Alþýðublaðið - 24.01.1967, Page 8
Mafíuráðherrann á
í vok að verjast
Á næstunni hefjast að nýju rétt
arhöld í máli því, sem Mattarella,
fyrrverandi ráðherra úr flokki
kristilegra demókrata á ítalíu-hef
ur 'höfðað gegn Danilo Dolci, 'hin
um óbugandi andstæðingi Mlafí
unnar. Dolci heldur því fram, að
Mattarella sé í vitorði með Mafí
unni, hinum alræmdu glæpasam-
tökum, sem um langan aldur hafa
haft tögl og hagldir á Sikiley og
teygja anga sína til annarra hluta
ítalíu og til Bandaríkjanna. Matt
arella hefur stefnt Dolci fyrir æru
meiðingar.
Á meðan hlé hefur verið 'á rétt
Nokkur orð um
gamlð kunningja
(Bók Óskars Aðalsteins:
Högni vitasveinn. — Iðunn
1966).
EG MUN hafa verið fjórtán
ára, þegar ég fékk þessa bók í af-
mælisgjöf. Það var árið sem bókin
kom út í fyrstu útgáfu, 1950. Ég
man enn hvernig mér varð við,
þegar ég fékk bókina í hendur. —
Satt bezt að segja, varð ég ekki
alltof hrifinn, en hugsaði sem svo:
Vitasveinn, hvað er nú það eigin-
iega? Og bókin sjálf, ætli ég hafi
nokkuð gaman af að lesa hana?
Satt bezt að segja, las ég fyrstu
síðurnar með hálfgerðri ólund. En
ég hafði ekki lesið ýkjalengi, þeg-
ar mér þótti sem ég væri á viss-
an hátt einn af sögufólkinu —,
að ég væri þarna úti á þessum
afskekkta vita, þar sem var svo
óralangt til byggða, að engin til-
tök voru að komast til manna,
þótt líf lægi við að vetri til í hörð-
um veðrum. Vetrarrikið var ósvik-
ið, og mörg eftirminnilegustu at-
vik bókarinnar gerast einmitt um
hávetur. En frásagnarhátturinn
bjó yfir þeim galdri, að maður
iíkt og eygði sumarið í gegnum
hx-akviðrin. Annars er bókin ekki
hvað sízt bókin um sumarið, sum-
arið í allri sinni dýrð. Ungur
drengur fékk ég þá hugmynd við
iestur bókarinnar, að hvergi væri
sumarið dásamlegra. en á yztu
nesjum, langt úr alfai-aleið, þar
sem stórbrotin náttúra býr ein að
sínu. Síðar, þegar mér óx fiskur
um hrygg, fékk ég að sannprófa
þetta, en það er önnur saga.
Ég las söguna um vitasveininn
aftur og aftur, fann ævinlega eitt-
hvað nýtt í henni til að gleðjast
yfir. Þetta get ég ekki sagt nema
um örfáar unglinga bækur. Högni
skipar alveg sérstakt rúm í huga
mínum af því sem ég las á ungl-
ingsárunum. Mér finnst skylt að
minnast þess og þakka ógleyman-
iega bók. Og þess vil ég geta, að
Óskar Aðalsteinn
það óhapp henti mig, að ég týndi
bókinni ,,í lánum,” og sá talsvert
eftir henni. Þá var upplag hennar
þrotið og ég gat hvergi orðið mér
úti um eintak. Nú hefur mér verið
bættur skaðinn. Vinur minn einn
var svo hugulsamur að gefa mér
Ilögna í jólagjöf, þótt ég sé ekki
lengur drengur að árum. Og það
verð ég að segja, að ég hafði ó-
blandna ánægju af að rifja upp
kynni mín við vini mína á vitan-
um.
Ég vil ekki láta hjá líða að
minna foreldra á það, að ekki geta
þeir valið börnum sínum hollará
og þroskavænlegra lesefni en
þessa bók. Annars þarf ekki að
berja bumbur fyrir þessari bók.
