Alþýðublaðið - 14.01.1967, Page 6
Izvestia gagn-
rýnir Gyðinga
Anna Karina í Made in USA,
NÝJUSTU MYNDIR GODARDS
JEAN — LUC GODARD, sá
margnefndj franski kvikm.leikst.
þeytir nú írá sér hverri kvikmynd
inni á fæ’.ir annarri. Á síðasta
ári sendi Lann frá sér a.m.k. tvær
er komu á markaðinn svo til hver
á eftir a inarri. Þessar myndir
voru Tven:it eða þrennt, sem ég
veit um hana (Deux ou trois chos
es que je ;ais d‘elle) og Made in
USA. Syhain Regard átti viðtal
við Godar'l í Le Nouvel Observa
teur, þar sem hann sagði m.a. um
fyrrnefndar myndir sínar:
— Ég \ :nn nú að tveim mynd
um samtír is. Sú fyrri heitir Deux
ou trois Shoses que je sais d‘elle
og hin er Made in USA, þar sem
Anna Karina fer með aðalhlut
verkið. Þessar tvær kvikmyndir
eiga ekkert sameiginlegt. Stíll
þeirra er gerólíkur það er í i
hæsta lagi hægt að segja að þess
ar tvær myndir hafi það eitt sam
eiginle^t að veita mér kraft til að |
skýra nútímalíf, brjóta það til
mergjar og lýsa ólíkum viðhorf
um þess.
— Hvað viðvíkur Made in USA
er það fyrsta kvikmyndin þar sem
ég reyni að segja sögu. En slíkt
á raunar ekki við lunderni mitt. Ég
get ekki sagt sögur. Ég er vanur
að haga því til eftir mínum eigin
' geðþótta og segi allt ó einu andar
taki. Ef ég ætti að gera grein fyr
ir sjálfum mér, mundi ég segja,
að ég væri ,,málari orðsins“ —
eins og maður igæti verið „homme
de lestre". Þá gerðist það í
fyrsta skipti að ég mat meira
jh;nn samhangandi söguþráð, en
gat samt ekki fengið mig ofan
af því að búa sögunni þjóðfélags
lega umgerð. Myndin fjallar sem
sé um geigvænleg áhrif Bandaríkj
anna á þjóðfélagið. Þar af dregur
kvikmyndin nafn sitt.
— Hin kvikmyndin er metorða
gjarnari, ef ég mætti komast svo
að orði. Bæði vegna þess að hún
er eins konar heimildarmynd (ger
ist í íbúðarhverfi Stóru-Parísar)
og einnig vegna þess að hún er
hrein tilraunamynd. í þessari kvik
mynd er ég allan tímann að spyrja
sjálfan mig, hvað ég sé nú eigin
lega að gera. Að sjálfsögðu fjall
ar hún um lífið, nánar tiltekið
skækjulifnað í hermannabúðum,
en ætlun mín með gerð þessarar
myndar, var að koma með ákveðn
ar hugmyndir til breytingar, þró
sýnir Biedermann
og brennuvargana
L.M.A. frumsýriir nk. föstudag
kl 8 e.h. leikritið Biedermann og
brennuvargana eftir svissneska
rithöfunöinn Max Frisch Leik-
stjóri er Erlingur E. Halldórsson.
Þorgeir Þt "geirsson, kvikmynda-
tökumaður, þýddi leikritið.
L.M.A. réði til sín í vetur Erl
ing E. HaPdórsson frá Reykjavík,
en hann hefur lagt stund á nú-
tímatónlist. Var Erlingur fyrst'
leiðbeinandi á framsagnarnám-1
skeiði, sem haldið var innan M.A. j
síðan stió’-naði hann æfingum á
leikriti félagsins, Biedermann og
brennuvnrgamir, og hefur nú
dvþli?t á Akureyri í tvo mánuði. j
Biedermann og brennuvargarn-
ir,i er nútímaverk, gamanleikrit, j
bl^ndað hit.ru háði og ádeilu.
Lcjikrit þe(ta, sem talið er eitt
alljra berta verk Max Frisch, var
fyrst s ' nt Ztirich 1958 og vakti i
feikna athvgii. Hefur það síðan
verið svnt víða um heim m. a.
á Nori-urJí ndum, París, London,
■v'kjavík og. á Flateyri og alls
staðar hlotið frábærar viðtökur,
enda er leikritið áhrifamikið verk
snilldarvel samið. (Annað af
bekktustu verkum höfundar er
l'-ikritið Andora, sem var svnt í
T,ióðleikhúsinu 1963) í uppsetn-
ingu L.M.A. verður eftirleikurinn,
sem fram fer í Víti, tekinn með,
en honum var sleppt, þegar
Gríma sýndi leikritið í Reykjavik
1962 Eins og svo mjög tíðkast í
nútímaleikritum er leikumgjörðin
mjög einföld, en ljósabúnaði Sam
komuhússins aftur á móti beitt til
hins ýtrasta. Leikendur og starfs
fólk allt eru nemendur M A.
L.M.A. hefur nú í ár ráðizt í
mjög erfitt en jafnframt skemmti
legt og nýstárlegt verkefni, og
það er von leikfélagsins, að Ak-
ureyringar ljái hinni m’kilvægu
„prédikun“ Max Frisch eyra.
unar á kvikmyndasköpun og koma
upp eins konar kerfi þar sem þessi
þróun yrði hagnýtt.
