Dagur - 31.10.1997, Side 13
FÖSTUDAGUR 31.0KTÓBER 1997 - 13
ÍÞRÓTTIR
GOLF
Bergvíkm
fékk flest
stig
Tuttugu kylfingar úr fimmtán
golfklúbbum sáu um að velja
bestu golfholur landsins, eftir-
taldar holur fengu flest stig í val-
inu.
Par þrjú holur:
3. hola Hólmsvelli (48)
4. hola Jaðarsvelli (35)
13. hola Korpúlfsstaðav. (16)
18. hola Jaðarsvelli (16)
17. hola Vestmannaeyjav. (16)
2. hola Garðavelli (12)
Aðrar holur fengu mun minna.
Par IJögur holur:
12. hola Korpúlfsstöðum (26)
7. hola Grafarholtsv. (21)
12. hola Jaðarsvelli (20)
13. hola Vestmannaeyjav. (17)
10. hola Urriðavatnsvelli (17)
2. hola Hvaleyrarvelli (15)
17. hola U rriðavatn sd. (15)
6. hola Kiðjabergsvelli (13)
8. hola Ekkjufellsvelli (11)
7. hola Strandarvelli (11)
Næstai í röðmni:
18. Hvaleyrarvelli,
2.og 4.holan á Hólmsvelli Leiru,
1. og 5. í Grafarholti,
7. í Grindavík,
4. á Nesvelli.
Par fímm - Þær 8 bestu
15. hola Grafarholtsv. (45)
7. hola Hvaleyrarvelli (24)
4. hola Kötluvelli, Húsav. (23)
18. hola Hólmsvelli, Leiru (16)
3. hola Urriðavatnsvelli (14)
1 5. hola Korpúlfsstaðav. (10)
3. hola Korpúlfsstaðav. (10)
16. hola Vestmannaeyjav. (9)
Til föður-
húsaima
Guðjón Guðmundsson, íþrótta-
fréttamaður á Stöð 2, hafði sam-
band við Dag vegna fréttar af
gjaldþrotamáli knattspyrnu-
deildar Fylkis, sem birtist í blað-
inu í gær. Guðjón vildi koma því
á framfæri að Kolbeinn Finns-
son, formaður knattspyrnu-
deildar Fylkis, hafi ekki farið
með rétt mál þegar hann sagði
að frétt sem birtist um málið, á
Stöð 2, hafi verið röng vegna
þess að náðst hefðu samningar
við kröfuhafa. „Lögmaður Fylk-
is, sem ekki kynnti sig, kom hér
í hús kl. rúmlega 7 og sagði mér
þá að náðst hefðu samningar og
að gengið hafi verið frá málinu.
Eg bað hann að senda mér þetta
staðfest á faxi, þá myndi ég segja
frá því. Svo sagði ég í lok minn-
ar fréttar að upplýsingar hefðu
borist í hús rétt áðan að líklega
væri búið að semja um málið og
málið væri í höfn,“ sagði Guðjón
Guðmundsson og vísaði um-
mælum Kolbeins Finnssonar til
föðurhúsanna. - GI>Ö
Tveir færeyskir lands-
liðsmerai til Leifturs
Tveir fastamenn í færeyska
landsliðinu munu að öllum lík-
indum ldæðast Leiftursbúningn-
um næsta sumar. Um er að ræða
markvörðinn Jens Martin Knut-
sen sem er þrjátíu ára gamall og
á um fimmtíu landsleiki að baki.
Knutsen var þekktur fyrir að
spila með húfu á höfðinu í fyrstu
leikjum sínum með færeyska
landsliðinu. Hinn leikmaðurinn
er bakvörður, Össur Hansen,
sem á tæpa fjörtíu landsleiki að
baki, en báðir voru í Iiði Götu,
sem Páll Guðlaugsson, núver-
andi þjálfari Leifturs, stýrði í
fyrra.
„Þetta eru strákar með mjög
milda reynslu og mér sýnist flest
benda til þess að þeir verði með
Leiftri. Þeir eru báðir spenntir
fyrir því að leika hér á landi,“
sagði Páll, sem dvalist hefur í
Færeyjum en flytur hingað til
lands í dag.
Páll dvaldist í Færeyjum sl.
sumar, en hefur á undanförnum
dögum kynnt sér leiki Leifturs-
manna af myndböndum og sagð-
ist vongóður um að liðið héldi
sama styrkleika og í fyrra. „Það er
líklegt að við styrkjum liðið fyrir
sumarið með 2-3 íslenskum leik-
mönnum, þó engin endanleg
ákvörðun hafi verið tekin um
það,“ sagði Páll.
Fyrsta æfing Páls með Leift-
ursliðið verður á morgun, en þá
mun Leiftur leika æfingaleik
gegn Dalvíkingum. Annars mun
undirbúningur liðsins verða svip-
aður og undanfarin ár, æft verð-
ur bæði í Reykjavík og Ólafsfirði.
