Alþýðublaðið - 14.01.1967, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 14.01.1967, Qupperneq 1
Laugardagur 14. janúar 1967 - 10. tbl. 48. árg. - VERÐ 7 KR. Þorvaldur Ari haföi vopnið meðferðis Enn stendur yfir rannsókn á | morðmálinu og hafa 16 vitni verið ' yfirheyrð og er eftir að yfirheyra enn fleiri. Ákærði, Þorvaldur Ari Arason, hefur viðurkennt að hafa korrvið með hnífinn sem hann; stakk konuna með heiman frá sér en neitar að hafa framið verknað- inn að yfirlögðu ráði. Eins og sa'gt hefur verið frá í Iblöðum var Þorvaldur Ari með fleira fólki i samkvæmi um nótt- ina. Fór hann úr samkvæminu um nóttina og heim til sín og viður- kennir hann að þá 'hafi hann tek- ið hnífinn. Fór hann síðan aftur í samkvæmið. Enginn varð var við Iþegar hann fór en hins vegar man fólkið eftir þegar hann kom aft- ur. Hafði hann þá áfengisflösku meðferðis. Kl. 7.45 tók leigubíll Þorvald Moran lávarður og BMA sættast LONDON, 13. jan. (NTB-Reuter) — Sættir hafa tekizt með Moran lávarði, lækni Sir Winston Chur- chills, og brezka læknasambands- inu CBMA) í deilu þeirra um bók lávarðarins um Churchill, sem út kom í fyrra. Moran lávarð'lu• lief- ur dregið' til baka stefnu sína gegn BMA, sem vítti lávarðinn fyrir hinar nálcvæmu lýsingar lians á heilsufari Churchills síff- ustu æviár hans og hefur haft í hyffkju aff víkja honum úr félag- inu. Ara á mótum Laugavegs og Klapp- arstígs. Ók hann honum á Skjald- breið. Leigubílstjórinn kannaðist við manninn í sjón. Að Skjald- breið var komið 10 mínútum fyr- ir átta. Þar hringdi Þorvaldur Ari dyrabjöllunni og kom næturvörð- ur til dyra. Þekkti hann ekki manninn en lýsingin á honum kemur heim við kærða. Vildi ihann eiga viðskipti en það sem beðið var um var ekki til og fór Þor- valdur Ari strax út aftur. Þá var leigubíllinn farinn því leigubíl- stjórinn kærði sig ekki um að aka með manninn áfram þar sem liann var alldrukkinn. Rannsóknarlög- reglan hefur látið lýsa eftir á bílastöðvunum hvort nokkur kann aðist við það að hafa ekið mann- inum að Kvisthaga en enginn kann ast við að hafa gert það. Eru til- mæli lögreglunnar að ef einhver kannast við að hafa ekið kærða um nóttina eða morguninn sem morðið var framið, að hafa sam- 'band við rannsóknarlögregluna. Er um þrjár ökuferðir að ræða. Um nóttina fór hann frá mótum Klapparstígs og Laugavegar vest- ur á Sólvallagötu 63. Einhver virð ist hafa tekið manninn upp í bíl vesta.'-lejga á Hringbrautinni og ekið honum að fyrrgreindum gatna mótum. Og ef einhver hefur orð- ið ferða hans var frá Skjaldbreið að Kvisthaga um áttaleytið um morguninn er sömuleiðis beðið um að láta lögVegluna vita. Kærði hefur viðurkennt að hafn keypt hnífinn ásamt öðrum bús- 'áhöldum í verzlun viku fyrir jól. Keypti hann varning fyrir nokkui' Framhald á 15. síðu. | Nýtt tæki í I sjónvarpib Fyrir skömmu kom til sjónvarpsins nýtt tæki, sem gjör- breytir vinnuaðstöffu í studioinu. Hér er um aff ræffa fullkom- iff ljósaborð, en hingaff til hefur útbúnaður á því sviði veriff mjög frumstæffur. Þessa dagana er unniff aff því aff koma Ijósaborðinu upp og verffur það væntanlega tekiff í notkun áffur en langt um líffur. Viff segjum frá ýmsu öffru í sam- bandi viff