Dagur - 14.10.1997, Qupperneq 6

Dagur - 14.10.1997, Qupperneq 6
6- ÞRIDJUDAGUR 14.0KTÓBER 1997 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: DAGSPRENT Útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjórar: STEFÁN JÓN HAFSTEIN ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Aöstoöarritstjóri: BIRGIR GUÐMUNDSSON Framkvæmdastjóri: MARTEINN JÓNASSON Skrifstofur: STRANDGÖRU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 6100 OG 800 7080 Netfartg ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjaid m. vsk.: 1.680 KR. Á MÁNUÐI Lausasöluverð: 150 KR. OG 200 KR. HELGARBLAÐ Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Simbréf ritstjórnar: 460 6171 R-listinn áfram bandalag flokka í fyrsta lagi Þeir sem standa að R-listanum í höfuðborginni hafa tekið ákvörðun um hvernig standa skuli að skipan framboðslista fyr- ir borgarstjórnarkosningarnar næsta vor. Niðurstaðan er mála- miðlun sem tryggir þeim stjórnmálaflokkum sem standa að R- listanum úrslitaáhrif á skipan átta efstu sætanna. Efnt verður til prófkjörs í vetur en allt íyrirkomulag þess miðar fyrst og fremst að því að treysta völd flokkanna. Niðurstaðan undir- strikar þannig óbreytt eðli R-listans; hann er enn flokkabanda- lag en ekki sjálfstætt stjórnmálaafl. í öðru lagi Það var Ijóslega ekkert auðvelt verk fyrir flokkana að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Það reyndi verulega á þanþolið í samstarfinu, eins og einn borgarfulltrúanna orðaði það í við- tali við Dag. Sumir vildu ganga mun lengra í þá átt að gera R- listann að sjálfstæðara stjórnmálaafli. Um þá stefnu náðist ekki samkomulag, enda vandséð hvernig R-listinn getur öðlast sjálfstætt pólitískt líf á meðan flokkarnir sem að honum standa stefna í ólíkar áttir á landsvísu. Samstarfið í borgar- stjórnarmeirihlutanum hefur satt að segja gengið ótrúlega vel í Ijósi þess að Framsóknarflokkurinn er í ríkisstjórn en hinir R- listaflokkarnir í stjórnarandstöðu. Og forsenda þess að árang- ur náist næsta vor er að ekkert hjól undir vagninum bili. í þriöja lagi Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri, mun leggja sæti sitt í borgarstjórninni að veði með því að fara í áttunda sæti list- ans - baráttusætið. Það er skynsamleg ákvörðun sem einfaldar það val sem kjósendur standa frammi fyrir næsta vor. Kosn- ingabaráttan mun fyrst og fremst snúast um traust almenn- ings á einstaklingum. Vilja kjósendur í Reykjavík að Ingibjörg Sólrún verði áfram borgarstjóri eða að Arni Sigfússon taki við? I flestra hugum verður það stóra spurningin á kjördag. Elías Snæland Jónsson. Þjóðskáld á leikskóla Það gladdi bókmenntáhneigt hjarta Garra að skoða at- vinnuauglýsingarnar í Mogg- anum á sunnudaginn. I allri þenslunni er greinilegt að menn grípa til ýmissa ráða til að ná athygli lesenda enda samkeppni um vinnuaflið að verða talsverð. Fullkominn og alger sigur\'egari í þessari at- hyglissamkeppni var „einka- rekni Ieikskólinn" Orkin hans Nóa, sem var að auglýsa eftir „fóstru og kokki". I fyrsta Iagi ber það vott um ótrúlegan kjark og er talandi dæmi um óhæði og yfirburði hins „einkarekna" leikskóla að auglýsa eftir „fóstru“. I hinum opinbera geira leikskólastarfs- ins er löngu búið að afleggja