Dagur - 31.10.1997, Page 1
Verð ílausasölu 150 kr.
80. og 81. árgangur - 206. tölublað
BLAÐ
Aldraðir eru hreint
engir öreigar
Aldraðir héldu nýlega útifund til að mótmæla bágum kjörum sínum. Þrátt fyrir það er hlutur
þeirra i„góðærinu" aðeins hársbreidd rýrari en annarra landsmanna.
EinstaMingar, sjötug-
ir og eldri, eru með
82.000 kr. á máuuði
að meðaltali. 10%
tekna fjármagnstekj-
ur.
Hlutur aldraðra í „góðærinu“ var
aðeins lítillega rýrari en annarra
landsmanna á síðasta ári. Tekjur
þessa aldurshóps hækkuðu um
7,3% frá árinu áður, um 1%
minna en hjá landsmönnum í
heild. Athygli vekur að fjár-
magnstekjur eru kringum 10% af
tekjum aldraðra.
Skattskýrslur leiða í ljós að
meðaltekjur hjóna voru 161
þús. kr. og einhleypra 82 þúsund
kr. á mánuði á fyrra ári. Hátt í
helmingur teknanna kemur úr
Tryggingastofnun og tæpur
þriðjungurinn úr lífeyrissjóðum.
82 þúsund króna meðalmán-
aðartekjur aldraðra má t.d. bera
saman við 109 þús. kr. meðal-
tekjur allra einhleypra kvenna.
Tekjur kvennanna lækka í 103
þús. kr. að frádregnum lífeyrisið-
gjöldum og stéttarfélagsgjöldum,
sem aldraðir eru lausir við. beir
eru líka lausir við hluti eins og
afborganir námslána og barna-
gæslu og borga einnig minna en
þeir yngri t.d. vegna læknis- og
lyfjakostnaðar, fasteignagjalda,
sundlaugarferða, strætisvagna-
ferða og jafnvel utanlandsferða
svo nokkuð sé nefnt.
Um 2/3 kverniaiuia
einstædar
Þessar meðaltekjur lýsa ekki
kjörum hvers og eins, enda er
tekjumunur hvergi meiri en í
þessum hópi. „Yngri hópurinn"
(71-75 ára) hefur mun betri
tekjur en meðaltalið segir: karlar
með 97 þúsund á mánuði og
konur um 88 þúsund. Hjón
hafa hátt í þau bæði til samans.
„Eldri hópurinn" er með lægri
tekjur og þar dregur hinn stóri
hópur einstæðra kvenna 76 ára
og eldri meðaltalið niður. Þær
eru helmingur alls einhleyps
fólks yfir sjötugt. Sá hópur hefur
rúmar 74 þús. kr. meðaltekjur,
en karlar á sama aldri um 85
þús. kr. á mánuði. A þessum
aldri eru hlutfallslega margir
komnir á stofnanir.
Þegar komið er yfir sjötugt eru
konurnar í töluverðum meiri-
hluta og 2 af hverjum 3 þeirra
orðnar einar, þ.e. ekkjur eða
ógiftar. Dæmið snýst alveg við
hjá körlunum, þar sem 2/3
þerrra eru enn í sambúð. Virðist
því ljóst að tekjulega eru karlarn-
ir í heild mun betur settir en
konurnar.
- HEI
Pólgalliim mátadur á Akureyri
Ólafur Ö. Haraldsson
Það er eins gott að vera hlýlega
klæddur á Suðurpólnum!
Grænlandsjökulsfararnir þrír
eru nú aftur komnir á stjá og
ætla á Suðurpólinn. Ólafur Örn
Haraldsson alþingismaður verð-
ur fjarri fjárlagaþrefinu og sonur
hans Haraldur Örn Ólafsson
héraðsdómslögmaður með,
ásamt þriðja manninum í kulda-
bolatríóinu: Ingþóri Bjarnasyni
sálfræðingi frá Akureyri. Þeir
ganga 1200 km. á skíðum ef allt
gengur eftir og styðjast ekki við
birgðastöðvar eða utanaðkom-
andi hjálp. Þeir safna áheitum
fyrir fatlaða íþróttamenn á
göngunni. Félagarnir halda
blaðamannafund í Utilífi í dag,
en í gær mátaði Ingþór heim-
skautagalla frá Foldu á Akureyri.
Vilja ekki
pólitískan
bæjarstjóra
Sameiginlegi listinn, sem félags-
hyggjuöflin hyggjast bjóða fram
á Akureyri næsta vor, verður
ekki með pólitískan bæjarstjóra í
fararbroddi eins og upphaflega
kom til umræðu. Heimildir
Dags herma að ef samið verði
um bæjarstjóraefni fyrir kosn-
ingarnar verði sá hinn sami ekki
á framboðslistanum.
Samkomulag mun vera um að
kalla þennan framboðslista Ak-
ureyrarlistann, en hann fær ekki
listabókstafinn A eða aðra bók-
stafi sem þegar hafa verið notað-
ir af framboðslista til bæjar-
stjórnarkosninganna.
Asgeir Magnússon, formaður
atvinnuþróunarfélags Akureyrar,
hefur verið nefndur til sögunnar
sem mögulegur kandidat félags-
hyggjumanna í bæjarstjórastól-
inn. Sigríður Stefánsdóttir, odd-
viti Alþýðubandalagsins, hefur
sem kunnugt er ákveðið að gefa
ekki kost á sér í kosningunum í
vor og ekki er ljóst hvort oddviti
Alþýðuflokksmanna í bænum,
Gísli Bragi Hjartarson, verði í
framboði. - GG
BQRGARTÚN! 31 • SÍMI 562 722
Loðnu-
samningi
sagt upp
Bls. 5