Alþýðublaðið - 14.01.1967, Síða 11
Kolbeinn Pálsson kjörinn
íbróttamaður ársins 1966
KOLBEINN PÁLSSON, körjuknattleiksmaSur úr Kh vur kjörinn
íþróttaniaður ársins 1966 í kosningu Samtaka íþróttafréttamanna,
en þetta er í 11. sinn, sem kosningin fer fram. Siguröur Sigurðs-
son^formaður í Samtökum iþróttafréttamanna afhenti Kolbeini hinn
veglega bikar, sem um er keppt, í hófi að Hótel Söau í gær.
íþróttamaður ársins 1966: 5. Geir Hallsteinssofi, KR 26
Stig 6. Gunnl. Hjálmarsson, Fram 20
1. Kolbeinn Pálsson, KR 63 ; 7.-8. Hermann Gunnarss., Val 19
2. Sigurður Dagsson, Val 45 j 7.-8. Jón Þ. Ólafss., ÍR 19
3. Guðmundur Gíslason, ÍR 32 i 9. Árdís Þórðardóttir Sigluf. 18
4. Ólafur Guðmundsson, KR 30
Geir H. Ilallsteinns, einn bezti
lcikmaður FH
10. Lilja Sigurðardóttir, HSÞ 12
11. Kjartan Guðjónsson, ÍR 9
12. Hrafnhildur Guðm.d., ÍR 8
13. Kristinn Benediktsson, ÍBÁ 7
14. -15. Ármann J. Láruss., UBK 6
14.-15. Ingólfur Óskarss., Fr. 6
16.-17. Davíð Valgarðss., ÍBK 5
16.-17. Jón Árnason, ÍBK 5
18. Valbjörn Þorláksson, KR 4
19. -20. Árni Njálsson, Val 1
19.-29. Magnús Guðm.ss., ÍBA 1
Kolbeinn Pálsson átti frábæra
leiki á sl. ári. Hann er einn 'af
íslandsmeisturum KR, í landsleikj
um körfuknattleiksmanna var
Kolbeinn fyrirliði liðsins og stóð
með miklum ágætu’m. Hann skor-
aði t.d. sigurstigin í leiknum við
Dani á Norðurlandamótinu í
Kaupmannahöfn og var langbezti
maður- liðsins. íslendingar hlutu
bronzverðlaunin á því móti og
sigruðu Dani og Norðmenn. Einn-
ig sigruðu íslendingar Skota tví-
vegis. Þá átti Kolbeinn mjög góða
leiki í keppninni við ítölsku Evr-
ópumeistarana Simmenthal.
í samtali við Íþróttasíðuna sagð
ist Kolbeinn hafa byrjað í knatt-
spyrnu 7 ára gamall og þá í Fram.
Þegar hann fluttist í Vesturbæ-
inn gekk hann í KR og hóf að
æfa handknattleik og körfuknatt-
leik, en síðarnefnda greinin varð
hans aðalgrein og leikni hans hef
ur sífellt aukizt í íþróttinni. Hann
er þó frekar lágvaxinn af körfu-
knattleiksmanni að vera, en bæt-
ir það upp með miklum hraða og
baráttuvilja. Íþróttasíðan óskar
Kolbeini til hamingju með sigur-
inn. Kolbeinn er Reykvíkingur,
fæddur 26. nóveniber 1945.
Annar varð Sigurður Dagsson
Val, en hann stóð með miklum
ágætum í íslandsmótinu í knatt-
spyrnu og ýmsir héldu því fram,
að hann hefði unnið mótið fyrir
Val, en hann sýndi frábæra leikni
á örlagastund. Sigurður er einnig
ágætur handknattleiksmaður.
Guðmundur Gíslason, ÍR varð
þriðji, en hann stóð sig bezt sund
manna á ári, sigraði í tveim grein
um, þeim einu í landskeppninni
við Dani og setti auk þess nokk-
ur íslandsmet.
Ólafur Guðmundsson, KR
hlaut fjórða sæti, en hann setti
m.a. Norðurlandamet í tugþraut
og vann auk þess ýms fleiri góð
afrek.
