Bókasafnið - 01.01.1974, Síða 21
SIGRÚN KLARA HANNESDÓTTIR
Sænska barnabókastofnunin í Stokkhólmi
Sænska barnabókastofnunin (Svenska barn-
boksinstitutet) er stofnun, sem á sér enga
hliðstæðu hér á landi, og var það því ís-
lendingi forvitnilegt mjög að kynnast henni
og starfsemi hennar. Á síðastliðnu ári fékk
undirrituð styrk frá Foreningen Norden til
þess að dvelja við stofnunina í þrjár vikur
og kynna sér sænskar barnabækur, bókaút-
gáfu og skipulagningu skólabókasafna í
Stokkhólmi. Hér á eftir verður farið nokkr-
um orðum um tilgang stofnunar þessarar,
rekstur og þá þjónustu, sem þar er á boð-
stólum. Að sjálfsögðu verður aðeins stiklað
á því stærsta, en vonandi gefst lesendum
nokkur mynd af Sænsku barnabókastohiun-
inni af þessum fáu orðum.
Stofnunin sem slík var sett á laggirnar 7.
desember 1965, en var ekki opnuð almenn-
ingi fyrr en 1. mars 1968. Að stofnuninni
stóðu Bókasafnsnefnd Stokkhólmsborgar
(Stockholms Stads Biblioteksnámd), Félag
sænskra bókaútgefenda (Svenska bokför-
lággareföreningen), Stokkhólmsháskól i
(Stockholms Universitet), og Félag sænskra
barnabókahöfunda (Sveriges Ungdomsför-
fattareförening). Allir þessir aðilar áttu
hagsmuna að gæta um uppsetningu og
skipulag stobiunarinnar og hafa lagt henni
lið eftir efnum og ástæðum. Stjóm stofn-
unarinnar skipa fulltrúar frá hverjum
þessara aðila og er prófessor Örjan Lind-
berger við Bókmenntadeild Stokkhólmshá-
skóla stjómarformaður. Hann er íslending-
um að góðu kunnur og flutti hér fyrirlestra
í Norræna húsinu í mars 1974.
Tilgangur og markmið Barnabókastofn-
unarinnar er að þjóna sem miðstöð fyrir
rannsóknir á sænskum barnabókum og um
leið veita upplýsingaþjónustu fyrir alla þá
aðila, sem áhuga hafa á barnabókum eða
hafa með böm að gera. Á það bæði við um
erlenda barnabókaútgefendur, sem áhuga
hafa á þýðingu og útgáfu á sænskum
frumsömdum bamabókum, erlenda bók-
menntafræðinga, sem eru sérhæfðir í barna-
bókmenntum, og innlenda aðila, sem vilja
kynna sér einhver svið barnabókaútgáfu,
t. d. myndskreytingar, efnismeðferð, þjóð-
félagslegar myndir sem fram koma í bama-
bókaskrifum o. s. frv.
Undirstöðubókakostur Barnabókastofn-
unarinnar eru barnabækur gamlar og nýj-
ar, útgefnar á sænsku (bæði í Svíþjóð og ut-
an) og er þá leitast við að eiga einnig út-
gáfu á upprunalega málinu ef bókin er
þýdd, en sé bókin upprunalega frumsamin
á sænsku er leitast við að afla allra þýðinga
bókarinnar á önnur mál. Einnig eru í safn-
inu bækur, sem skrifaðar voru uppruna-
lega fyrir fullorðna, en hafa orðið vinsælar
barnabækur svo og ævintýri og jijóðlegur
fróðleikur, sem ritaður hefur verið fyrir
börn. Barnabækur, sem álíta má sígildar
og hafa skapað sér orð sem slíkar, eru til á
fleiri tungumálum til þess að auðvelda
samanburð á þýðingum.
Safnið á einnig ýmist efni, sem tengt er
barnabókaútgáfu svo sem handrit, bréfa-
skriftir höfunda og myndskreytingar. Enn
má nefna safn verðlaunabóka ýmissa landa,
21