— Kvikmyndin hefst á útskýr
ingu. Meðan lesið er upp, sjáum
við ólíkar myndir úr atvinnulíf
inu, hermannabragga, hermanna
skála og við sjáum fólk sem berst
áfram til að lifa. Allt í einu fer.é'g
að spyrja sjálfan mig í þaula,
hvort ég noti nú hin réttu orð,
þegar ég tala um allt það, sem
fram fer á tjaldinu. Tökum til
dæmis: — Ég kvikmynda hús og
spyr síðan: „Hef ég einhvern rétt
á að kvikmynda einmitt þetta hús
fremur en eitthvað annað og því
i skyldi ég einmitt gera það á þess
ari stundu en ekki á öðrum tíma?
Til að koma þessu öllu í framkv.
læt ég leikendur taka þátt í þessu
eiginhyggjuvali mínu og einnig
því, er gæti réttmætt slíka ákvörð
un. Hvers vegna geri ég þessa
kvikmynd og hvers vegna á þenn
an hátt? Er Marina Vlady (leikur
aðalhlutverk í myndinni) samsvar
andi þeirri manneskju, er býr í
þessu stórborgarhúsi. Sú spurning
varir allan tímann. Ég sé sjálfan
mig gera kvikmynd og menn sj'á
hvað ég hugsa. í stuttu máli sagt,
þetta er ekki kvikmynd heldur
tilraun til að gera kvikmynd og
þarinig lítur hún einmitt út fyr
ir að vera.
Og Godard heldur áfram:
— Þar til nú höfum við lifað
í lokuðum heimi. Kvikmyndin
framfleytti sér á kvikmynd, hún
stældi sjálfa sig. Ég tók eftir því
að þegar ég í einni af fyrstu kvik
myndum mínum stefndi að ein
hverju ákveðnu marki þá tókst
það, af því að óg hafði séð það
áður, í einhverri annarri kvik-
I mynd. Sýndi ég lögregluþjón sem
tók upp skammbyssu sína, þá var
það ekki af þeirri nauðsyn að ég
meinti eitthvað sérstakt með því
heldur af því að ég hafði lögreglu
þjón í annarri kvikmynd, sem dró
upp skammbyssu sína úr hylkinu
á sama hátt og ó sama augnabliki
Við reikum milli kerfisbundinna
timabila og byltingartímabila. Nú
lifum við á byltingartímum. Við
verðum að snúa aftur til lífsins.
MOSKVU, 11/1 (NTB-) — Sov-
ézka stjórnarmálgagnið „Izvestía“
gagnrýndi harðlega í dag nokkra
ísraelska ferðaraenn og' diplómata
og sakaði þá um aff stunda njósn-
ir os dreifa andsovézkura zíónista-
ritum.
— Zíonistar eru rausnarlegir.
Þeir liafa engar samvizkukvalir
vegna þeirra dollara, sem frændur
þeirra í Ameríku gefa þeim effa
vestur-þýzkra marka, sem þeir fá
: fyrir aff selja skammbyssur til V-
j Þýzkalands, segir „Izvestia“.
Yfirmaður æslculýðsdeildar
World Jewish Agency, Iliagua Dob
kin, er sakaður um að hafa reynt
að múta ættingjum sínum til að fá
hjá þeim ólöglegar upplýsingar.
Feðgarnir Mohe og Josef Langoc-
ky eru sakaðir um að hafa dreift
áróðursritum, sem ísraelskir dipló
matar létu þeim í té. Starfsmaður
ísraelska sendiráðsms er sakaður
um að hafa látið öðrum ferða-
manni áróðursrit í té, en hann
hafi fleygt þeim í ruslakörfuna.
Mlnningarsjéður
um frú Dóru
Þórhalisdótfur
Hinn 23. febrúar 1965 stofnaði
Forseti íslands herra Ásgeir Ás-
geirsson, börn hans og tengda-
börn, minningarsjóð um forsetafrú
Dóru Þórahallsdóttur, og hafa þau
nú lagt fram allt stofnfé sjóðsins
kr. 300.000.00.
Tilgangur sjóðsins skal vera að
reisa Minningarkirkju á fæðing-
arstað Jóns Sigurðssonar á Rafns-
eyri við Arnarfjörð.
Auk stofnfjárins hafa sjóðnum
þegar borizt nokkrar minningar-
gjafir.
Sjóðurinn er í vörzlu 'biskups-
embættísins, og er gjöfum til hans
veitt viðtaka í skrifstofu biskups
að Klapparstíg 27.
FRÉTTIR í
STUTTU
MÁLI
□ TEL AVIV: ísraelskir ski-ið-
drekar eyðilögðu sýrlenzkan skrið
dreka í nýjum bardögum á landa-
mærum landanna, að því er ísra-
elsmenn sögðu í gær.
□ MIAMI: Tveir fiskimenn biðu
bana og sá þriðji særðist, þegar
bandarískt fiskiskip skaut á tvo
aðra fiskibáta suður af Miami í
Florida í gær. Ekki hefur verið
J skýrt frá orsök atburðarins.
I
i
' □ DAR ES SALAAM: Kínverjar
munu lána Tanzaníu 750.000 pund
og verður það fé helmingur hluta-
fjár í skipaútgerð Tanzaníu, sem
t Kínverjar og Tanzaníumenn reka
| í sameiningu.
£ 14. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