Þá varð Geir Hallsteinsson, FH
einn okkar bezti handknattleiks-
maður fimmti, en félag hans, FH
varð íslandsmeistari í handknatt-
leik, eins og kunnugt er.
Áður en Sigurður Sigurðsson
lýsti úrslitum samkeppninnar
minntist hann Benedikts G Waage,
fyrrverandi heiðursforseta ÍSÍ,
en hann lézt á sl. ári. Benedikt
Framhald á 14. síðu.
ÍÞRÓTT AMAÐUR
ÁRSINS
Iíolbeinn Pálsson, KR íþróttamaður ársins 1966 með hinn fagta
farandsgrip Samtaka íþróttamanna.
FJÓRIR LEIKIR í 2. DEILD OG
FH-FRAM LEIKA Á SUNNUD.
Sovétríkin sigruðu
A-Þýzkaland 22:17
Danir og Svíar komast í úrslit, en
Norðmenn töpuðu fyrir Ungverjum
Um helgina verður mikið um |
að vera hjá handknattleiksmönn-
um, á laugardag og sunnudag
verða háðir fjórir leikir í 2. deild
karla, á sunnudag tveir leikir í 1.
deild kvenna og á mánudagskvöld
tveir leikir í 1. deild karla, allt
leikir sem ógerlegt er að spá
nokkru um úrslit í fyrirfram.
Á laugardag leika Akureýri og
KR og Keflavík og ÍR. Leikirnir
hefjast kl. 20,15. Á sunnudag kl.
14 leika Akureyri og Þróttur og
síðan KR og ÍR. Strax á: eftir
leika Víkingur og Valur og FH
og Fram í 1. deild kvenna, en
að lokum leika FH og Akranes í
2. flokki karla.
Loks leika Valur og Haukar
og FH og Fram í 1. deild karla á
leikir ,sem allir hafa beðið eftir,
sérstaklega verður skemmtilegt
að sjá leik FH og Fram, en þessi
lið hafa einokað íslandsmeistara-
titilinn í handknattleik undanfar-
in ár.
Allir leikirnir fara fram í í-
þróttahöllinni í Laugardal.
Heimsmeistarakeppnin í hand-
knattleik hélt áfram í Svíþjóð
í gær og ýmsir leikir voru mjög
spennandi.
í a-riðli hafa Svíþjóð og Júgó-
slavía tryggt sér rétt til að leika
í átta liða úrslitum, en í gær sigr-
aði Svíþjóð Sviss með 19:16 (10:8)
og Júgóslavía vann Pólland 22:17
(14:8). Leikur Svía og Svisslend-
inga var mun jafnari en búizt
var við, en sigur Svía var þó
verðskuldaður.
Það er einnig öruggt, að Vest-
ur-Þýzkaland og Ungverjaland
skipa tvö efstu sætin í b-riðli,
en Noregur og Japan falla úr.
Vestur-Þjóðverjar sigruðu Japan
38:27 (17:12) og Ungverjaland
Noreg 15:11 (7:7) í geysispenn-
andi leik, þar sem Ungverjar voru
þó sterkari aðilinn í síðari hálf-
leik.
Keppnin í c-riðli er geysihörð
milli Rúmena, Rússa og Austur-
Þjóðverja. í gær sigruðu Sovét-
ríkin Austur-Þýzkaland með 22'-17
(12:8) og Rúmenar Kanada 27:3
9:1). Þar sem markahlutfall ræð-
ur um þátttökurétt í átta liða úr-
slitum er ógerlegt að segja til um
það, hvert af þrem áðurnefndum
liðurn fellur úr, en sennilega eru
Sovétríkin nokkuð örugg um að
komast áfram, baráttan stendur
milli Rúmena og Austur-Þjóðverja.
Danir sigruðu Frakka í geysi-
spennandi leik um annað sæti í
d-riðli með 9:8 (2:3). Eru Danir
þar með komnir í úrslit. Tékkar
sigruðu Túnis með 23:10 (13:4).
LAUGARDALSHÖLL II. DEILD KARLA
Handknattleikur í kvöld kl. 20.15
ÍBA—KR ÍBK—ÍR
HSÍ
HKRR
14. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ JIJ