sjónvarpiff á bls. 3 í dag. (Mynd: Bjarnl.) Loftorusta yfir ormósusundi TAIPEH, Formósu, 13. jan. (NTB -Reuter) — Flugmenn kínverskra þjóffemissinna á Formósu héldu því fram í dag, aff þeir hefffu sigr- aff kínverska kommúnista í fyrstu loftorrustunni yfir Formósusundi Enn berast ávísanír frá Bonnie Parker Rykjavík, OÓ í gær barst rannsóknarlö'g- reglunni ný ávísun sem útgefin er af Bonnie Parker, sem nú lifir í vellystingum praktuglega í hinu glæsilega SAS-hóteli í Kaupmannahöfn. Ávísunina seldi hún í verzlun í Reykjavík, var hún að upphæð 8945,oo kr. Var hún stíluð á banka í New York en útfyllt með íslenzk- um krónum og má furðulegt heita að hægt skuli að selja slíka ávísun, en ungfrú Parker virðist hafa komizt upp með sitthvað hér á landi, sem ekki er á allra færi. Hér skildi 'hún eftir, fyrir utan Rollman, mikið af fatnaði. Búið er að skila vörum í verzl- anir sem hún hafði keypt fyrir rúmlega 80 þúsund krónur. Þá skildi hún eftir tvo gríðarstóra fatapoka. Er sá fatnaður keypt- ur í Bandaríkjunum. Ekiki hefur hún enn sent Rollman peninga eins og hún lofaði, en hann er hér peninga laus og allslaus yfirleitt. Hann er ekki kærður fyrir eitt eða neitt, enda eyddi hann pening- um ungfrúarinnar í þeirri góðu trú að hún væri flugrík og vissi ekki að ekki var til innistæða fyrir ávísununum. Ekki hafa verið gerðar neinar ráðstafan- ir til að ná í Bonnie Parker í Kaupmannahöfn. síffan valdabaráttan í Kínverska alþýffnlýffveldinu vakti vonir hjá Jjjóffernissinnum urn, aff þeir gætu gert velheppnaða innrás á megin- land Kína. Landvarnaráðuneytið iá Formósu tilkynnti, að fjórar af þotum Chi- ang Kai-shekshershöfðingja hefðu skotið niður tvær af 12 þotum kommúnista af gerðinni MIG-15, sem lögðu til atlögu yfir Formósu sundi. Allar flugvélar kínverskra þjóðemissinna sneru heilu og höldnu aftur til bækistöðva sinna. Ekkert bendir til þess, að loft- orrustan, hin fyrsta um að minnsta kosti eins árs skeið, sé fyrirboði nýrra átaka á hinu 160 km breiða sundi sem skilur þjóðernissinna frá meginlandinu, sem þeir neydd ust til að flýja 1940. ★ TÆKIFÆRIS BEÐIÐ Flugmenn þjóðernissinnastjórn- arinnar voru á venjulegu eftirlits flugi norðaustur af eynni Quemoy, sem er á valdi þjóðernissinna, seg- ir í tilkynningu ráðuneytisins á Formósu. Frá Rauða Kína hafa engar fréttir borizt um loftbardag ann. Þjóðernissinnar halda áfram „taugastríði" sínu gegn kommún- istum. Aðspurður hvort þjóðern- issinnastjórnin mundi reyna að færa sér í nyt ókyrrð þá sem ríkir í alþýðulýðveldinu, sagði ofursti Framhald á 15. siðu. SAS SEMIIR VIÐ RÖSSA OSLO, 13. jan. (NTB) — Loftferffa viðræffum SAS-landaniia og Sov- étríkjanna lauk í Mos'ivu f dag, og aff sögn fréttaritara norska rík- isútvarpsins' fær SAS I.eyfi til aff halda uppi flugferffum nm Moskvu og yfir Síberíu til Japun og fjar- lægari Austurlanda. Auk þess verffur SAS leyft aff halda uppi ferðum til Leningrad og Riga. í staðinn fær sovézka flugfélag- ið Aeroflot leyfi til að láta flug- vélar félagsins fljúga í lofthelgi Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar á.leið ýeirrr frá > ioskvu til Banda Framhald á 15. síðú.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.