Dagur - 14.10.1997, Síða 1

Dagur - 14.10.1997, Síða 1
Kínverski sendi- herrann heim? Kínverjar íhuga að kalla sendiherraun heim frá íslandi. Mun harðari viðhrögð en búist var við. Á æðstu stöðum í stjórnkerfinu er nú talið hugsanlegt að kínv- erski sendiherrann á Islandi verði kallaður heim vegna heim- sóknar taívanskrar sendinefndar hingað til lands. Dagur hefur eftir áreiðanlegum heimildum að til þessa geti komið. Blaðinu er eldd kunnugt um hvort það héti að sendiherrann yrði kallaður heim „til skrafs og ráðagerða", eða hvort um enn alvarlegri aðgerð yrði að ræða. „Eg get ekki svarað neinum spurningum núna um samskipti okkar við Kínverja vegna Taívan- heimsóknarinnar," sagði Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í gærkvöld þegar Dagur bar þetta undir hann. Ljóst er að málið er á mjög viðkvæmu stigi og við- brögð Kínverja harðari en búist hafði verið við. Ef til þessa kemur verði það áfall fyrir samskipti ríkjanna. Hjálmar W. Hannesson, sendi- herra í Kína, yrði ekki sjálfkrafa kallaður heim á móti, en starf- semi sendiráðsins ytra nánast lömuð. Heimildir blaðsins herma að íslensk stjórnvöld hafi vanmetið mjög viðbrögð Kínverja við góðum móttökum sem vara- forseti Taívans fékk hér. Um helgina neituðu Spánverjar að taka á móti sama varaforseta og boðinn var velkominn hingað með föruneyti fjölmiðlafólks og embættismanna. — SJH/bþ Bílasala greiði Stefgjöld STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda hafa höfðað mál gegn bílasölunni Suzuki-bílum hf. til greiðslu á Stef-gjöldum. Um fordæmismál er að ræða. STEF hefur á síðustu árum staðið í málastappi til að fá við- urkennda skyldu fyrirtækja á sviði verslunar og þjónustu til að greiða Stef-gjöld, ef tónlist er leikin opinberlega. Að sögn Jó- hannesar Rúnars Jóhannssonar lögfræðings eru Suzuki-bílar að- eins eitt fyrirtæki af fjölmörgum sem málið snýst um. „Stef hefur áður unnið mál gegn nýlendu- vöruverslun og nú síðast gegn hárgreiðslustofu. Nú eru það bílasölurnar og alltaf er sama grundvallarreglan í forgrunni, sem sé að þar sem tónlist er leik- in í rými sem ætlað er almenn- ingi er um opinbera spilun að ræða og því ber að greiða Stef- gjöld,“ segir Jóhannes. — FÞG Þessi tröllaukna jardýta varö hífd úr dönsku skipiyfir á ísienskan hafnarbakka í Sundahöfn í gær. Hún vegur ein 70 tonn og er önnur stærsta jaröýtan sem Caterpillar framleiðir. Alexander Úlafsson ehf. á jarðýtuna og hyggst nota hana við efnistöku í námu i Vatnsskardi. Nú I október er hálf öld síðan Hekla tók við Caterpillar umboðinu, en sjaldan hafa verið fluttar inn eins margar stórvirkar vinnuvéiar og undanfarna mánuð. - mynd: hilmar íhugar veiðigjald ásíldina „Þegar úthafsveiðinefndin var að semja frumvarpið um út- hafsveiðar úr stofnum sem eru utan landhelgi eða ýmist utan og innan hennar, setti formaður nefndarinnar, Geir H. Haarde, fram þá hugmynd að einn af kostunum sem kæmi til álita við úthlutun á nýjum stofnum væri útboð á veiðiheimildunum. Ég sagði honum á þeim tíma að ég gæti á það fallist ef um það yrði samstaða í nefndinni. Ég er al- veg sömu skoðunar nú og þá að við slíkar aðstæður geti þetta verið ein leiðin við úthlutun á nýjum heimildum," sagði Þor- steinn Pálsson sjávarútvegsráð- herra þegar Dagur spurði hann hvort hann væri hlynntur veiði- Ieyfagjaldi við úthlutun afla- heimilda í norsk-íslenska síldar- stofninum. Á flokksþingi Framsóknar- flokksins í fyrrahaust viðraði Halldór Ásgrímsson þá skoðun sína að vegna sérstöðu norsk-ísl- enska síldarstofnsins kæmi til greina að ríkisvaldið leigði út veiðiheimildir á kvótamarkaði. 1 ræðunni sagði Halldór m.a.: „I þessu sambandi má nefna hluta af þeim aflaheimildum sem koma til úthlutunar út norsk-ísl- enska síldarstofninum og ekki er sérstök veiðireynsla íyrir, mjög auloia rækju- og loðnuveiði og e.t.v. hluta af aukningu bolfisk- afla síðar meir. Hallór hefur ítrekað þessi ummæli nú um heljpna. Utgerðarmenn virðast hins vegar almennt mótfallnir hug- myndum af þessu tagi en á bls. 3 í blaðinu í dag má finna saman- tekt á þeirra sjónarmiðum. - s.dór/bg Hart í bak á Akureyri Blað 2 Einhæfni hættuleg bls. 8 9 Alfa Laval VtirmaskiptQr SINDRIk. -sterkur í verki Ifl

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.