Alþýðublaðið - 14.01.1967, Síða 9
Helsa Bachmann og Arnar Jónsson.
sið farið hjá þessu: það eru jafn-
ingjar sem taka saman og leggj-
ast út.
Leikhefðin réð einnig skilningi
Björns hreppstjóra sem er á viss-
an hátt lykilhiutverk að leiknum.
Það er aðgætandi að Björn talar
tóma .skynsemi og hefur líka æv-
inlega rétt fyrir sér; hefðin gerir
hann hins vegar, gem vísast vaf
einnig ætlun liöfundarins, að harð-
lunduðum, drottnunargjörnum
hrotta. Guðmundur Erlendsson
fór að þessum hætti með hlut-
verkið og fórst það furðulega
vel, einkum með það í huga að
leikarinn er viðvaningur sem
hingað til hefur einungis farið
með mjög lítil hlutverk. Með öðr-
um skilningi Björns yrðu úrkostir
Höllu að vísu allt aðrir í fyrri
þáttunum og örlög hennar að því
skapi, — en svo langt gekk ekki
„raunsæi” þessarar sýningar.
Aqnar nýliði fór með Arnes,
Pétur Einarsson, sem undanfarin
ár hefur Ieikið ýmis hlutverk hjá
Leikfélaginu, og vann tvímæla-
lausan sigur. En á ekki Arnes að
vera sýnu eldri Kára og minnsta
kosti jafngamall Höllu, með þeim
hætti jafnkosta henni eins og að
sínu leyti hreppstjórinn? Arnes
Péturs Einarssonar var ungur
maður, ógæfumerktur og fjarska
dimmt yfir honum, einhæf lýsing
en traustvekjandi, þótt Arnes
sagnamaður yrði útundan. Athygli
vakti að í öðrum þætti var við-
hafður annar texti en vanalegur
er; í stað sögunnar um hversu
laxar gengu í árnar segir Arnes
hálfa útilegumannasögu, eins kon-
ar forspá um ævi Höllu og Kára;
mér skilst að þessi breyting sé
eftir seinni gerðum leiksins á
dönsku. Og þótt eftirsjá sé að
ævintýrinu um snæugluna kann
breytingin að þykja til bóta leik-
rænt séð; allténd minnir hún á
að enn er ekki til viðhlítandi út-
gáfa á verkum Jóhanns Sigurjóns-
sonar, enginn endanlegur texti.
Um önnur hlutverk er ekki á-
stæða að fjölyrða. Ég kann að vísu
ekki til fulls við hina andkafa-
djúpu Guðfinnu Ingu Þórðardótt-
ur: og Guðmundur Pálsson í
hlutverki sýslumanns bætir
ckki um hina vandræðalegu
„handtöku” Kára, líklega slak-
asta atriði leiksins. • Gestur Páls-
son leikur Arngrím holdsveika,
lifandi skelfing örvasa; Haraldur
Björnsson og Þóra Borg Jón bónda
og konu hans og sópar að þeim
þegar þau birtast á sviðinu með
sínu liði, en ekki verður meira
úr því; . aðrir sem við söguna
koma, auk statista, eru Bjarni
Steingrímsson, Margrét Magnús-
dóttir, Helga Kristín Hjörvar og
Guðný Halldórsdóttir að ógleymdri
Margrétu Pétursdóttur sem er
Tóta litla útilegubarn. En allt
þetta fólk gerir sína skyldu stór-
tíðindalaust samkvæmt anda og
stefnu sýningarinnar, sýnilega
vandað vel til ■ vinnubragða af
þess hálfu og leikstjórans. Tíð-
indum sæta aftur á móti leiktjöld
Steinþórs Sigurðssonar, sem eru
einstakt undur að illri gerð, lit og
lögun. Þar ber hæst sviðsmynd
annars þáttar sem yfirgengur all-
an natúralisma: þegar tjaldið fer
frá opnast manni virkileg útsýn
yfir íslenzkt landslag að hausti.
Öræfin í 3. þætti eru að vísu hlið
stæð völundarsmíð, en gjalda
þess að þau eru nákvæm hliðstæða
fyrri myndinni að gerð og bygg-
ingu, hvort sem því valda tækni-
legar ástæður eða bara sparsemi.
Þetta ber hæst, en kofi Eyvindar
í fjórða þætti er að vísu skil-
merkilega gerður, og baðstofan í
fyrsta þætti rauntrú baðstofu-
mynd, og ber langt af því „þjóð-
lega” skurðverki sem löngum
mun hafa tíðkazt. Steinþór Sig-
urðsson hefur áður vakið athygli
með leiktjöldum sínum. En eru
því virkilega engin takmörk sett,
sem hann getur, og gerir?
Að lokinni sýningu á miðviku-
dagskvöld stigu menn fram og
færðu Leikfélaginu heillaóskir,
blóm og gjafir á afmælinu; Brynj-
ólfur Jóhannesson talaði af hálfu
leikara, Guðlaugur Rósinkranz
þjóðleikhússins, Þorkell Sigur-
björnsson bandalags listamanna,
Hannes Þorsteinsson úr hópi á-
horfenda, en Steindór Hjörleifs-
son, formaður félagsins þakkaði
góðar óskir. Notaði hann þetta
tækifæri til að hylla liina fyrstu
Höllu, frú Guðrúnu Indriðadóttur,
og Hafliða Bjarnason dyravörð,
dyggan starfsmann félagsins í
meira en fjörutíu ár. Fór það
állt vel úr hendi á sviði og í sal
— og liafa islenzkir lcikhúsgest-
Framhald á 10. síðu.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
í Hafnarfirði
heldur fund mánudaginn 16. janúar kl. 8.30
e. h. í Alþýðuhúsinu.
Fundarefni:
1. Hörður Zóphaníasson,b æjarfulltrúi talar
um bæjarmál.
2. Félagsmál.
3. Fréttir af flokksþinginu.
4. Upplestur.
5. Bingó og kaffidrykkja.
STJÓRNIN.
Til leigu
Hafnarhúsin á Kársnesi í Kópavogi eru til
leigu, stærð 1150 ferm. Húsin standa við
bryggju. Upplýsingar veitir bæjarverkfræð-
ingur.
Umsóknir berist undirrituðum fyrir 1. febrúar
næstkomandi.
13. janúar 1967
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Deildarhjúkrunarkona óskast
Staða deildarhjúkBunarkonu við handlæknis-
deild Landspítalans er laus til umsóknar. Allar
nánari upplýsingar veitir forstöðukona Land
spítalans í síma 24160 og á staðnum.
Reykjavík, 12. janúar 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Deildarhjúkrunarkona óskast
Staða deildarhjúkrunarkonu við Barnaspít-
ala Hringsins, Landspítalanum er laus til um
sóknar. Allar nánari upplýsingar veitir forstöðu
kona Landspítalans í síma 24160 og á staðn-
um.
Reykjavík, 12. janúar 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Breyttur fundartími
á SUJ-fundi í dag
Stjórn SUJ biður þá sem áttu að koma á fund
í hinum bláa sal Hótel Sögu kl. 1.30 í dag, að
koma kl. 2 í aðalandyri gistihússins.
14. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ $