Dagur - 15.11.1997, Blaðsíða 9

Dagur - 15.11.1997, Blaðsíða 9
8- LAUGARDAGUR 1S. NÚVEMBF.R 1997 FRÉTTASKÝRING LAUGARDAGUR 1S. NÓVEMBER 1997 - 9 Saudfjárrækt á tímaniótuin BJÖRN ÞORLAKS SON SKRIFAR 4000 tonna samdxátt- ur á 13 árum. Tekjurýmun fælir unga fólkið burt úr sveitunum. Nýjustu afkomutölur benda þó til batnandi tíma. Það hvílir skuggi yíir framtíð sauðfjárræktar á Islandi þótt botninum hafi e.t.v. verið náð skv. nýjum upplýsingum ffá Hagstofu landbúnaðarins þar sem fram kemur að afkoma batnaði í fyrra samkvæmt búreikningum hrein- na sauðfjárbúa. Sauðfjárbændur eru þó svartsýnir, enda búa þeir við kröpp kjör og ýmsir velta fyrir sér hvað verði um dreifbýlið ef sauðljárbúskapur Ieggst af, sumir kalla stjórnvöld til ábyrgðar. Hag- þjónusta landbúnaðarins spáir að staða búgreinarinnar haldi áfram að verða mjög erfið, en formaður Bændasamtakanna sér ekki ffam á að sauðfjárbúskapur leggist af. Engin útleið Þótt bataskeið sé mögulega hafið er fortíðarvandinn mikill. Sauð- fjárbændur hafa þurft að ganga á eigur sínar og safna skuldum, starfandi bændur eiga ekki greiða útleið og kynslóðaskipti eru tor- veld vegna Iélegrar afkomu. Slíkt ástand er alvarlegt, þar sem sauð- fjárrækt tryggir búsetu um landið og hefur töluverð óbein áhrif t.a.m. í ferðaþjónustu. Þróunar- svið Byggðastofnunar hefur tekið saman skýrslo um stöðu sauðQár- ræktar og áhrif á byggðaþróun og má lesa eftirfarandi út úr þeirri vinnu: * Framleiðsla og sala innan- Iands á kindakjöti hefur dregist verulega saman undanfarin ár. Markaðshlutdeild kindakjöts féll þannig úr 67% árið 1983 í 42% árið 1996 sem er samdráttur um tæp 4000 tonn. * Kílóverð af lambakjöti til bænda lækkaði um 13,6% frá 1991-1996, en smásöluverð Iækkaði um 3,9%. Því hefur sam- band milli markaðsverðs og verð til framleiðenda orðið veikara. * Lausleg áætlun Byggðastofn- unar bendir til þess að framlag sauðfjárbúskapar til þjóðarfram- Ieiðslu hafí verið um 0,7% árið 1994. Lítil framleiðni og tak- mörkuð verðmætasköpun er verulejgt vandamál í sauðfjárrækt. * A Iandssvæðum þar sem sauðfjárrækt vegur þyngst fækk- aði íbúum úr 6.438 í 5.945 eða 7,6% frá 1991-1996. Gert er ráð fyrir að fólki hafi fækkað um 8% til viðbótar eftir 5 ár ef svo fer fram sem horfír. * Arsverkum í sauðfjárrækt á þessum svæðum fækkaði um rúmlega 300 frá 1991-1994. Fyr- ir hvert starf sem tapast í sauð- fjárrækt virðist hálft starf tapast í afleiddum greinum á svæðunum. Reiknað er með um 2% árlegri fækkun ársverka næstu fimm árin á þessum svæðum. *Á árabilinu 1986-1996 fækk- aði lögbýlum með sauðfé úr 3.976 í 2.444 og lögbýlum með eingöngu sauðfé úr 2.643 í 1.712. Kindakjötsframleiðslu var hætt á 364 hreinum sauðQárbú- um frá 1991-1996. * Þrátt fyrir fækkun sauðfjár- bænda hefur bústærð farið minnkandi. Verðlagsárið 1994/1995 voru tæplega 90% hreinna sauðfjárbúa orðin undir 300 ærgildum. *Ráðstöfunartekjur einstakl- inga á landinu öllu hækkuðu um 5,5% frá 1991-1996. Á sama tímabili lækkaði Iaunagreiðslu- geta sauðfjárbúa um 35%. *Einn af hverjum þremur sauð- fjárbændum telur líklegt að bú- skapur leggist af, hætti þeir bú- skap. * Meðaltekjur sauðfjárbænda eru það lágar að þeir ganga á eig- ur sínar, jafnvel þótt þeir hafi töluverðar tekjur utan bús. *Árið 1994 höfðu um 600 sauðfjárbændur og makar þeirra litlar sem engar aukatekjur utan bús. Áætlaðar tekjur þeirra eru mun lægri en meðalatvinnutekjur hjóna á landinu öllu. * Búast má við röskun búsetu víða um land, haldi tekjur af sauðfjárrækt áfram að minnka með sama hætti og verið hefur. * Framfarir í sauðfjárrækt kalla á fækkun sauðfjárbúa. Vinna þarf skipulega að myndun nýrra at- Ber kvíðboga fyrir framtíðiimi Erlendur Eysteinsson, bóndi á Stóru Giljá í A-Húnavatnssýslu, varð að skera fé sitt eftir að riða kom upp hjá honum árið 