegan hátt frá prentsmiðj- um. Sé talin Jrcirf fleiri eintaka af slíku efni, verður að tryggja þjóðbókasafninu fé til þess að kaupa Jrau. i>j(')ðirnar ákveða hver urn sig, hve mörg- um söfnum Jrau telja æskilegt eða réttmætt að leggja til skyldueintök, og jafnframt hvort þeim skyldum, sem fyrrgreind mark- mið laganna fela í sér, verði skipt á rnilli safnanna. Grundvallaratriði er, að því safni, sem nýtur skyldueintaka, séu jafnframt lagðar skyldur á herðar um meðferð hins skila- skylda efnis. Þær Jyjóðir, sem hafa ekki þegar sett í lög sín ákvæði um afhendingu efnis, sem gert er með „óhefðbundnum hætti“ [þ. e. fjöl- földun með öðrum hætti en venjulegri 15

x

Bókasafnið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.