Dagur - 31.10.1997, Page 11

Dagur - 31.10.1997, Page 11
FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997 - 11 XWwr ERLENDAR FRÉTTIR L Krcppa í náttúrn- og efnahagsmálum í Indónesíu eru nú verstu þurrk- ar í sögu þess ríkis og veðurfræð- ingar spá því að þeir muni standa enn um hríð. Reykurinn frá skógareldum þar, sem eink- um eru á stóreyjunum Borneó og Súmötru, blandast loftmengun- inni frá borgum, iðnaði og um- ferð. Sú óheillavænlega þoka þekur nú ekki aðeins mestan hluta Indónesíu, heldur liggur hún yfir stærri eða smærri hlut- um ríkjanna Malasíu, Filipps- eyja, Singapúr, Taílands, Brunei og Papúu-Nýju Gíneu. Jafnframt á Suðaustur-Asía í meiri erfiðleikum í fjár- og efna- hagsmálum en verið hefur um langt skeið. Þetta tvennt gerir að verkum að margir eru um þessar mundir daprir í hug og svartsýn- ir í þessum heimshluta efna- hagsundra. Dóminó-áhrif í fjáimálum Menn sem vilja teljast orð- heppnir rifja í þessu samhengi upp dómínókenningu Bandaríkj- anna, sem einkum tengdist Suð- austur-Asíu, og kom fram snemma í kalda stríðinu. Sam- kvæmt þeirri kenningu voru allar líkur á þM að ef eitthvert landa heimshlutans yrði „kommúnism- anum að bráð“, liði ekki á löngu áður en næsta land þar félli hon- um í hendur og svo koll af kolli. Svo fór ekki, en í fjár- og efna- hagsmálasögunni hefur gangur mála undanfarið verið í líkingu við þetta. Kreppa sú sem hér um ræðir hófst í Taílandi í júlíbyrjun og breiddist síðan út til annarra Suðaustur-Asíuríkja, einkum Indónesíu og Malasíu. Framan af gerðu margir ráð fyrir því að kínversk/konlúsíanska heimin- um, er sterkari væri fyrir í efna- hagsmálum en nýáminnst Suð- austur-Asíuríki og líklega með meiri fyrirhyggju í stjórnun efna- hagsmála, tækist að halda þess- um vandræðum frá sér. En í október komst bylgja þessa ástands til Suður-Kóreu, Taívan og Hongkong. Þegar svo langt var komið fóru einhverjir að kalla þetta asíuin- flúensu í efnahagsmálum. Og hún hélt sig ekki innan marka Asíu, frekar en aðrir inflúensu- faraldrar kenndir við þá álfu. Þegar hér var komið sögu var vandræðaástand þetta í efna- hagsmálum Suðaustur- og Aust- ur-Asíu, svo mikilvægt sem það svæði er í fjár- og efnahagsmál- um heimsins, búið að ná slíkri breidd og dýpt að það breiddist út til Japans og Vesturlanda, langvoldugustu svæða heims í efnahagsmálum, auk annarra landa eins og ýmissa ríkja Baksvið Rómönsku Ameríku og Rúss- lands, sem verr eru í stakkinn búin en Vesturlönd til þess að standast þesskonar. í Indónesíu eru mestu þurrkar og skógareldar í sögu þess ríkis og kreppa í fjár- og efnahagsmál- uiii Iirjáir suðaust- urasísku efna- hagsuudriu. Plágur af mannavölduin Ahrifamenn og sérfræðingar um efnahagsmál segjast að vísu telja að heimurinn muni sigrast á þessum vandræðum innan ekki rnjög langs tíma. En spárnar um hversu langan tíma það taki eru nokkuð á reiki frá degi til dags. Og almennt álit í nefndum hóp- um virðist vera að Suðaustur- Asía, þar sem þetta alltsaman byrjaði, muni verða lengst að ná sér upp úr því og kannski all- lengi. Skógareldarnir í Indónesíu fóru að breiðast verulega út um sama leyti og kreppan hófst í Taílandi. Um orsakir hvors- tveggja er ýmislegt skrifað, en margir virðast sammála um að báðar þessar plágur séu mikið til af mannavöldum. Hér hafi miklu um valdið hömlulaus gróðafíkn, spilling, spákaupmennska og fyr- irhyggjuleysi. Taíland hefur til þessa orðið harðast úti í efnahagskreppunni. Baht, gjaldmiðillinn þar, hefur fallið um 40% gagnvart bandar- íska dollarnum, og spáð er að næsta ár verði hagvöxtur þar rúmlega 2%, en sl. ár var hann tæplega 7%. Þróunarbanki Asíu spáir að verðbólga í Suðaustur- Asíuríkjum að meðaltali verði 11,4% árið 1998 en 1996 var hún 6,6%. Fuglar falla dauðir Skógareldarnir og þurrkarnir, sem valda miklu um að eldarnir hafa orðið svo skæðir sem raun ber vitni, hafa eins og nærri má geta leikið Indónesíu harðast. Og áföll þessi af manna völdum og náttúrunnar auka mjög efna- hagsvandræðin þarlendis og þess er raunar farið að gæta í grann- löndum lndónesíu einnig. (E1 Nino-veðrinu á Kyrrahafi er kennt um þurrkana, en margra mál er að gróðurhússáhrifin séu að einhverju