Hún mælir með sér sjálf. Ennþá
er það svo með okkar þjóð, að
hún velur sér gott lesefni, þrátt
fyrír allt fánýtið sem henni er
nú boðið upp á í þeim efnurn. Og
grunur minn er sá, að þessi nýja
útgáfa af Högna vitasveini vei'ði
fljótiega uppseld.
Ég ætla ekki að láta það á mig
Framhald á 15. síðu.
arhöldunum, hafa komið fram
merkilegar upplýsingar, sem saka
máladómstóllinn í Róm reynir að
stinga undir stól, enda geta þær
orkað sem sprengiefni í ítölskum
stjórnmálum.
Vikuritið „L‘Astrolabio“ hefur
birt hluta af framburði vitna, er
sakamaladómstóllinn hefur mein-
að Dolci að leiða fram í réttarhöld
unum. Til eru vitni sem igeta skýrt
frá því hvar og hvenær Mattar
ella hélt fundi með glæpamanni
að nafni Giuliano og illræmdustu
glæpamönnum Bandai'íkjanna af
ítölskum ættum, allt upp í herra
þá, sem stjórna hinum ægilegu
glæpasamtökurp, Casa No/stra í
New York.
Óskiljanlegt er, hvernig dóm-
stóll í lýðræðisríki eins og Ítalíu
getur neitað að hlýða á þennan
vitnisframburð, enda snýst allt
málið um hið meinta samband
Mattarellis við Mafíuna. Eða
eins og „L‘Astrolabio“ kemst að
orði: Þetta er ekki lengur meið
yrðamál gegn Dolci, heldur ákæra
á hendur Mattarella ag öllu Mafíu
farginu.
★ ÖLL SKJÖL BIRT?
Hingað til hafa Mattarella og
félagi hans, Volpe ráðuneytisstjóri
höfðað meiðyrðamál gegn þeim
fáu blöðum, sem hafa þorað að
birta kafla úr skjölum Dolc3s.
Fer Matarella einnig í mál við
,,L‘Astrolabio“?
Ef hann gerir það, verður hann
einnig að stefna ritstjóra blaðs
ins og hann er enginn annar en
Ferruccio Parri. Hann er enginn
venjulegur blaðamaður. Parri er
í augum margra tákn um barátt
una gegn Þjóðverjum og fasistum
og hann var forsætisráðherra
fyrstu lýðræðisstjói'narinnar eftir
heimsstyrjöldina, hinnar svoköll
uðu heimafylkingarstjórnar. Þeg
ar Parri tekur sér eitthvað fyrir
lxendur hættir hann ekki fyrr en
í fulla hnefana. Blöðin gætu ekki
þagað yfir máli, sem Matarella
höfðaði gegn Parri, en þau hafa
að mestu leyti þagað um málafei'li
Mattarella gegn Dolci. Sennilega
þorir Mattarella ekki að stefna
Parri.
Þar með ætti ekkert að vera til
fyrirstöðu, að birt verði öll þau
eldíimu gögn sem Dolci hefur und
ir höndum, og gera má ráð fyrir,
að það verði gert áðúr .en langt um
líður. . n 1
★ JÓI BANANI GAF
HONUM STÓRUPPHÆÐ.
★ í í’aun og veru er ótrúlegt að
Dolci skuli hafa getað þagað yfir
þessu öllu allt frá því hann hélt
hinn fræga blaðamannafund sinn
8 24. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Forsíða ítalska vikublaðsins „L’Astrolabio“ með mynd af Matterella
fyrrum ráðherra. Ritstjóri blaðsins er hinn virti stjórnmálamaður
Ferruccio Parri, forsætisráðherra fyrstu lýðræðisstjórnarinnar sem
mynduð var á Ítalíu eftir heimsstyi-jöldina. Ekki er ólíklegt að hann
birti framburð vitna, sem sakamáladómstóllinn í Rónx neitar að
hlusta á og kunna frá ýmsu að .segja um samband Matterellas við
Mafíuna.
