Bókasafnið - 01.01.1974, Page 32
Lœrdómsrit Bókmenntafélagsins Flokkur sígildra rita
Síðustu dagar Sókratesar
I bókinni birtast þrjú af áhrifamestu ritum eins á-
hrifamesta hugsuðar allra tíma, þar sem hann lýsir
ævilokum kennara síns. Ritin eru Málsvörn Sókra-
tesar, ræða hans fyrir dómstólnum, sem dæmdi hann
til dauða: Kritón, rökræða hans í fangelsinu um rétt-
mæti þess að brjóta ranglát lÖg; og loks Faidón, rök-
ræða hans og lærisveina hans um líf og dauða og
lífið eftir dauðann, daginn, sem hann skyldi tekinn
af lífi, en þar leggur Platon Sókratesi í munn margar
helstu kenningar heimspeki sinnar.
Verð til félagsmanna kr. 480 00 + söluskattur.
Mál og mannshugur
HÖF.: NOAM CHOMSKY. íslensk þýSing eftir Halldór
Halldórsson, sem einnig ritar inngang.
Höfundur þessarar bókar er nafnkunnasti málfræð-
ingur samtímans, og hafa hugmyndir hans valdið
tímamótum í sögu málvísinda og annarra mannlegra
fræða á síðasta ártug.
Verð fil félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Iðnríki okkar daga
HÖF.: JOHN KENNETH GALBRAITH. Islensk þý'ðing
eftir dr. Guðmund Magnússon, prófessor, með inn-
gangi eftir dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóra.
John Kenneth Galbraith er einn kunnasti og jafn-
framt umdeildasti hagfræðingur samtímans. Hann er
nú prófessor við Harvard-háskóla. í bókinni er m. a.
fjallað um eðli kapítalisma og sósíalisma og niður-
stöður höfundar munu flestum íslenskum lesendum
þykja nýstárlegar.
Verð til félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Óbyggð og allsnægtir
HÖF.: FRANK FRASER DARLING. íslensk þySing eftir
Oskar Ingimarsson, bókavörð, með forspjalli eftii
Eyþór Einarsson, grasafræðing.
Höfundurinn, sem er einn af frumkvöðlum vistfræð-
innar og heimskunnur baráttumaður fyrir náttúru-
vernd, segir bókina fjalla um þrjú efni öðrum frem-
ur: „fólksfjölgun, mengun og örlæti jarðar", en þetta
eru sem kunnugt er þrjú helstu áhyggjuefni í opin-
beru lífi síðustu ára um víða veröld.
Verð fil félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Um sálgreiningu
HÖF.: SIGMUND FREUD. íslensk þýðing eftir Maiu
Sigurðardóttur sálfræðing, með inngangi eftir dr.
Símon Jóh. Ágústsson, prófessor.
I þessari bók eru fimm fyrirlestrar, sem Freud flutti
í Bandaríkjunum árið 1909. Fjallar hann þar um mörg
höfuðatriði sálgreiningarinnar: um eðli móðursýki, til-
finningalíf barna og túlkun drauma.
Verð til félagsmanna kr. 200,00 + söluskattur.
Bera bý
HÖF.: KARL VON FRISCH. íslensk þýðing eftir Jón O.
Edwald, lyfjafræðing, með forspjalli eftir Örnólf
Thorlacius, menntaskólakennara.
Bók þessi lysir einhverjum víðfrægustu tilraunum
sem gerðar hafa verið á sviði almennrar líffræði á
20stu öld, en niðurstöður þeirra hafa því skipað höf-
undinum í fremstu röð líffræðinga samtímans. Höf-
undurinn fékk Nóbelsverðlaun í læknisfræði 1973 fyr-
ir rannsóknir sínar.
Verð til félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Málsvörn stærðfræðings
HÖF.: GODFREY HAROLD HARDY. Með inngangi
eftir C. P. Snow, en íslenska þýðingu gerði Reynir
Axelsson.
Bókin er persónulegt varnarskjal lærdómsmanns sem
var í hópi fremstu stærðfræðinga veraldar á fyrstu
áratugum þessarar aldar. Inngangur Snows lávarðar
um Hardy er ein snjallasta mannlýsing hins kunna
skáldsagnahöfundar.
Verð til félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Samræður um trúarbrögðin
HÖF.: DAVID HUME. íslensk þýðing eftir Gunnar
Ragnarsson, skólastjóra, með inngangi eftir Pál S.
Árdal, prófessor.
Samræður Humes um tilveru Guðs og eðli og hlut-
verk trúarbragða eru eitt mesta tímamótarit í hug-
myndasögu Vesturlanda. Prófessor Páll S. Árdal,
einn af kunnari sérfræðingum samtímans um kenn-
ingar Humes, ritar ýtarlegan inngang um höfundinn
og bókina.
Verð lil félagsmanna kr. 480,00 + söluskattur.
Mennt og máttur
HÖF.: MAX WEBER. íslensk þýSing eftir Helga Skúla
Kjartansson með inngangi eftir Sigurð Líndal.
Höfundur þessarar bókar var einn merkasti þjóðfé-
lagsfræðingur sem uppi hefur verið. í bókinni birtast
tveir fyrirlestrar hans um tvö efni sem hann fjallaði
um af mestri skarpskyggni: um hlutverk fræðimanna
með sérstöku tilliti til þeirrar kröfu að þjóðfélagsfræði
séu fyllilega hlutlaus sem önnur fræði, og um hlut-
verk stjórnmálamanna með sérstöku tilliti til kenn-
inga Webers um eðli ríkisvaldsins og þróun þess á
Vesturlöndum. í inngangi fjallar Sigurður Líndal
meðal annars um kenningu Webers um mótmælenda-
sið og auðhyggju.
Sendum ókeypis skrá yfir öll lærdómsrit H.Í.B. o. fl.
bækur. Takmarkið er: Lærdómsritin inn á sérhvert
íslenskt menningarheimili.
Hið íslenska bókmenntafélag
Vonarstræti 12 (stofnsett 1816), sími 21960. (Sendum
gegn póstkröfu hvert á land sem er).