Bókasafnið - 01.01.1974, Qupperneq 24
Islenskar bækur keyptar í almennings-
bókasöfn á árinu 1972
Hér fer á eftir skrá yfir þær íslenskar bæk-
ur ársins 1972, frumútgáfur og endurprent-
anir, sem mest var keypt af í almennings-
bókasöfn á árinu. Gera má þó ráð fyrir,
að nokkru fleiri eintök sumra þessara bóka
séu nú í bókasöfnunum, því að ekki kaupa
öll söfn bækurnar á því ári, sem þær koma
út. Samt skakkar þar aldrei mjög miklu.
Ýmislegt athyglisvert kemur í ljós, þegar
þessi listi er skoðaður. Ekki verður sagt,
að bókakaupin séu ýkja mikil, ef haft er í
huga, að Borgarbókasafn Reykjavíkur kaup-
ir 30—40% af heildartölunni, og stundum
jafnvel meira, og stærstu kaupstaðimir 2—5
eintök af hverri bók. Bókakaup flestra al-
menningsbókasafna hafa farið minnkandi á
undanförnum árum, a. m. k. allra liinna
minni, enda vart við öðru að búast, þar sem
tekjur safnanna hafa yfirleitt stórlækkað
samanborið við bókaverð og rekstrarkostn-
að.
Engin Ijóðabók kemst á þennan lista og
komu þó út nokkrar ljóðabækur kunnra
skálda á árinu. Þó að gera megi ráð fyrir,
að fólk kaupi sér fremur Ijóðabækur en
aðrar bækur til eignar, er þó mikið íhug-
unarefni, að þær skuli vera látnar mæta af-
gangi, þegar valdar eru bækur í bókasöfn.
Sú var ekki raunin fyrir nokkrum áratug-
um. Hvað er hér að gerast? Bamabækur eru
minna keyptar í bókasöfn í dreifbýli en
þéttbýli og talar það vafalaust sínu máli.
Borgarbókasafn Reykjavíkur kaupir tiltölu-
lega mest af barnabókum.
Skráin ber með sér, að skáldsögur eru
vinsælastar og verður naumast sagt, að þar
sé gert upp á milli höfunda.
SKRÁ
yfir þœr 50 frumsamdar og endurprentaðar
islenskar bœkur ársins 1972, sem mest var
keypt af i almenningsbókasöfn
1. Halldór Laxness: Fjöldi eintaka:
Guðsgjafapula 225
2. Guðmundur Daníelsson: Járnblómið 173
3. Guðrún frá Lundi: Utan frá sjó 3. 169
4. Vésteinn Lúðvíksson: Gunnar og Kjartan, II 148
5. Jón Helgason, ritstj.: Þrettán rifur ofan i livatt 143
6. Guðmundur Daníelsson: Skákeinvígi aldarinnar 141
7. Kristmann Guðmundsson: Brosið 138
8. Pétur Eggerz: Létta leiðin ijúfa 135
9. Thor Vilhjálmsson: Folda 132
10. Ólafur Jóh. Sigurðsson: Hreiðrið 129
24