Alþýðublaðið - 24.01.1967, Qupperneq 4
Kitstjórar: Gylfi Gröndai (áb.) og Benedikt Gröndal. — RitstjórnarfulK
trúi: Eiður Guönason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906,
Aðsetur Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Eeykjavik. — Prentsmiðja Alþýðu-.
blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintakið,
Útgefandi Alþýðuflokkurinn.
NÝ TÆKNI
NORSK BLÖÐ Rafa undanfarna daga skýrt frá upp
götvun, sem þau telja, að muni hafa mikla þýðingu
fyrir fiskiðnað. Hefur sérfræðingur einn í Fosnavág
fundið nýja leið til að þíða frystan fisk á skömmum
tíma, og er aðferð hans talin bæði ódýr og örugg. Að
vísu hefur hún enn ekki verið reynd á öllum nytjafisk
tim, en mikil bjartsýni einkennir frásagnir af
.|sessu máli.
Blaðið „Fiskaren“ gerði þessa uppgötvun að um
ræðuefni í síðastliðinni viku. Bendir blaðið á, að
fiessi nýja aðferð til að þíða fisk geti haft mikil á-
lirif á rekstur frystihúsa, þar sem hægara ^verður
heilfrysta fiskinn og þíða hann til vinnslu eftir
viid. Tclur hlaðið, að frystihús geti með þessu móti
tryggt sér jafnari og eðlilegri vinnslu og þannig
hætt hag sinn til muna. í Noregi eru yfir 150 frysti
liús.
Islendingar hafa verið fljótir að átta sig á tækni-
legum nýjungum í fiskveiðum og fiskvinnslu. Án
ei'a mun ný tækni eiga eftir að hafa enn mikil á-
hrif í þessum atvinnugreinum og er nauðsyn að
fylgjast vel með.
NÝ KÝNSLÓÐ
ALÞÝÐUFLOKKURINN tók fyrir nokkrum árum
upp í stefnuskrá sína baráttu fyrir 18 ára kosn-
ingaaldri. Þegar kosið er á fjögurra ára fresti til
Alþingis, mundi það þýða raunverulega, að fólk
'kysi í fyrsta sinn 18-22 ára, en ekki 21-24 ára eins
og nú.
Veigamikil rök mæla með þessari breytingu, og
hefur hún verið tekin upp í löndum eins og Sov-
étríkjunum og Bandaríkjunum, en er mikið rædd í
mörgum öðrum löndum. Æskan þroskast nú fyrr
en áður, menntun er meiri og almennari, heimili
stofnuð fyrr og margs konar ábyrgð lögð á herðar
18-21 árs fólki.
;»i
Þegar umræður hófust hér á landi um tillögu Al-
þýðuflokksins, bárust tíðindi af skoðanakönnun í ein
•um framhaldsskólanna, þar sem í ljós kom, að nem
endur voru andvígir lækkun kosningaaldurs. Kom
þetta mörgum á óvart og hefur án efa verið einhvers
kónar samblástur e$a tízkufyrirbrigði, því fátt
þykir unga fólkinu nú betri dægrastytting en að
hijeyksla og vekja undrun samtíðarinnar.
Nýlegar athuganir í skólum í Danmörku og Sví-
þj'óð benda eindregið til þess, að áhugi á stjórnmálum
sé mikill í framhaldsskólum og hefur pólitísk fræðsla
vt rið aukin til að mæta óskum unga fólksins. Er þar
tajlið, að skólafólk sé meðal þeirra þjóðfélagshópa, er
niþsta málefnalega þekkingu hafa á stjórnmálum. Rík
ástæða er til að ætla, að þessu sé eins farið hér á
landi.
4 24. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
i
Iðnaðarmannafélagið
í Reykjavík
100 ára afmælisfagnaður
félagsins verður haldinn að Hótel Sögu föstudaginn 3 fehrúar og hefst
með borðhaldi kl. 19.30 stundvíslega.
Aðgöngumiðar eru seldir í skrifstofu Landssambands iðnaðarmanna,
Iðnaðarbankanum, skrifstofu Meistarasambands iðnaðaramanna, Skip-
holti 70, og Iðnskólanum, Skólavörðuhæð, á venjulegum skrifstofutíma.
