Alþýðublaðið - 24.01.1967, Page 9
Fyrsta alþjóðaráðstefnan
um iðnaðarvandamál
Vanþróuðu löndin í Asíu, sem
hafa nálega þriðjung allra jarðar
búa — þegar Kína er ekki meðtal
ið — framleiða tæp 2% af iðnaðar
vörum' heimsins.
Þrátt fýrir gífurlegar hráefna-
o>g orkulindir í Rómönsku Amer
íku framleiðir hún einungis 1%
af alúmíni heimsins.
í arabalöndunum starfa aðeins
3 til 11 % af vinnuaflinu í verk-
smiðjum, en samsvarandi tala í
iðnaðarlöndunum er 30 — 40%.
í Afríku eykst eftirspurnin eft
ir byggingarefni svo ört, að fram
leiðsla á gleri verður að aukast
um 400% fram til 1970 og járn- og
stálframleiðslan sennilega um allt
600%.
Þetta eru nokkrar staðreyndir
sem liggja til grundvallar því, að
í ár á að efna til alheimsráðstefnu
um iðnþróun, hinnar fyrstu sinnar
tegundar. Alþjóðaráðstefna Sam-
einuðu þjóðanna um iðnþróun verð
ur haldin í Aþenu í desember, og
er búizt við um 800 þátttakendum.
Aðildarríki Sameinuðu þjóð-
anna munú hvert um sig senda á
vettváwg opinberar nefndir, en
auk þess munu fulltrúar einka
framtaksins í ákveðnum löndum
sitja ráðstefnuna. Hún mun m.a.
semja yfirlit yfir eftirtalin efni:
Ríkjandi ástand í iðnaðinum,
einkanlega í vanþróuðu lönd-
um.
Hag og ástand undirstöðuiðn-
greina.
Iðnaðaráætlanir vanþróuðu
landanna.
Alþjóðiegar hliðar iðnvæðingar
innar.
Undirstöðuiðngreinar.
Að því er tekur til undirstöðu
iðngreina munu sérstakir hópar
taka til umræðu hinar ýmsu grein
ar, svo sem j'árn og stál, vélar, á
burð, tré, matvæli og metravöru.
í hverri grein verður fjallað um
magn hráefna og fa'glærðs vinnu
afls, vandamál í samblindi við
val á tækni, sérstök atriði sem
hafa áhrif á afköstin, sölu, svæðis
bundið samstarf og samruna og
útflutningsmöguleika.
Undir fyrirsögninni „iðnaðará
ætlanir vanþróuðu landanna" verð
ur kannað sambandið milli iðnað
ar og annarra atvinnugreina. Þátt
takendur munu m.a. ræða rann-
sóknir á sviði iðnaðar, horfurnar
á að flytja tæknikunnáttu milli
landa, skatta- fjármála- og launa
pólitík, útflutning og innflutning
viðskiptajöfnuð og félagslegar hlið
ar iðnvæðingarinnar.
Þess er vænzt að umræðurnar
muni leiða til þess að komizt verði
niður á færustu leiðir í viðleitni
við að flýta fyrir iðnþróun vanþró
uðu landanna og gera bilið milli
ríkra landa og fátækra mjórra.
Þátttakendur fá í hendur heilmik
ið magn af upplýsingum, sem safn
að hefur verið og raðað niður af
hinni nýstofnuðu Iðnþróunarstofn
un Sameinuðu þjóðanna (UNIDO),
ýmsum sérstofnunum og öðrum
milliríkjasamtökum, hinum svæðis
bundnu efnahagsnefndum, ráðu-
nautum og þáttökulöndum.
Undirbúningsfundir.-
Veigamikill grundvöllur um-
ræðnanna verða einnig skýrslur
frá undirbúningsráðstefnum sem
haldnar varu 1965 og 1966. Lönd
Asíu, Afríku og Rómönsku Amer-
íku komu saman í Manilla, Kairo
og Santiago að frumkvæði efna
hagsnefndanna fyrir þessi þrjú
svæði. Arabalöndin áttu með sér
fund í Kuwait, sem skipulagður
var af stjórninni þar.
Nokkrum hluta þeirra ályktana,,
sem gerðar voru á þessum fundum
hefur þegar verið hrundið í fram
kvæmd. Þannig er t.d. Asíuráð
stefnan um iðnvæðingu orðin föst
stofnun undir handarjaðri Efna-
hagnsnefndar Sameinuðu þjóðanna
fyrir Asíu ÍECAFE) og á að koma
saman til fundar þriðja hvert ár.
Ennfremur hefur verið sett á stofn
þróunarr'áð fyrir Asíu sem á að
samræma þær þróunaráætlanir
sem Asíuríkin standa að í sam-
einingu.
Á Kaíró-fundinum var rætt um
að koma á fót stofnun til að örva
iðnaðarframkvæmdir, og jafnframt
voru samþykkt markmið allmargra
afrískra iðngreina. Efnahagsnefnd
Sameinuðu þjóðanna fyrir Róm-
önsku Ameríku (ECIA) fékk það
verkefni á Santiagó-fundinum að
taka upp óformlegar viðræður við
aðildarríkin til undirbúnings ráð-
stefnunni í -Aþenu. Arabalöndin
ræddu fyrir sína parta væntan
lega arabíska miðstöð fyrir iðn
þróun.
Hinar almennu tillögur frá þess
um undirbúningsfundum má draga
saman í sex liði.
Óflugra framtak á sviði iðnað
ar af hálfu allra vanþróaðra landa.
Aukin samvinna nágrannalanda
um iðnaðarframkvæmdir.
Skjót fjárfesting og þjálfun
vinnuafls.
Aukin verzlun með verksmiðju
vörur.
Markviss flutningur tækni og
tæknikunnáttu frá iðnaðarlöndun
um.
Aukið alþjóðlegt skipulag til að
flýta þróun iðnaðarins.
Öll aðildarríki Sameinuðu þjóð
anna og sérstofnana þeirra — sem
voru samtals 131 um áramótin 19
66 — 67 — hafa rétt til þátttöku
í ráðstefnunni í Aþenu í desember.
Bókari
Fyrirtæki í næsta nágrenni Reykjavíkur óskar
að ráða mann til bókhaldsstarfa. — Laun
samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og starfsreynslu, sendist blaðinu merkt
„1979“.
Læknastofur
Apóteki að Klapparstíg 27. Viðtalsbeiðnum
Guðmundur Jóhannesson, læknir
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingarhjálp.
Jón Þorgeir Hallgrímsson, læknir
Sérgrein: Kvensjúkdómar og fæðingrarhjálp.
HÚSBYGGJENDUR
Kaupið miðstöðvarofna þar sem úrvalið er mest
og bezt. Hjá okkur getið þér valið um 4 tegundir:
HELLUOFNINN
30 ára reynsla hérlendis.
EIRALOFNINN
úr áli og eir, sérstaklega hentugur
fyrir hitaveitur.
PANELOFNINN
Nýjasta gerð, mjög hagstæð hitagjöf
JA-OFNINN
Norsk framleiðsla - fáanlegur með
fyrirfram innstilltum krana.
Stuttur afgreiðslufrestur — Leitið tilboða.
^"/fOFNASMIÐJAN
EINHOLTI 10 - SiMI 21220
Röskur sendisveinn
óskast hálfan eða allan daginn.
Þarf að hafa reiðhjól.
Alþýðublaðið, afgreiðslan.
Sími 14900.
24. janúar 1967 - ALÞÝÐDBLAOIÐ $