Dagur - 14.10.1997, Page 13

Dagur - 14.10.1997, Page 13
 ÞRIÐJUDAGUR 14.0KTÓBER 1997 - 13 ÍÞRÓTTIR L Morg met í Grindavík Sextán liða úrslitin í Eggjabikamum fóru uokkum vegiun eftir bókiuni. Þriggjadóm- arakerfið heppnaðist vel. Leiknir varð sér til skammar. Það kemur engum á óvart að úr- valsdeildarliðin fóru létt með andstæðinga sína úr fyrstu deild- inni í Eggjabikarkeppninni. Keflavík lagði Stjörnuna úr Garðabæ, KR vann Snæfell, Njarðvík rúllaði yfir Breiðablik og Grindavík sigraði Leikni með fáheyrðum yfirburðum. Það er skemmst frá því að segja að Leiknir varð sér til stór- skammar í Eggjabikarkeppninni. Liðið, sem hefur ágætum leik- mönnum á að skipa, lagði niður skottið þegar það átti að mæta Grindvíkingum. Aðeins hluti leikmanna liðsins mætti til leiks, sjö á sinn eigin heimaleik í Aust- urbergi og aðeins fimm þeirra sáu ástæðu til að fara í útileikinn í Grindavík. Heiðarlegra hefði verið, af Leiknismönnum, að gefa eftir sæti sitt í keppninni. Þá hefðu altént lið með metnað, eins og t.d. Selfoss eða Hamar, getað nýtt sér kærkomið tækifæri til að berjast við þá bestu. Slík tæki- færi fá liðin í fyrstu deildinni ekki á hverjum degi. Grindvíkingar brugðu á það ráð að breyta körfuboltaleiknum í sirkus til frekari skemmtunar þeim áhorfendum sem Iögðu Ieið sína í íþróttahúsið í Grindavík. Benedikt Guðmundsson, þjálfari heimamanna, bannaði mönnum sínum að skora tveggja stiga körfur nema með því að troða. Grindvíkingar skoruðu því 39 þriggjastiga körfur í leiknum, sem er Islandsmet, þar af 21 í fyrri háifleik sem er líka met hér á landi. Þá má geta þess að Darrel Wilson, Bandaríkjamað- urinn í liði Grindvíkinga, tók bæði vítaskot sín aftur fyrir sig og skoraði úr þeim. Annars urðu úrslit leikja þessi: Leiknir - Grindavík 34 - 109 Grindavík - Leiknir Stjarnan - Keflavík Keflavík -Stjarnan Breiðablik - UMFN UMFN - Breiðablik Valur - Haukar Haukar - Valur Þór Ak. - ÍA ÍA - Þór KFÍ-ÍR ÍR -KFÍ Tindast. - Skallagr. Skallagr. - Tindast. Snæfell - KR KR - Snæfell 120- 37 87-104 122- 66 66 - 94 90 - 46 66 - 97 89 - 74 70- 83 87 - 66 100 - 103 67 - 79 90 - 81 78 - 79 48 - 75 75 - 68 - GÞÖ Hjalti bestnr íslandsmótið í einstakl- ingskeppni í boccia var haldið á Selfossi um helgina og voru þátt- takendur um 220 talsins frá fimmtán félögum, víða að af landinu. Islandsmót í boccia eru deildarskipt og keppa fötlunar- flokkar saman, allir við alla. Keppt var í sex deildum, auk þess sem keppt var í rennuflokk og U-flokk. Efstu menn urðu þessir: 1. deild: 1. Hjalti Eiðsson, ÍFR 2. Sigurrós Karlsdóttir, ÍFR 3. Einar Sveinsson, Kveldúlfi 2. deild: 1. Haukur Gunnarsson, ÍFR 2. Þorsteinn Sölvason, ÍFR 3. Nanna Haraldsdóttir, EIK 3. deild: 1. Sumarrós Sigurðard., AKUR 2. Guðmundur Einarsson, Kveldúlfi 3. Guðlaugur Hannesson, ÖSP 4. deild: 1. Harpa Sif Þráinsd., ÞJÓTI 2. Bjarni Þór Einarsson, ÍFR 3. Ásgeir Sigurðsson, ÞJÓTI 5. deild: 1. Telma Axelsdóttir, EIK 2. Sverrir Haraldsson, ÞJÓTI 3. Héðinn Ólafsson, IVAR 6. deild: 1. Sigrún Benediktsdóttir, NES 2. Einar Pálsson, ÍFR 3. Helga Kristjánsdóttir, NES Rennuflokkur: 1. ívar Örn Guðmundsson, ÍFR 2. Sveinbjörn Gestsson, ÍFR 3. Björgvin Björgvinsson, ÍFR U-flokkur: 1. Oddný Stefánsd., AKRl 2. Þorgerður Kristjánsd., AKRI 3. Rökkvi Sigurlaugsson, GRÓSKU HEILRÆÐI ÞEGAR HJÓLAÐ ER MEÐ BARN ER MIKILVÆGT AÐ STÓLLINNSÉ KIRFILEGA FESTUR Á STERKUM BÖGGLABERA. SLYSAVARNAFÉLAGÍSLANDS RAUÐI KROSS ÍSLANDS KA-menn tryggöu sér sæti í meistarakeppni Evrópu meö sigri á Granitas Kaunas frá Litháen. Hér má sjá Halldór Sigfússon brjótast í