(Borð verða tekin frá í Hótel Sögu þ. 30. og 31. jan. kl. 17-19.)
100 ara saga í máli og myndum
Sýning á 100 ára starfi Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík í máli og
myndum verður opnuð almenningi í Iðnskólanum á Skólavörðuhæð —
inngangur frá Vitastíg — kl. 18.00 laugardaginn 28. j'anúar. — Sýning-
in verður síðan opin daglega kl. 15-22 til og með 5. febrúar.
Félagsstjórnin.
krossgötum
★ TRÖLLAKIRKJAN
í SKÓLAVÖRÐUHOLTINU.
Tröllakirkjan í Skólavörðuholtinu
verður mikið yfirlætishús fullgerð. Minnir í raun-
inni lítið á sálmaskáldið góða, sem á sínum tíma
kvað þessar hógværu hendingar: „Sannlega hefi
ég hrokaö mér / hærra en vera skyldi.” Hins vegar
á hún það sameiginlegt með öðrum tröllakirkjum
landsins að gnæfa hátt yfir umhverfið, þótt yfir-
leitt hafi þær það fram yfir hana að fara þokka-
lega í landslaginu. Ætlunin með þessum pistli var
þó ekki sú, að lesa neinn reiðilestur yfir kirkju-
bygginganni eða abbast upp á aðstandendur henn-
ar, enda um tómt mál að tala; húsinu verður hvort
eð er ekki haggað úr þessu. Og er þá ekki um ann-
að að gera en sætta sig við orðinn hlut nauðugur,
viljugur. En oft kemur mér í liug bænahúsið á
Núpsstað, lítið og þekkilegt, þegar ég á leið þarna
fram hjá, alger andstæða grjótkastalans mikla á
Skólavörðuholtinu.
★ LEIFI IIEPPNA BYGGT ÚT.
Eins og kunnugt er hefur verið
gengið frá kirkjulóðinni og holtinu umhverfis. Búið
er að malbika götur og komin grasflöt fram undan
kirkjunni, allt snyrt og snurfusað, sem vera ber á
slíkum stað. Og þakkarvert er það. En það sem
——— fll—
kom mér til að stinga niður penna var þó ekki
beinlínis kirkjan eða kirkjulóðin, heldur sá gamli,
góði sæfari og landkönnuður, sem þar hefur lengi
trónað og staðið í stafni, Leifur heppni. Ég sé
nefnilega ekki betur en honum hafi hreinlega
verið byggt út af staðnum. Kirkjan hefur lagt
undir sig holtið og hann er orðinn þarna eins og
hver önnur hornreka eða utanveltubesefi og alger-
lega ofaukið. Ókunnugir mundu sjálfsagt ætla, að
þarna væri einhver kirkjuleiðtogi eða trúarhetja
á ferð. Og vel má vera, að Leifur hafi ekki verið
verr kristinn en hver annar, sem kemur til með að
sækja þessa kirkju, jafnvel betur kristinn en
allur Hallgrímssöfnuður samanlagður, en sem hann
stendur þarna í stafni skips síns,. snýr baki við
kirkju og horfir til hafs, þá verður hann dálítið
hjákátlegur og utangátta í allri andaktinni. Hann á
ckki heima þarna lengur.
Það sem ég vildi sagt hafa er sem
sagt þetta: Reykvíkingar hafa eignazt sína trölla-
kirkju, sem naumast verðiy frá þeim tekin, og
tjáir ekki um að þrasa. Hins vegar legg ég til, að
við sjáum aumur á þeirri sjóvelktu frægðarhetju,
Leifi heppna, sem á allt gott skilið, og finnum hon-
um stað í liugnanlegra og eðlilegra umhverfi, þar
sem vel gæti farið um hann í ellinni. Ef til vill
kynni að vera rúm fyrir hann á Dvalarheimiii aldr-
aðrá sjómanna eða þá að senda hann á Sjómanna-
skólann, sem varla væri þó viðeigandi. — Steinn.
mwwm