Alþýðublaðið - 14.01.1967, Side 2
ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGAFÉ-
LAGIÐ TEKUR TIL STARFA
Stjórn Alþjóða líftryg-gingafélagrsins: Arent Claessen jr.. Sigurgeir Sigurð'sson, frú Sigríður Skúladóttir,
Konráð Axelsson, formaður og dr. Gunnar G. Schram.
Mao vill lægja mesta
otsa byltingarinnar
PEKIJVG, 13. janúar
(NTB-Reuter).
Mao Tse-tung virðist nú vilja,
að menningarbyltingunni verði
Italdið í skefjum, samkvæmt til-
vitnUnum í ræðu, sem hann hélt
nýlega og birt var á veggspjöld-
um í Peking í dag. Mao mun hafa
sagt, að liann hafi alltaf viljað
sameina öfl til vinstri og i miðju
og væri ósammála þeim, sem
segðu að' byltingin ætti eingöngu
að vera verk „hinna hreinu vinstri
sinni“.
Mao formaður mun einnig hafa
sagt, að betra væri að leyfa nokkr
um þeirra sem gert hefðu skyss-
ur, að halda stöðum sínum og
setja þá undir eftirlit fjöldans en
að bola þeim burtu. Mao mun
hafa sagt þetta á fundi . menn-
ingarmálanefnd miðstjórnar
kommúnistaflokksins. Fyrst í ræð
unni lét liann í ljós ánægju með
aðgerðir „byltingarsinnaðra“
verkamanna og samtaka í Siiang-
hai, sem hafa steypt embættis-
mönnum þar_af stóli og gefið
þeim að sök að hafa blekkt fjöld
ann með efnaliagslegum hlunnind
um. En seinna lét hann í ljós
áðurnefndar skoðanir, er liann
skoðaði kínverskar byltingar í
sögulegu ljósi.
Kinverskumælandi dipiómatar
telja engan vafa á því, að sagt
verði skilið við nokkra öfga-
kenndustu þætti menningarbj'lt-
ingarinnar
+ MAO ENN f PEKING?
Veggspjöld herma, að Mao
dveljist enn £ höfuðborginni, en
almeunt hefur verið álitið, að
hann hafi haldið suður á bóginn
í þeim tilgangi að dveljast þar í
vetur. Eitt af blöðum rauðu varð
liðanna hermir, að Chou En-lai
forsætisráðherra hafi sagt á fundi
með rauðum varðliðum, að Mao
hafi dvalizt í Peking síðan síðasti
stóri fjöldafundurinn var haldinn
2G. nóvember.
Þetta blað segir, að „vond öfl“
hafi dreift þeim orðrómi, að Mao
sé nýkominn til Peking frá Shang
hai og hafi síðan gagnrýnt eigin
konu sína, Chiang Ching. Hún
er varaformaður menningarmála-
nefndar miðstjórnarinnar og 'gegn
ir svipuðu lilutverki í hernum.
Hún er því í hópi mestu valda-
mannanna í Kína.
Samkvæmt fréttum, sem borizt
liafa til Hongkong, herma önnur
veggspjöld í Peking, að Mao hafi
Framhald á 15. síðu.
UM sl. áramót tók til starfa
nýtt, íslenzkt líftryggingafélag, Al-
þjóða Líftryggingafélagið h.f. og
eru skrifstofur félagsins að Aust-
urstræti 17, Reykjavík. Hið nýja
íslcnzka félag mun einvörðungu
stunda hér líftryggingastarfsemi,
eins og nafnið gefur raunar til
kynna, og er það fyrsta félagið
sinnar tegundar, sem hér er stofn-
að frá 1949.
Hið nýja félag var stofnað á
sl. ári, og hefur undirbúningur að
starfsemi þess staðið síðustu mán-
uðina. Skrifstofur þess eru í liúsi
Silla & Valda, Austurstræti 17,
eins og fyrr segir.
Alþjóða Líftryggingarfélagið
mun fyrst um sinn einvörðungu
bjóða viðskiptavinum sínum
tvenns konar áhættulíftryggingar,
þ. e. líftryggingar, sem aðeins
greiðast við dauðsfall. Innan
'♦ramma þessara tveggja líftrygg-
ingategunda er um ýmislegt að
velja, og geta viðskiptamenn
þannig t. d. tryggt sér afsal ið-
gjalda af hálfu félagsins verði
þeir fyrir örorku, og einnig að
verði dauðsföll af slysförum,
greiðist tryggingarupphæðin tvö-
föld. Slíkar tvöfaldar greiðslur
varðandi dauðsföll af slysförum
eru algildar í liftryggingum t.d.
