Dagur - 31.10.1997, Side 10
10- FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997
FRÉTTIR
Trillukarlar vilj a
stækka við sig
Smábátaeigendur telja að útgerdarmenn báta að 75 tonnum að stærð eigimeiri samleið með
þeim en LÍÚ. Þessu vísar LÍÚ á bug og bendir á að fjöldi smábátaeigenda sækir um inngöngu hjá
þeim á ári hverju.
Landsamband smá-
bátaeigenda verður
hugsanlega opnað eig-
endum báta allt að 75
tonnum, en núverandi
lög miða við 10 tonna
báta og minni.
Svo kann að fara að eigendum
báta allt að 75 tonn að stærð
verði heimilt að gerast félagar í
Landssambandi smábátaeigenda,
LS, en núverandi lög sambands-
ins miða bátastærð félagsmanna
við 10 tonn og minni. Tillaga
þess efnis fékk mjög jákvæðar
undirtektir á nýafstöðnum aðal-
fundi sambandsins en var vísað
til afgreiðslu næsta fundar að ári.
Orn Pálsson, framkvæmda-
stjóri LS, segir að bátaflotinn að
75 tonnum eigi mun meiri sam-
leið með þeim en togaraveldi
LIU. Nái sambandið að halda
trygg*nga*ðgj<ddum óbreyttum
mun bátur í þessum útgerðar-
flokki, sem er með vátryggingar-
mat uppá 20 milljónir króna og
fiskar fyrir annað eins á ári, spara
sér 200 þúsund krónur á ári í
lægri iðgjöldum og félagsgjöld-
um.
Ásókn í LÍÚ
Kristján Ragnarsson, formaður
LÍÚ, segist ekki óttast að það
muni kvarnast úr samtökum út-
vegsmanna þótt tillaga um
stækkun Landssambands smá-
bátaeigenda verði að veruleika.
Útvegsmenn báta frá 12-75
tonnum séu góðir og gegnir fé-
lagsmenn og afar ólíklegt að þeir
hafi áhuga á að skipta um vett-
vang. Þá sé þessi umræða um
stækkun innan sambands smá-
bátaeigenda ekki ný af nálinni án
þess að nokkuð hafi gerst í þeim
efnum.
Hann vekur hinsvegar athygli á
því að það sé alltaf eitthvað um
það að smábátaeigendur banki
uppá á skrifstofu LIÚ til að sækja
um aðild. Þeim hefur hinsvegar
ávallt verið vísað frá vegna þess
að samþykktir LIÚ kveða á um
að þeir einir geta gerst félagar í
aðildarfélögum LlÚ sem eru
með báta 12 tonn og stærri. Til
merkis um það hvað sumir smá-
bátaeigendur hafa sótt stíft að fá
inngöngu í LIÚ nefnir hann að
fyrir skömmu hefðu komið tveir
og spurt hvort ekki væri hægt að
leggja saman stærð bátanna svo
þeir uppfylli ákvæði um lág-
marksstærð. - GRH
Vanur
skotum
ráðherra
„Ég er vanur
skotum sam-
gönguráð-
herra og kippi
mér ekki upp
við þau,“ seg-
ir Jóhannes
Gunnarsson,
framkvæmda-
stjóri Neyt-
endasamtak-
anna, vegna orða samgönguráð-
herra í Degi í gær. Þar sakaði
Halldór Blöndal Jóhannes um
að ganga aðeins erinda Reykvík-
inga í neytendapólitíkinni, en
ekki landsins f heild.
Jóhannes minnir á að óánægja
landsmanna með gjaldskrár-
breytingu Pósts og síma sé ekki
minni á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Það er
greinilegt að samgönguráðherra
gengur erinda Pósts oog síma í
þessu máli. Hann hreykir sér af
þriggja milljarða króna hagnaði
og segir landsmenn eiga þá fjár-
hæð. En það eru Iíka landsmenn
sjálfir sem þurfa að greiða fyrir
þann hagnað." BÞ
Sænskír gigtarsjúM-
ingar til landsins
Hópur sænskra gigtarsjúklinga
er væntanlegur hingað tií lands á
næstunni, og er heimsókn þeirra
liður í rannsókna á áhrifum
skammdegis og kulda á sjúkdóm-
inn. Björn Guðbjörnsson, yfir-
læknir á lyflækningadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri
hefur verið beðin um að aðstoða
hópinn þegar hann kemur.
Björn segir ýmislegt benda til
að veðurfar og Ioftþrýstingur hafi
töluverð áhrif á ákveðna tegund
gigtar. Nákvæmlega hvaða áhrif
eru ekki kunn en Iiðagigtarsjúk-
lingar á norðurslóðum fá oft góð-
an bata á suðrænum ströndum.
„Það varðar ekki bara verk og
stirðleika heldur batnar bióðgild-
ið oft einnig, sem segir til um á
hvaða stigi sjúkdómurinn hefst
við. Erfitt er að útskýra þetta vís-
indalega en sólarljós hefur tölu-
vert verið notað við meðhöndlun
sjúklinga á norðurslóð sem ekki
þola gigtariyf. I mörgum tilvikum
tekst það mjög vel en hvernig það
er útskýrt er arinað mál. Við vit-
um einnig að í Skotlandi hafa
verið athuguð áhrif lágþrýstings
á tíðni heimsókna liðagigtarsjúk-
linga til gigtlækna. Þar hefur
einnig fundist samband. Þegar
lægðir eru yfir skosku eyjunum
sækjast gigtsjúklingar í auknum
mæli eftir hjálp,“ segir Björn.
Á morgun verður haldið mál-
þing um gigtarsjúkdóma að í
Menntaskólanum á Akureyri fyr-
ir heilbrigðisstarfsfólk á Norður-
landi. Læknafélag Akureyrar
stendur að stefnunni í samráði
við Norðausturlandsdeild hjúkr-
unarfræðinga. Gestafyrirlesari
verður Roger Hallgren en hann
er einn eftirsóttasti fyrirlesari
heims á þessu sviði. -BÞ
Ákveðin tegund gigtar virðist algengari á fslandi en annars staðar.
Kranamaður
óskast
HVRIMA EHR
BYGGINGAVERKTAKI . TRÉSMIÐJA
Dalsbraut 1 • 600 Akureyri • Sími 461 2603 • Fax 461 2604
Matvæla- og veitingasamband íslands boðar til
almennra félagsfunda sem hér segir:
A Akureyri miðvikudaginn 5. nóv. nk. á Fiðlaranum kl. 16 og í
Reykjavík miðvikudaginn 12. nóv. nk. að Þarabakka 3 kl. 20.
Fundarefni:
1. Trúnaðarmaður á vinnustað
2. Vinnustaðaþáttur kjarasamninga
3. Hvíldarákvæði
4. Onnur mál.
Félagar fjölmennum.