Dagur - 31.10.1997, Qupperneq 5
FOSTUDAGUR 31.OKTÚBER 1997 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
LEIKHÚS
KVIKMYNDIR
TÓNLIST
SKEMMTANIR
Akureyri/Norðurland
Hralnsdóttir
A að einkavæða ríMsíyrirtæki?
Unglistarvikan endarí
dag og í bláendann
verdurMorfískeppnin
þó hún tengist Unglist
ekki beint. Liðin sem
takastáum hvort
einkavæða eigi ríkis-
fyrirtæki eða ekki eru
Menntaskólinn áAk-
ureyrí og Verslunar-
skóli íslands.
Ræðukeppnin hefst klukkan
20:30 en þangað til verður
skúlptúrsýning og spunadans
sem hefjast um klukkan 20:00.
Spunadansinn fremja nemendur
Onnu Richard danskennara en
skúlptúrsýningin var unnin í
samvinnu við listakonuna Sól-
veigu Raldursdóttur. Þá verður
hin mjög svo alvarlega ræðu-
keppni brotin upp með söngat-
riðum og leikatriðum frá LMA
og Locos.
MA-ingar voru ekki með í
Morfís í fyrra. Eitthvað er nú á
bak við þá afstöðu? „Jú, það var
af pólitískum ástæðum,“ segir
Huginn. „Við vildum ekki taka
þátt í þeim skrípaleik sem Mor-
fís var orðið. Þetta snerist ekki
um mælsku né rökræðulistina.
Okkur var lofað breytingum og
því tökum við þátt núna enda á
að leggja áherslu á rök og
mælsku en ekki einungis brand-
ara!“
í lok Unglistarvikunnar á Ak-
ureyri er hér smá annáll frá
Unglistarfólkinu:
A miðvikudagskvöldið síðasta
var haldið ljóðakvöld á vegum
unglistar í Deiglunni.
Erlingur Sigurðsson, forstöðu-
maður Sigurhæða kom og
spyrnti boltanum af stað sem
fulltrúi „eldri borgara," þ.e.
þeirra sem ekki flokkast undir
Unglist, aldursbilið 16-25 ára.
Voru ýmis góð skáld þar á ferð
utan við hann og langar mig sér-
staklega að nefna Arnrúnu
nokkra Arnórsdóttur sem var
fremst meðal jafninga, persónu-
leg og tilfinningaleg í senn.
Fatahöimimarsýning
Unglistar
Á þriðjudagskvöldið fór fram
ansi athyglisverð uppákoma í
Dynheimum á vegum Unglistar.
Þarna var á ferðinni fatahönn-
unarkeppni eða öllu heldur sýn-
ing á all sérstæðum fatnaði.
Þarna hafði ungt fólk gefið
ímyndunaraflinu lausan taum-
inn og útkoman varð fjölbreytt
og skemmtileg sýning sem var
Ræduliðid sem ætlar með létt marxiskri hugmyndafræði eða söguskoðun að mútmæla einkavæðingu rikisfyrírtækja: Huginn, Marínó, Kjartan og
Hilma. Liðsstjúrí er Huginn sem svarar ísímann hjá nemendafélaginu með eftirfarandi hætti: „Nemendafélagið Huginn, Huginn."
fyllilega þess virði að sjá.
Að lokinni sýningunni var
virkilega gott að gæða sér á veit-
ingum í þægilegu umhverfi Kaffi
Krílis áður en haldið var heim á
leið eftir velheppnaða kvöld-
stund í boði unglistar. Þarna er
á ferðinni hópur kraftmikilla og
fórnfúsra ungmenna sem lagt
hafa mikið á sig við að hefja
listalíf ungs fólks til vegs og
virðingar. Af þessum sökum
finnst mér að fullorðið fólk ætti
að sýna sóma sinn í því að koma
á þessar uppákomur og heiðra
ungt fólk með nærveru sinni
þegar þau eru nú loksins að gera
eitthvað annað en að veltast um
miðbæinn í annarlegu ástandi,
brjótandi rúður og ógnandi lífi
siðmenntaðra bæjarbúa.
HELGIN FRAMUNDAN HVAÐ ER I BOÐI?
Vísnasöngtir í Deiglunni
Akureyringurinn Gullý Hanna
Ragnarsdóttir heldur tónleika í
Deiglunni sunnudaginn 2. nóv-
ember klukkan 17:00. Með
henni eru tveir tónlistarmenn, og
kallar tríóið sig Tríó Gullýjar
Hönnu Ragnarsdóttur.
Gullý og hljómsveitin eru hér
til að halda norræna vfsnatón-
leika í Norræna húsinu, í Deigl-
unni og á Pollinum þann 4. nóv-
ember. Tríóið mun flytja vísnalög
á íslensku og dönsku.
Geisladiskarnir sem Gullý
Hanna hefur gefið úr eru:
Drommen, En hilsen til min
hjemstavn, Jeg la’r doren stá pá
klem og nú síðast Sangen til dig,
sem kom út á þessu ári.
Aðgangseyrir kr. 500.
Bikarinn í körfimni
Á sunnudaginn hefst bikar-
keppni KKI í körfuknattleik og
eigast þá við á Akureyri hið unga
og efnilega lið Þórs og sjálfir
bikarmeistararnir (engir aukvis-
ar) Keflvíkingar. Leikurinn er í
32 Iiða úrslitum.
Leikurinn hefst klukkan
20:00 í íþróttahöllinni á Akur-
eyri og að sögn þjálfara Þórs,
Gunnars Sverrissonar, má búast
við erfiðum leik en erfiðleikarnir
eru til að yfirstíga þá.
Eins og allir vita unnu Kefl-
víkingar alla titlana í körfunni
síðastliðinn vetur en þeir hafa
misst marga af sínum bestu Ieik-
mönnum. Engu að síður virðast
þeir ekki vera í nokkrum vand-
ræðum með að fylla skarð lykil-
manna.
Lið Þórs er sldpað ungum og
efnilegum leikmönnum og vonar
þjálfarinn að liðið taki framför-
um eftir sem líður á veturinn.
SIÐASTA VIKUR
NR. LAG FLYTJANDI VIKA ÁUSTA
1. Thumbthumping Chumbawamba 2 4
2. Di Da Di (and so the story goes) Maria Montell 4 3
3. Spice up your live Spicegirls ^WýTr 1
4. Sunchyme Dario G 5 3
5. Turn my head Live 1 5
6. Avenues Refugees 6 3
7. Railando Paradiso 3 5
8. Drug’s don’l work The Verve 9 2
9. Got’ it til it’s Janet Jackson 7 3
10. Stay Sash 13 2
11. Moment of my live Bobby D Ambrossio (MýT| ■1
12. Prumpufólkið Dr. Gunni 16 2
13. Phenomenon LL Cool J 17 2
14. Samba de janero Bellíní 8 6
15. Power of love Corona 10 3
16. Friday night 24/7 ásamt Stay C 11 3
17. Wanna be like a man Simone J 12 3
18. Familiar Incubus an dj grayboy 19 1
19. As long as you love me Backstreet boy’s 3
20. Klæddu þig Nýdönsk J^BýTr r 1
Listinn er spilaður á föstudögum milli kl. 20 og 2
Hlustaðu á Frostrásina í belnni á internetinu
http://nett.is/frosrasin • E-mail: frostras@nett.is