gegnum vörn Litháanna og skora. - mynd: brink Draimialiðin eru Virum, Barcelona og Drammen KA-menn urðu fyrsta íslenska liðið til að tryggja sér sæti í Meistarakeppni Evrópu í hand- knattleik á sunnudaginn, þegar Iiðið ruddi mótherjum sínum, Granitas Kaunas frá Litháen, úr keppninni. Dregið verður í riðla í Meistarakeppninni, sem nú er haldin í annað sinn, um hádegis- bilið í dag og þá kemur í ljós hvaða lið skipa riðlana fjóra í keppninni. „Draumaliðin mín eru Barcelona, Virum og Drammen. Eg tel að við eigum möguleika gegn Virum og Drammen og það væri vissulega gaman að mæta Barcelona, eða jafnvel þýska lið- inu Lemgo,“ sagði Atli Hilmars- son, þjálfari KA-manna, sem eins og margir fleiri bíður spenntur eftir útkomunni úr drættinum. „Á hinn bóginn væri hægt að lenda í mjög erfiðum og kostnað- arsömum riðli, ef við lentum á móti liðunum frá Króatíu, Slóv- eníu, Júgóslavíu, eða jafnvel ísrael,“ sagði Atli. Hann sagðist ekki vilja gefa mikið fyrir mögu- leika KA í keppninni; „Við eigum örugglega eftir að fá einhverja skelli, því við erum með ungt lið, en þetta verður án efa lærdóms- ríkt. Það verður gaman fyrir strákana að fá að spila gegn þeim bestu.“ Fyrstu Ieikir Meistarakeppn- innar fara fram 8. og 15. nóvem- ber, en síðustu fjórir leikir riðl- anna fara fram í janúar. Þess má geta að KA-menn þurfa væntan- lega að leika sex leiki á sautján dögum í nóvember. Meistarakeppnm 1. styrkleikaflokkur: Barcelona (Spáni) TBV Lemgo (Þýskalandi) Badel Zagreb (Króatíu) Proseva Ademar Leon (Spáni) 2. styrkleikaflokkur: Pflad Winterthur (Sviss) Virum Sorgenfri (Danmörku) Fotex Veszprém (Ungverjalandi) Piovarna Lasko (Slóveníu) 3. styrkleikaflokkur: KA (íslandi) Drammen (Noregi) ABC Braga (Portúgal) Red Star (Júgóslavíu) Hapoel Rishon (ísrael) Jafa Promet Resen (Makedóníu) Cabot Zubri (Tékklandi) Generali Prieste (Ítalíu) Greid leið KA og Aftur eldingar á Evrópiuiiótimuin íslensku liðin KA og Afturelding tryggðu sér áframhaldandi þátt- tökurétt á Evrópumótunum í handknattleik. KA sigraði Gran- itas Kaunas frá Litháen 28:19 f síðari leiknum á Akureyri og sigraði því mótherja sína með fimm marka mun, 51:46. Aftur- elding tapaði fyrir austurríska liðinu Stockerau í síðari leik lið- anna í Borgakeppninni ytra, 31:35. Afturelding átti sjö mörk til góða frá fyrri leiknum. Leikur KA-manna við Granit- as Kaunas var í járnum framan af, en góður lokakafli skilaði þeim gulldæddu fimm marka forskoti í leikhléi, 13:8. Gestirn- ir náðu að minnka þann mun niður í eitt mark, 15:14, í síðari hálfleiknum, en lokakaflinn var KA-manna. „Menn tóku sig saman í and- litinu og fóru að berjast í vörn- inni og það skilaði okkur sigrin- um,“ sagði Atli Hilmarsson, þjálfari KA. „Ungu strákarnir sýndu mikinn „karakter" en það hjálpaði okkur líka að tveir bestu leikmenn þeirra duttu út úr spil- inu vegna útilokunar og meiðsla," sagði Atli. Mörk KA: Halldór Sigfússon 7/1, Jóhann G. Jóhannsson 5, Karim Yala 6/2, Leó Örn Þor- leifsson 3, Björgvin Björgvinsson 2, Heimir Árnason 2, Sverrir Björnsson 1. Jason með átta mörk Jason Ólafsson skoraði átta af mörkum Aftureldingar gegn Stockerau í markaleik liðanna í Austurríki. Heimamenn höfðu tjögurra marka forskot í leikhléi, 18:14, en lokatölur urðu 35:31 Stockerau í hag og mörkin því rúmlega eitt á mínútu. Jason Ólafsson var atkvæða- mestur hjá Aftureldingu, en hann skoraði átta mörk. Skúli Gunnsteinsson gerði sex mörk og Sigurður Sveinsson fimm. Dregið verður í 16-liða úrslit keppninnar í dag.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.