Dagur - 17.10.1997, Síða 7
FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 1997 - 23
HVAÐ ER í BOÐI
NORÐURLAND
Flóamarkaður Hjálpræðis-
hersins
er aö Hvannavöllum 10 og er opinn
alla föstudaga frá 10-17. Á mark-
aðnum er hægt að gera mjög góð
kaup á notuðum fatnaði. Tekið á
móti fatnaði á sama stað alla daga
vikunnar.
Kaffi menning Dalvík
Á föstudagskvöld skemmta sér allir
með dúettinum Annar með gel og
hinn með hárlos, frítt inn. Á laugar-
dagskvöldið er dansleikur og þá leik-
ur gleðisveitin Tvöföld áhrif, frítt inn.
Þá er þetta síðasta sýningarhelgi á
myndlistarsýningu Þorra.
Frá Háskólanum á Akureyri
Á laugardaginn mun dr. Reynir Ax-
elsson halda opinn fyirrlestur klukk-
an 14:00 í húsnæði skólans við Þing-
vallastræti 23 á sal fyrstu hæðar.
Nefnist fyrirlesturinn: Löður, sápu-
kúlur og stærðfræði. Fjallað verður
um það hvers vegna þessi fyrirbrigði
eru í laginu eins og þau eru. Sér-
grein Reynis er fáguð rúmfræði.
Á mánudaginn 20. október verður
haldin málstofa á vegum Háskólans
á Akureyri og Samvinnunefndar um
málefni norðurslóða. Þar mun dr.
Nicholas E. Flanders aðstoðarfor-
stjóri Heimskautastofnunarinnar við
Dartmouthháskóla í Bandaríkjunum
flytja erindið: Hnignun sjávar-
byggða: Hnattrænar breytingar eða
naugjöfull auður? Málstofan verður
haldin í húsnæði Háskólans á Akur-
eyri við Glerárgötu 36 í stofu 301 á
þriðju hæð og hefst klukkan 15:15.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Kvennakirkjan
heldur messu í Breiðholtskirkju í
Mjódd sunnudaginn 19. október
klukkan 20:30. Séra Agnes M. Sig-
urðardóttir, prestur í Bolungarvik,
prédikar og fjallar um það hvernig
hægt er að samræma kvenréttindi
og barnauppeldi.
Prjófkjör sjálfstæðismanna
Tekið hefur til starfa í Kringlunni úti-
bú frá flokksskrifstofu í Valhöll. Opið
virka daga frá kl. 16-19, 12-18 laug-
ardaga og 13-17 sunnudaga.
Félag eldri borgara
Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag. Allir
velkomnir. Hjördís Geirsdóttir og
hljómsveit leika fyrir dansi í Risinu kl.
20-23.30 í kvöld. Göngu-Hrólfar fara
í létta göngu um borgina kl. 10. laug-
ardaga.
ÖBÍ
Öryrkjabandalag íslands heldur ráð-
stefnu um kjaramál nk. föstudag í
Borgartúni 6, RVK. Hefst hún kl. 13
og er öllum opin. Yfirskrift ráðstefn-
unnar er: LÍFSKJÖR ÖRYKJA 1997,
HVERNIG HORFA ÞAU VIÐ ÞÉR.
Laugardaginn 18. okt. verður svo
aðalfundur Öryrkjabandalags íslands
haldinn á sama stað, en hann sækja
3 fulltrúar frá hverju hinna 24ra aðild-
arfélaga bandalagsins auk annarra
gesta. Þar verða kjaramálin áfram til
umræðu og ályktanir svo og skipu-
lag bandalagsins.
Fengur
Bókís, notendafélag bókasafnskerf-
isins Fengs, heldur ráðstefnu 21.
okt. nk. í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á
dagskrá er m.a. erindi frá Guðbjörgu
Sigurðardóttur, verkefnisstjóra hjá
Forsætisráðuneytinu um Upplýs-
ingastefnu stjórnvalda og hlutverk
bókasafna. Þátttöku þarf að tilkynna
í síma 552 7155.
Myndlistarnemar
Grafíknemar á öðru ári MHÍ opna
sýningu á verkum sínum laugardag-
inn 18. okt kl. 16.04. Sýningin er
haldin í húsnæði Grafikfélagsins,
Tryggvagötu 15, gengið inn Hafnar-
megin.