1995. Hann mun aftur hefja sauðfjár- búskap næsta haust. Búið á Stóru Giljá var í hópi þeirra stærstu á landinu, þar voru um 1200 ær þegar mest var, en Er- lendur þurfti að skera allan stofn- inn, um 900 ær, þegar riða greindist í einni kind. Erlendi líst illa á horfurnar: „Með sífelldum niðurskurðí á framleiðslurétti hafa tekjur bænda skerst æ meir. Unga fólkið fráfælist landbúnað- inn og hverfur úr sveitunum til annarra starfa. Nú er svo komið að víða býr háaldrað fólk á býlun- um sem eru að koðna niður. Bændum hlýtur að fækka þegar þetta fólk deyr og ég óttast að þeim fækki allt of mikið af samfé- lagslegum orsökum í þessum dreifðu byggðum. Hvað gerist þá? Það eru aðens örfáir kúabændur í hverri sveit og ef Ijárbændur týna tölunni verður félagslíf sveitanna orðið ansi rýrt. Eg ber kvíðboga fyrir framtíðinni í þessum efn- um,“ segir Erlendur. Aðspurður segir Erlendur að riðuveikin hafi ekki dregið kjark úr bændum. „Nei, hugur manna hefur verið allt of sterkur til þess. Hins vegar gefast menn upp vegna tekjuleysis." Mikill samdráttur hefur orðið i framleiðslu kindakjöts undanfarin ár. Orsakirnar eru mun minni útflutningur og minni markaðshlutdeild innanlands. Salan minnkar um tæplega 400 þús. tonn frá 1983-1996 og um 1.100 tonn frá 1991-1996. Markaðshlutdeild svína- og nautakjöts hefur aukist á kostnað kindakjötsins. - mynd: gs vinnutækifæra í byggðum sem háðar eru sauðíjárrækt. Þjóðhagsleg hagkvænmi Einn athyglisverðasti punkturinn í úttekt Byggðastofnunar er þýð- ing sauðfjárframleiðslu fyrir þjóð- arbúið. Hlutdeild mjólkur- og kindakjötsframleiðslu féll úr 4,5% árið 1980 af vergri þjóðar- framleiðslu í aðeins 1,7% árið 1994. Miðað við skiptingu eftir veltu afurða gæti framlag sauð- fíárbúskapar til þjóðarframleiðslu hafa verið komið niður í um 0,7% árið 1994. Árið 1985 var hlut- deild almenns landbúnaðar í vinnuafli um 5.6% en var um 3,9% árið 1994, samtals um 4.800 ársverk. Þar af eru áætluð um 1900 ársverk í sauðfjárrækt. Hins vegar dylst engum hugur að sauðíjárbændur eru mikilvægur hlekkur í að halda byggð í dreif- býli lifandi. Hugsanlegar úrhætur Af framansögðu má ljóst vera að vandi sauðfjárbænda er gífurleg- ur. Hvað er til ráða? Byggða- stofnun telur að verðhækkun á lambakjöti innanlands sé varla skynsamleg og útflutningur mæti samkeppni bænda ( V-Evrópu sem njóti ríkisstyrkja til að geta keppt við stórbændur í Ástralíu og á Nýja Sjálandi. Hægt væri að minnka kostnað með því að efla og stækka búin. Lágmarks bú- stærð yrði 600-700 ærgildi. Þá 1983 1985 1987 1989 1991 1993 1995 Hlutdeild kindakjöts á innanlandsmarkaði 1983-1996. Heimild: Framleiðsluráð landbúnaðarins. Dagur spurði Ara hvort hann treysti sér til að fullyrða að Islend- ingar þyrftu ekki að leggja sér danskt lambakjöt til munns á sunnudögum eftir tvo áratugi eða svo. „Nei, við flytjum út lambalæri til Dana en ekki öfugt. Hljóðið er vissulega dökkt í bændum en við munum halda áfram að sjá íslend- ingum fyrir góðu kjöti. Eg er hins vegar ekki viss um Dani. „Og verða örugglega einhverjir til aó rækta Ijallalambið íslenska í fram- tíðinni?“ Já ef þjóðin vill sauðQár- rækt í landinu. Um það verður að vera sátt.“ Vítahringiir kæmi til greina að gera sauðfjár- búskap að hreinni aukabúgrein. Oflugt atvinnuþróunarstarf og bættar samgöngur hafa einhver áhrif. Auka þarf möguleika bænda á nýsköpun í dreifbýlinu, t.d. til menntunar. Að lokum má benda á að núverandi fram- leiðslu- og styrkjakerfi er umdeilt. Til greina kemur að minnka stuðning fyrst við þá sem stunda sauðíjárbúskap nánast sem „tóm- stundagaman1'. Ríkið gæti keypt beingreiðsluréttinn og úthlutað til þeirra sem vilja stækka. Sérstaðan mildlvæg Ari Teitsson fagnar bættri af- komu sauðfjárbænda eins og fram kom í blaðinu í gær en hann er ósammála því að ekkert annað