þetta góða og gagnmerka orð og alltaf notað orðskrípið „leikskól a ke n n a ri “. ViUfá fóstru En yfir- b u r ð i r n i r hjá Örkinni hans Nóa felast ekki e i n v ö r ð - ungu í |wí að þora að tala um „fóstrur" á opinberum vett- vangi. I einkaskólanum er nefnilega haldið í hina þjóð- legu hefð að láta fjúka í kviðl- ingum. Og kveðskapurinn er sko ekkert slor, heil auglýsing í vísuformi! Garri skilur ekk- ert í Mogganum að láta ekld þessar vísur í Lesbókina inn- an um aðrar ljóðaperlur V____________________ hversdagsins í staðinn fyrir að fela þetta innan um atvinnu- auglýsingarnar. En til að eng- inn rnissi af þessu nýja skáldi, þessari nýju íslandsvon, vill Garri endilega birta ljóðið í heild sinni, báðar vísurnar. Ljóðið Ef þú ert að leita að starfi, stígðu þá á stokk, að leita lengur er óþarfi þvt okkur vantar fóstru og kokk. Og seinni vísan ej ekki síðri, en þar tekst skáldið á við persónulýsingu væntanlegra starfskrafta: Bjartsýni, kærleik og bros þitt, betra væri að sjá, en verra þætti okkur nú hitt ef þú værir á sakaskrá. Eftir að hafa lesið þessar magnþrungnu hendingar inn- blásnar af skáldlegum eldmóði og taktfastri h ry n j a n d i vísar Garri því hrein- lega á bug að íslenska m e n n t a - kerfið sé á villigötum. Úr því Ieik- skólastigið getur státað af skáldrisum eins og þeim á einkarekna leikskólanum Örkinni hans Nóa, þá er við- búið að önnur skólastig geri það líka. Spurningin er bara hvort þessir menn fái að njóta sín nægjanlega vel. GARRl. Örkin hans Nóa Einkarekinn leikskóii Ef þú ert að leita að starfi, stígðu þá á stokk, að leita lengur er óþarfi, því okkur vantarfóstm og kokk. Bjartsýni, kaerieik og bros þitt, betra vaeri að sjá, en verra þætti okkur nú hitt, ef þú værir á sakaskrá. Upplýsingar í síma 551 7020. Bókakvóti og úthlutuu ritleyfa JÓHANNES SIGUR JÓNSSON skrífar Það eru alltof margir rithöfundar starfandi á íslandi. Það er ofveiði á hugmyndamiðunum og hætta er á útrýmingu nokkurra stílteg- unda. Og eins og glöggt kemur fram í jólabókaflóðinu þá er of- framboð á bókum sem hefur í för með sér útþynningu og dregur úr möguleikum þeirra rithöfunda sem virkilega hafa eitthvað fram að færa og eiga mest erindi til okkar. Of margir skussar og lúð- ar eru að fást við ritstörf og það bitnar á framleiðslu vandaðra höfunda. Lélegar bækur draga úr sölu á góðum bókum og. skussinn ber hugsanlega jafnt úr býtum og frábær rithöfundur. Þetta ástand er óviðunandi og ríkisvaldið verður þarna að grípa í taumana með einhverjum hætti. Skussakvóti Eina færa leiðin virðist sú að koma á bókakvóta og úthluta rit- leyfum til þeirra sem ganga með rithöfundinn í maganum. Þeir sem hafa skrifað bestu bækurnar hingað til fá auðvitað Ieyfi til að skrifa flestar bækurnar í framtíð- inni. Þeir sem hafa framleitt Ié- legustu afurðirnar á þessu sviði, fá rýrari kvóta og mjög takamark- að ritleyfi. Með þessum hætti verður unnt að bola ritklaufum úr þessari at- vinnugrein og þeir geta farið að snúa sér að öðru sem hentar þeim betur. Og um leið eykst svig- rúm raunveru- legra hæfileika- manna á ritvellinum. Og allir munu una glaðir við sitt, rithöf- undar og lesendur þegar tak- mörkuð er sóknin í hugmynda- brunninn sem tæmist þá síðar en