Karlakór Akureyrar-Geysir á Vesturlandi
Karlakór Akureyrar-Geysir heimsækir Vestlendinga um komandi helgi og heldur
tónleika á þremur stöðum. Fyrstu tónleikarnir verða í Grundarfjarðarkirkju laug-
ardaginn 18. október klukkan 16.00 og eru þeir tónleikar í tengslum við 100
ára verslunarafmæli Grundarfjarðar sem ber heitið „100 ár í Nesinu". Á laugar-
dagskvöldið klukkan 20.30 syngur kórinn svo í Stykkishólmskirkju.
Á sunnudeginum 19. október er svo haldið til Búðardals og sungið í félags-
heimilinu Dalabúð klukkan 15.00.
Kvöldstund
með Ghitu
Nörby
Ghita Nörby er ein ástsælasta
og þekktasta leikkona Dana.
Hún er nú mætt til íslands og
mánudaginn 20. október
klukkan 20.00 skemmtir hún á
Stóra sviði Þjóðleikhússins
ásamt eiginmanni sínum
Svend Skipper og triói hans.
í dagskránni er tvinnað saman
upplestri leikkonunnar á
nokkrum perlum H.C. Ander-
sen og tónlist, allt frá klassískri
tónlist til nútímatónlistar og
leikkonan flytur sögubrot og
Ijóð.
Þess má geta að á mánudag
milli 17.00 og 17.30 mun
Ghita árita bók sína Mine egne
veje í Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar Austurstræti.
BROSIÐ
Sýning Tannlæknafélags (slands
verður opnuð í Tjarnarsal Ráðhúss
Reykjavíkur 18. okt. kl. 16. Sýningin
er haldin í tilefni af 70 ára afmæli fé-
lagsins og verður þar fjallað um
tannheilsu, tannlækningar og tann-
vernd á aðgengilegan hátt. Sýningin
verður opin 18.-26. okt. kl. 9-17
virka daga og 12-18 um helgar. þar
verða fagmenn til að svara spurning-
um gesta um efni sýningarinnar.
Nýlistasafnið
Laugardaginn 18 okt. ki. 16. verður
opnuð samsýning 6 myndlistar-
manna í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
3b i Reykjavík. Sýningarnar eru opn-
ar frá kl. 14-18 alla daga nema
mánudaga.
Veðurfræðingar
Félag íslenskra veðurfræðinga, Veð-
urstofa íslands og Bændaskólinn á
Hvanneyri, bjóða til ráðstefnu um
vind, skafrenning og skjólbelti, föstu-
daginn 17. okt. kl. 13.30 -16.30 á
Hótel Holti í Reykjavík.
MÍR
Nk. sunnudag, kl. 15 verður ein af
kvikmyndum rússneska leikstjórans
Andrei Tarkovskís sýnd í bíósal MÍR
Vatnsstíg 10.
Norræna húsið
Fyrirlestur í Norræna húsinu kl. 16 á
sunnudag. Gitte Mose lektor við Osl-
óarhálskóa nefnir fyrirlesturinn „Den
forfrende fortælling" og fjallar hann
um tvær eftirvektarverðar sögur í
dönskum og norskum samtímabók-
menntum.
EGILSSTAÐIR
Unglist ‘97
Dagana 25.-31. okt. verður haldin á
Egilsstöðum listahátið ungs fólks,
Unglist '97. Þar koma ungir og
óþekktir listamenn list sinni á fram-
færi, margir í fyrsta sinn. Kjörorðið er
„List er allt og allt er list“.
I tilefni opnunar WorJd Class á Akureyri verður opið hús laugardag og sunnudag frá kl. I3 - I7.
✓
I boði verða veilingar og mun starfsfólk World Class aðstoða og fræða eftir fremsta megni
3aui lilli verður á staðnum ásamt öðrum uppákomum
World Class hátíð á Kaffi Akureyri um helgina.
srauqjorji
Arskort 19.900
8 mánuðir 17.900
+ lilboð í Stjörnusól
ssondro
P.S. Æl’ingakorf gilda sem fríkort inná Þjóðleikh
og Ingólfscafe, sem og World Class í Reykjavík.