í Bandaríkjunum, þar sem líf-
tryggingar eru e.t.v. hvað full-
komnastar, en hins vegar er slíkt
nýmæli í líftryggingum á íslandi.
Undanfarin tvö ár hefur fram-
kvæmdastjóri liins nýja líftrygg-
ingafélags, Konráð Axelsson, veitt
forstöðu hér á landi aðalumboðs-
skrifstofu brezka líftryggingafé-
lagsins The International Life In-
surance Co. (U.K.) Ltd. Sú starf-
semi gaf ótvírætt til kynna, að
mikil þörf er hér á landi fyrir
frjálsar líftryggingar í þeirri fjöl-
breytilegu mynd, sem erlendis
tíðkast. Aðalumboðsskrifstofa ILI
mun hér eftir ekki annazt frek-
ari sölu líftrygginga, heldur ein-
ungis annast þjónustu við hina
mörgu viðskiptamenn sína vegna
trygginga þeirra og verður engin
breyting á þeim við tilkomu hins
nýja félags.
Umboðsmenn þeir, sem áður
störfuðu hjá Aðalumboðsskrif-
stofu ILI hafa flestir verið ráðnir
til Alþjóða Líftryggingafélagsins
h.f., og hefur Haukur Hauksson,
fyrrum blaðamaður við Morgun-
Framhald á bls 14.
FYRSTIFUNDUR IÐNÞRÓUNARRÁÐS
Hinn 13. janúar kom Iðnþró-
unarráð, sem iðnaðarmálaráð-
herra hefur skipað, saman til
fyrsta fundar.
í framhaldi þess, að stóriðju-
nefnd hefur lokið verkefni sínu
sem var einkum að kanna mögu
leika þess, að hafin yrði 'ál-
bræðsla á íslaridi og undirbúa
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar
samningagerðir þar að lútandi,
athugun á að reist yrði kísil-
gúrverksmiðja á Islandi, lög-
gjöf þar að lútandi o. fl., var á
sl. ári ákveðið að skipa Iðnþró-
unarráð, sem yrði iðnaðarmála
ráðuneytinu til styrkta)' um
meðferð meiri háttar mála, er
snerta iðnþróun landsins.
Verkefni Iðnþróunarráðs
verður að nokkru framhald en
þó víðtækara en verkefni stór-
iðjunefndar, þar sem í Iðnþró-
unarráði yrði fjallað um iðn-
þróun landsins almennt, fjár-
hagslega, viðskiptalega og
tæknilega, og tekið við rann-
isóknarefnum eða stuðlað að
rannsóknum 'á möguleikum til
nýri'a iðngreina. Samhliða efl-
ingu þeirra, sem fyrlr eru í
þeim tilgangi að vinna að fram
kværrid mála, veita einstakling
um, félögum og samtökum iðn-
aðarins brautargengi þar að
lútandi. Iðnaðarmálaráðherra
Framhald á 15. síðu.
Hermenn
takð völdin
í Togo
LOME, TOGO, 13. jan. (NTB-Reu-
ter) — Herinn í smáríkinu Togo
í Vestur-Afríku tók völdin í land-
inu í sínar hendur í dag án þesg
að til blóðsútliellinga kæmi. For-
’sdlinn, Nioota/s Girunitzky, seirt
komst til valda þegar herinn
steypti Sylvanus Olympio forseta
af stó.li fvrir nákvæmlega fjórunl
árum, sagði af sér af fúsum vilja.
Leiðtogi byltingarinnar, Eiienne
Eyadem, sem er forseti herráðs-
ins og viðriðinn byltinguna 1963,
sagði að herinn hefði ákveðið að
taka völdin í sínar hendur til að
binda enda á glundroðann í stjórn
málum landsins, er gæti komið af
stað borgarastyrjöld. Kyrrt er í
höfuðborginni, en lýst hefur ver-
ið yfir neyðarástandi og útgön'gu-
bann fyrirskipað. Þingið hefur ver
ið leyst upp og stjdrnarskráin úr
gildi numin.
2 14. janúar 1967 — ALÞÝÖUBLAÐIÐ