ella. Hugmyndaflugid sameign? Þetta er sem sagt brilljant hug- mynd sem lyfta mun menning- unni á hærra plan, svo fremi að ríkisvaldið fari ekki að hugsa eitthvað fram í tímann, sem auð- vitað er engin ástæða til að óttast því engin fordæmi eru lyrir slíku. En hvað t.d. ef einhverjir fara að velta því fyrir sér í framtíðinni að hugmynda- flugið sem slíkt sé sameign þjóð- arinnar og eltki á valdi ríkisstjórna að úthluta af eigin geðþótta? Og hvað ef góðir rithöfundar missa hæfileik- ann og fara að skrifa lélegar bækur ár eftir ár? Munu þeir e.t.v. selja ritleyf- ið og bókakvótann á 100 milljón- ir til jafnvel enn iélegri rithöf- unda? Eða láta verðmætin ganga til barna sinna sem eru gróflega illa læs og alls ekki skrifandi? Og koma þannig í veg fyrir að fátæk- ir uppvaxandi nóbelshöfundar, sem eiga engar 100 milljónir, komi höndum yfir ritleyfi, taki penna í hönd og byrji að skrifa meistaraverk? Vitfirriugakvóti? Er hugsanlegt að kvótakerfi á rit- höfunda hafi það endanlega í för með sér að bisnesmenn verði allsráðandi á menningarsviðinu, ákveði hvað skrifaö verði og hvernig, en hæfileikamennírnir eigi ekki minnstu möguleika á að láta ljós sitt skína? Að hug- myndaflugið, sameign þjóðar- innar, verði séreign fárra rit- greifa, gangi í erfðir til óverðugra ritskussa og aíleiðingin verði hörmulegar bækur og óánægðir lesendur? Að sjálfsögðu ekki! Það gerist aldrei hér. Því þó margt misjafnt megi segja um stjórnvöld á Is- landi, þá eru ekki nógu margir vitfirringar í þeim hópi til að nokkur minnsta hætta sé á að komið verði á slíku kerfi sem hér hefur verið lýst. Á að læhka áfengis- kaupaaldur niður í 18 ár, einsog kugmyndir eru uppi um? Ólafur Ásgeirsson aðstoðaryfirlögregluþjómi áAkureyri. Já, ég er fylgjandi því. Ef áfram á að vera 18 ára aldurs- takmark inn á vínveit- ingahús þá finnst mér að áfengis- kaupaaldur- inn eigi að íylgja því aldurstak- marki. En þvf þarf að framfylgja af fullri einurð. Helga Hannesdóttir bama- og unglingageðlæknir hjá SÁÁ á Vogi. Nei, ég er ósammála því. Ung- lingar, yngri en 18 ára, hafa við- k v æ m a r a heila- og taugakerfi en fullorðnir og þróa auð- veldar með sér fíkn og áfengis- vanda og geta orðið áfengissjúkl- ingar á skemmri tíma en hálfu ári. Fullorðna á þrítugsaldri tek- ur 15 til 20 ár að þróa með sér áfengissýki. Og því meiri hætta er unglingum búin eftir því sem aðgengið að áfengi er auðveld- ara. Valgerður Magnúsdóttir félagsmáiastjóri á Akureyri. Eg myndi miklu frekar vilja sjá á f e n g i s - kaupaaldur óbreyttan og að neysla hæfist ekki fyrr en eftir tvítugt; þeg- ar ungt fólk er búið að taka út andlegan og Iíkamlegan þroska. En það gæti verið valkostur sent við þurfum að velta fyrir okkur, þó ég sjálf sé ekki of hrifin af honum heldur, að mætast þarna á miðri leið, því neysla hefst hjá mörgum löngu fyrir átján ára aldur. Ágústa Johnson líkamsræktarþjálfari og þátttakaudi í prófkjöri Sjálfstæðisflokltsins í Reykjavík. Mín skoðun er sú að ef fólk má gifta sig og stofna heimili óháð aldri og takast á við þá ábyrgð sem því fylg- ir þá hlýtur fólki líka að vera treystandi að kaupa sér vín- flösku, þegar sjálfræðisaldur er fenginn, það er átján ára.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.