Ljóst er að Gunnar Már Más-
son og Pétur Björn Jónsson verða
ekki í Leiftursbúningnum næsta
sumar og óvíst er hvað verður
með þá Davíð Garðarsson og
Hörð Má Magnússon. Páll sagð-
ist vonast til þess að aðrir leik-
menn yrðu áfram og kapp yrði
lagt á að halda Þorvaldi Makan
Sigbjörnssyni, helsta markaskor-
ara liðsins í fyrra.
Gunnar Már í
Vesturbæiim
Gunnar Már Másson.
JÓk AKUrúEYFII
föstudaginn 31.10. og laugardaginn 01.11
Leifturs- og landsliðsmiðherjinn,
Gunnar Már Másson, er eftirsótt-
ur af mörgum liðum hér á landi.
Hann hefur verið í Skotlandi síð-
ustu daga þar sem hann þykir
hafa staðið sig mjög vel. Dagur
hefur heimildir fyrir því að gagn-
kvæmur áhugi sé hjá Gunnari og
KR að hann komi í Vesturbæinn,
leiki hann hér á landi á næsta
keppnistímabili. Hann tæki þá
væntanlega við stöðu Ríkharðs
Daðasonar, eins og hún var á sfð-
asta ári, í fremstu víglínu KR.
Gunnar, sem verið hefur einn af
burðarásum Leifturs undanfarin
fjögur ár, verður með Iausan
samning við Ólafsljarðarliðið um
áramótin. Að sögn Ægis Ólafs-
sonar eru Leiftursmenn þessa
dagana að ganga frá samningum
við þá leikmenn sína sem eru með
lausa samninga. Verið er að ganga
frá samningum við Slobodan Mil-
isic nú og samningar við aðra
leikmenn komast á koppinn á
næstu vikum. Hvað Gunnar Má
varðar sagði Ægir að hans mál
skýrðust ekki fyrr en hann kæmi
heim úr Skotlandsreisunni í
næstu viku. — GÞÖ
INNLENT
Stórskytta til KA
Islandsmeistarar KA í hand-
knattleik hafa gengið frá samn-
ingi við handknattleiksmanninn
Vladimir Goldin frá Hvíta-Rúss-
landi og leikur hann með sínu
nýja félagi gegn IR nk. miðviku-
dag.
Goldin verður KA-liðinu mik-
ill styrkur í þeirri baráttu sem
framundan er, bæði í Nissan-
deildinni og Meistarakeppni
Evrópu. Hann er réttbent
skytta, um 1,98 metrar að hæð
og hefur leikið 50 Iandsleiki
fyrir Hvíta-Rússland. Undanfar-
in misseri hefur hann leikið með
Berlín f Þýskalandi og Bruck í
Austurríki en kemur hingað frá
SKA Minsk í Hvíta-Rússlandi.
— GG
Atli Már til
Dalvíkur
Atli Már Rúnarsson, sem stóð í
marki 1. deildar Þórs í knatt-
spyrnu, er genginn til liðs við 2.
deildarlið Dalvíkur og mun
væntanlega standa í marki iiðs-
ins næsta sumar. Gunnar Magn-
ússon, fyrrum markvörður
Fram, sem sæti hefur átt í yngri
landsliðum íslands, stóð á milli
stanganna hjá Dalvík sl. sumar
en mun ekki verða áfram með
liðinu.
Kynnumst
eldunartækjum
framtíðarinnar
||| \^^uc.ucuUcUu
Sérstakt tilbod
AEG ofn, helluborð og vifta
á aðeins: 59.900,-
var óður: 77.000,-
Allt að 15% afsláttur
^índesíl-
AEG
Þýsk heimilistæki r Kæliskápar
LWeneral frost
—— Kæliskápar
Raftæki.pottar og pönnur
Leirvörur í gæðaflokki
BOSCH
Rafmagnsverkfæri
AEG Handverkfæri
miklu úrvali
JltUmCcpo 15„/o afs|áttur
BYGKAVORUR
SÍMAR: 463 0311,463 0326 og 463 0323
Kynningd öli á öldur-
húsum Akureyrar um helgina
Sjónvörp
jamq
“THE SOUND OF EXCELLENCE”
BOSCH
Varahlutir og aukahlutir
Má bjóða þér
í alvöru bíó
... framtíðin í hljóði og myndum
ör) PIOINIEER
The Art of Entertainment
Ljósritunarvélar, faxtæki,
sjóðvéiar og skjávarpar
triðon^
Ðilavarahlutir
Bílaperur
Verbindende Tecbnik
Verkfæri, efnavara og rekstrarvörur
VÉLAR&
ÞJéNUSTA hf
ÓSEYRI 1A • SlMI 461 4040 • FAX 461 4044