leyti völd að því.) Reykjarmökkurinn, sem víða er svo þykkur að ekki sér til sólar, og þurrkarnir hafa þegar komið illa niður á akuryrkju í Indónesíu, með þeim afleiðing- um að þar er spáð matarskorti og hækkandi verðlagi á mat. Reyk- urinn fælir ferðamenn frá Singapúr og baðströndum í Taílandi. Eldarnir hafa þar að auki vald- ið stórtjóni á dýralífi og allmildu tjóni á heilsu manna. Tígrísdýr, fílar og órangútanar flýja undan eldi og vegna matarskorts til byggða manna, þar sem þau eru drepin. Fuglar falla dauðir úr lofti. Skólabiirn falla í yfirlið í kennslustundum. Samkvæmt einni frétt hafa hundruð rnanna þegar látist í Indónesíu úr sjúk- dómum og jafnvel hungri sem skógareldunum og mökknum eitraða er kennt um. Læknar þarlendis spá hækkandi dánar- tíðni um alllanga framtíð af völd- um loftseitrunarinnar, einkurn rneðal harna, aldraðs fólks og fólks með sjúkdóma í öndunar- færum. Ætla að hittast árlega BANDARÍKIN - Bill Clinton Banda- ríkjaforseti og Jiang Zemin forseti Kína voru ekkert að fara í felur með ágrein- ingsefni sín að loknum kvöldverðar- fundi sínum í fyrrinótt, og varða þau einkum málefni Taívans, Tíbet og mannréttindi. Var greinilegt að Clinton hafði átt von á að Jiang yrði sveigjan- legri en raun varð á. Engu að síður til- k^mntí Clinton að Bandaríkin myndu heimila sölu á kjarnakljúfum til Kína, eftir að Jiang hafði heitið því að Kín- verjar myndu ekki flytja út kjarnorku- vopn. Þá gaf Clinton grænt ljós á sölu flugvéla til Kína fyrir andvirði þriggja milljarða dollara. Ennfremur ákváðu leiðtogarnir að hittast árlega framvegis, og mun Clinton því gera sér ferð til Kína á næsta ári. Clinton óhress með staðfestu Jiangs. Öryggisráðið gagn- rýnir írak IRAK - Oryggisráð Sameinuðu þjóð- anna var einróma í gagnrýni sinni á Irak í gær og krafðist þess að bandarískum vopnaeftirlitsmönnum yrði gert kleift að hefja aftur störf sín í samvinnu við írösk stjórnvöld, að öðrum kosti mættu Irakar búast við „alvarlegum afleiðingum.“ Engin merki voru um að Irakar byggð- ust taka til baka ákvörðun sína um að neita eftirlitsmönnunum að starfa í landinu, en Saddam Hussein virðist Saddam Hussein: Treysti á óein- hafa tekið þessa ákvörðun í þeirri von ingu i Öryggisráðinu. að samstaða myndi ekki nást í Öryggis- ráðinu vegna málsins. Dauðadómur vegna túristamorða EGYPTALAND - Herdómstóll í Egyptalandi dæmdi í gær tvo bræður til dauða fyrir sprengjuárás í september síðastliðnum þar sem níu þýskir ferðamenn og egypskur bifreiðarstjóri létu lífið, en að auki slösuðust 26 manns í sprengingunni. Sex samverkamenn þeirra voru einnig dæmdir í eins til tíu ára fangelsi. Sprengjuárásin hefur dregið mjög úr ferðamannastraumi til landsins. ímelda Marcos á sjúkrahús FILIPSEYJAR - ímelda Marcos, ekkja Ferdinands Marcos fyrrum einræðisherra á Filipseyjum, var í gær flutt með skyndi á sjúkrahús vegna of hás blóðþrýstings. Imelda, sem nú situr á þingi, veiktist stuttu eftir að hún hafði átt í harðorðum deilum við nokkra þingmenn út af því að hún vildi endurheimta eigur eiginmanns síns, sem hald var lagt á vegna þess að þær voru taldar illa fengnar. Bjartsýni í Danmörku DANMÖRK - 67% danskra fyrirtækja telja afkomu sína verða betri á þessu ári en í fyrra, og eru Danir þar með í fremstu röð hvað bjart- sýni varðar á efnahagsástandið ef marka má könnun sem gerð var meðal forystumanna í 43 ríkjum. Stolið salmonellukjöt á kreiki SVÍÞJÓÐ - Um 300 kílóum af salmonellusmituðu kjöti frá Ítalíu var stolið úr frystigárhi í bænum Gávle í Svíþjóð, og er ekki vitað hvar kjötið er niður komið. Óttast stjórnvöld að margir geti veikst ef kjöt- ið berst til neytenda. Kjötinu átti að skila aftur til Ítalíu og beið þess í gáminum. Grunsamlegur vöggudauði NOREGUR - Norska lögreglan rannsakar nú lát fjögurra ungbarna sömu móður á árunum frá 1990, en dauði þeirra var llokkaöur sem vöggudauði. Telur lögreglan sig hafa rökstuddan grun um að um refsivert athæfi móðurinnar hafi verið að ræða. Þeir sem kunnugir eru Qölskyldunni eiga afar bágt með að trúa nokkru misjöfnu upp á móöurina, og þekkja hana ekki að öðru en að vera barngóð með af- brigðum.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.