Dagur - 28.10.1997, Síða 6
22- ÞRIÐJUDAGUR 28. OKTÓBER 1997
Pálmi Gíslason, fyrrum formaður UMFÍ, var sæmdur Heiðursfélagakrossi Ungmennafélags íslands. Hér er hann,
fyrir miðju, ásamt Sigurði Geirdal, Þorsteini Einarssyni og Hafsteini Þorvaldssyni sem áður höfðu verið sæmdir
þessari æðstu viðurkenningu UMFÍ. Lengst til hægri er síðan formaður UMFÍ, Þórir Jónsson.
Fertugasta sambandsþing Ung-
mennafélags íslands var haldið í
Grafarvogi um helgina á 90 ára
afmæli hreyfíngarinnar. Herra Ólafur
Ragnar Grímsson ávarpaði fundargesti í
upphafi þings en á eftir honum töluðu
meðal annars: Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, Borgarstjóri og Þorsteinn
Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra.
Þingað var á föstudag og laugardag en
að fundi loknum var gestum boðið til
kvöldverðar í Félagsmiðstöðina á
Seltjarnarnesi þar sem aðalræðumaður
kvöldsins var Finnur Ingólfsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Forseti íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson,
ávarpaði þingesti á 40. sambandsþingi UMFÍ.
Að þingi loknu voru fjórir aðilar
sæmdir Gulimerki UMFÍ. Finnur
Ingólfsson, USVS, Ólína
Sveinsdóttir, UMSK, Sigurlaug
Þóra Hermannsdóttir, USAH og
Matthías Lýðsson, HSS, eru hér
ásamt formanni UMFÍ, Þóri
Jónssyni.
Umsjón
Jóhann Ingi
Árnason
s: 568-2929
Ingibjör Sóirún Gísladóttir,
borgarstjóri, og Snorri
Hjaltason sem nú vermir
10. sætið á prófkjörslista
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík ræða hér framtíð
Reykjavíkurborgar.