komi til greina en að fækka búum og stækka þau. „Það er nauðsyn- legt að fullnýta aukna möguleika sem eru f sjónmáli á erlendum mörkuðum. Við getum ekki keppt við ný-sjálenska stórbændur en við eigum að Ieggja áherslu á sér- stöðu okkar vöru. Við eigum að selja okkar afurðir sem sérstak- Iega vottaða sérvöru og það er meira en Ný-Sjálendingar geta, þeir nota t.d. lyfjagjöf í töluverð- um mæli. Eg er ekki að spá nein- um uppgripum en ég held því fram að miklar líkur séu á að hægt sé að auka tekjur með því að fullnýta framleiðslutækin. Sauð- fjárrækt sem aukastarf hentar mörgum ágætlega.“ Sigurgeir Hreinsson er formaður Búnaðarsambands Eyjafjarðar og er með blandað bú, kýr og kindur. Hann tekur undir þær tillögur að stuðningur ríkisins ætti einkum að beinast að stærri sauðfjárbú- um. „Mér finnst þetta vel koma til greina þótt þessar hugmyndir kæmu e.t.v. niður á mínu búi. Það þarf eitthvað að gera. Vandinn er fyrst og fremst sá að búin eru of lítil, samdrátturinn hefur verið svo mikill á síðustu 15-20 árum að menn hafa ekki haft undan. Þetta er líka samfélagslegt mál,“ segir Sigurgeir. Varðandi fullyrðingu Byggða- stofnunar um litla framleiðni og takmarkaða verðmætasköpun í búgreininni, segir Sigurgeir að það gefi auga leið að erfiðara sé að hagræða og skipuleggja framtíð- ina þegar menn séu,'sífellt á und- anhaldi. Ekki sé óeðlilegt í ljósi kringumstæðna að bústærð Sigurgeir Hreinsson. minnki á sama tíma og bændum fækki. Bændur eru iðulega fullorðið fólk með tiltölu- lega litla menntun. Atvinnuástand hefur verið þannig að menn hafa ekki haft að neinu að hverfa og neyðast til að éta sínar eignir til að lifa. Kynslóðaskipti eru lítil og þetta er því ákveðinn vítahringur. Mér hef- ur einnig fundist sem stjórnvöld hafi ekki tekið nægilega af skarið til að ákveða hvaða sveitir eigi að Iifa og hvaða sveitir ekki. Það er allt skárra en að allar sveitirnar drepist hægt og rólega. Hægt væri að hugsa sér tiltekin svæði sem stjórnvöld myndu ákveða að eigi að vera í byggð en leggja önnur niður, en þetta er ekki sársauka- laus aðgerð,“ segir Sigurgeir. Björn Bjarnason, menntamálaráðherra. Orða- bauki opnaður Björn Bjarnason, menntamála- ráðherra, opnar nýjan banka í dag. Þar er þó enga peninga að hafa, heldur geymir bankinn það sem mörgum þykir dýrmæt- ara en peningar, en það er ís- Iensk tunga. Orðabankinn nýi á að safna saman hvers kyns tækni- og fræðiheitum á ís- lensku og veita yfírsýn yfir ís- lenskan orðaforða í sérgreinum og nýyrði sem eru efst á baugi. Þar verður að finna íslenskar þýðingar á erlendum sérfræði- orðum og hugtökum. Meðal þeirra efnissviða sem fínna má í bankanum eru tölvur, uppeldis- og sálfræði, flug, bílar, efnafræði og stjörnufræði, en umfang hans eykst fyrirsjáan- lega Orðabankinn er á Internet- inu og veffang hans http://www.ismal.hi.is/ob/. Að- gangur verður ókeypis fyrst í stað. Það er íslensk málstöð sem rekur bankann og hún efnir til málræktarþings í dag á Hótel Sögu í tilefni dags íslenskrar tungu. Þar halda þrír valin- kunnir fræðimenn erindi sem öll varða með einhverjum hætti samband íslenskunnar við aðrar tungur. ÖGMANNSSTOFA INGU ÞALLAR Tilkynning um flutning í nýtt húsnæði Lögmannsstofan flytur um eina hæð og opnar í nýju húsnæði á 2. hæð að Skipagötu 14, Akureyri, þriðjudaginn 18. nóvember 1997. Inga Þöll Þórgnýsdóttir, héraðsdómslögmaður. Tökum að okkur að senda matvörur til vina og ættingja erlendis. Ath. vegna ESB-reglna verður sending á ábyrgð sendanda. Allar bökunarvörur á jólatilboði. Munið heimsendingarþ j ónustuna. Tökum vel á móti ykkur. Starfsfólk B-93 QlœóuUagtvt pcá Meíén &xx£uóUie 100% u£l U. 41.5CC Stakvc uMwtjakkwc tvc. 25A5C Mcvcauðvc ag came£ Cit Tíekul ltis Laugavegi 101 • Sími 562 1510

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.