1965, en þá kom hann í fyrsta
skipti fxam með ásakanir sínar á
hendur Matarella.
Það er einkum framburður
gamals pi'ests, Giacomo Calozzo
að nafni, sem getur orðið afdrifa
ríkur. Hann þekkti glæpamann-
inn Giuliano. Hann var kennai'i
hans og þekkir fjölskylduna.
Vitnið Gaspai-e Cassara, sem ei
hefur heldur fengið að bera vitni
fyrir rétti, mun geta veitt vitn
eskju um samband það, sem Matt
arella mun hafa haft við ítalsk-
bandaríska glæpamanninn Frank
Garofaio. Hann mun hafa haldið
kvöldveizlu í New York, og þar á
Mattarella að liafa hitt n'ánustu
samstarfsmenn Joe Bonannos.
Presturinn mun vera fús að
skýra frá því, hvar og hvenær
Mattarella fyrrum ráðherra átti
fundi sína með Giuliano, meðal
annars í Partinico, þar sem Giu
liano var oft í felum.
Vitnið heldur því fi’am, að í
þessari veizlu ihafi glæpamennirn
ir skotið saman 150.000 dollurum
handa Mattarella og 72.000 doll
urum handa eiginkonu hans.
Joe Bonanno er enginn annar
en hinn illræmdi Joe Bananas, er
bandaríska alríkislögreglan, FBI,
segir vera leiðtoga Casa Nostra.
það er aðalsamtaka glæpamanna
Bandaríkjanna.
★ KOSNINGISVIK Á
SIKILEY.
Meðal.þeirra vitna, sem réttur
inn vill ekki hlusta 'á, eru nokkrir
lögreglumenn frá Sikiley. Einn
þein-a segir svo frá:
— í Alcamo er Vincenzo Rimi
eitt af leiguþýjum Mafíunnar,
Hann var upphaflega geilhirðir, en
síðan fór hann að kúgá fé út úr
fólki í kosningasjóð Matarellas
Honum tókst að skrapa saman rúm
lega 1 nxilljarð líra ( um 700 mill;
ónir króna), með hjálp pólitískrx
sambanda sinna. Hann hótað
hverjum þeim, sem ekki vildi
kjósa Matarella, og starf okkar
iögreglunni vai'ð erfitt og hætti
legt vegna þess að stjómmáílí
mennirnir voru flæktir í málið.
Mattarella beitti lögreglustjói-ann
þvingunum, og hann beitti okkui
þvingunum.
Paola Della Rocca, lögfræðinf
ur í Alcamo ( og rétturinn vil'
heldur ekki hlusta á hann):
— Vitnaleiðslur Dolcis eru rétt
ar. Sarnt sem áður er ástandið
enn þá hræðileigra. Rimi varð svc
voldugur, að hann hafði dómar
ana í vasanum. Stundum þegar lög
reglan þorði ekki að aðhafast nokk
up, voru yfiiwöldin gersamhya
lijálparvana. Vegna sambanda
sinna við Mafíuna hafði Mattai
eila alla þræði í sínum höndum
Mafían var alls staðar nálæg og
gat hvenær sem var beitt þving
unum. Bæði lögreglan og öryggis
þjónustan vissu hvað fram fór, en
þorðu ekkert að gera af ótta við
ráðherrann.
★ SPURNINGIN.
Blaðið ,,L‘Atsrolabio“ segir:
— Á ekkert þessara vitna vil
í’étturinn hlýða, en þau hafa fyi
ir löngu gefið nefndinni, sen
berst gegn Mafíunni, skýrslu.. Og
maður vérður að spyrja: Hvenæi
og hvernig hyggst nefndin notí
þessi gögn? Hvenær fær almenr
ingur á ítalíu að vita, um hvat
þessi vitnaframburður fjallar?
Það er Ferruccio Pari i fyrrun
forsactisr'.’ðherra sem spyr sem ri
stjóri, o% fróðlegt verður að heyn
svarið.
>